Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Árni Sæberg skrifar 5. október 2026 15:26 S-listi Samfylkingar og óháðra og D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra mynduðu meirihluta í Suðurnesjabæ í lok maí. Í framhaldinu hófst leit að bæjarstjóra. Sjálfstæðismenn og óháðir harma að meirihlutasamstarfi við Samfylkinguna sé lokið og segja það áhyggjuefni að bæjarstjórn Suðurnesjabæjar springi í annað sinn vegna vinnslu á vallarmálum.
Meirihluti Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins sem myndaður var eftir kosningarnar í maí sprakk í gær eftir fjögurra mánaða samstarf. Alls eru níu fulltrúar í bæjarstjórn. Í lok maí náðu þrír fulltrúar Samfylkingarinnar og tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokks saman um myndun meirihluta í bæjarfélaginu og í ágúst réðu flokkarnir Alexöndru Jóhannesdóttur sem ópólitískan bæjarstjóra. Fótboltavöllur í Garði, Sandgerði eða mitt á milli? Líkt og Vísir fjallaði um fyrr í dag sprakk meirihlutinn meðal annars vegna ágreinings um staðsetningu íþróttavalla í sveitarfélaginu, sem samanstendur af tveimur bæjum, Garði og Sandgerði. Haukur Andreasson og Haraldur Helgason, efstu tveir menn á lista Sjálfstæðisflokksins í sveitarfélaginu, hafa nú sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins. „Afstaða okkar til þess máls er að besta leiðin til að sameina byggðakjarnana er eitt fjölnota íþróttahús á Miðjunni, milli Sandgerðis og Garðs. Hús sem nýtist öllum íbúum, ungum sem öldnum, og fleiri íþróttafélögum allt árið um kring. Samkvæmt skýrslu Verkís skapar staðsetning á Miðjunni mest jafnvægi milli kjarnanna og slík lausn nýtir fjármuni bæjarins best til lengri tíma,“ segir í henni. Ekki megi dýpka gjána milli bæjanna Á fundi bæjarráðs 9. september hafi þeir stutt sameiginlega tillögu allrar bæjarstjórnar í góðri trú um að hún myndi skapa jafnvægi milli kjarnanna. Fljótlega hafi komið í ljós að svo var ekki og því hafi þeir viljað við endurskoða ákvörðunina, sem hafi leitt til þess að atburðarás þróaðist á þann hátt að ekki var vilji allra til að vinna úr þeirri stöðu sem upp kom og þar með hafi meirihlutinn fallið. „Samstarfið stóð stutt en var að mestu afar jákvætt og farsælt. Við hvetjum kjörna fulltrúa jafnt sem íbúa til að láta þessa stöðu ekki dýpka gjána milli byggðakjarnanna og sameinast undir merkjum Suðurnesjabæjar í orði og á borði. D-listi og óháðir munu áfram vinna af heilindum að hagsmunum allra íbúa, hvar sem þeir búa í bænum.“
Suðurnesjabær Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Íþróttir barna Skipulagsmál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Sjá meira