Suður­nesja­bær

Suður­nesja­bær

Mannfjöldi: 4.091 (2025). Flatarmál: 82 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Sandgerði, Garður.


Fréttamynd

Hefja form­legar við­ræður um myndun nýs meiri­hluta

Samfylking og óháðir og Framsókn og óháðir í Suðurnesjabæ hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Leitast verður eftir því að Alexandra Jóhannesdóttir muni áfram starfa sem sveitarstjóri en hún tók við stöðunni í sumar.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Einn í fram­boði til vara­for­manns enn sem komið er

Enginn hefur enn boðið sig fram gegn þingflokksformanni Samfylkingarinnar í varaformannskjöri sem fer fram á flokksstjórnarfundi um helgina. Fundurinn verður haldinn í Suðurnesjabæ þar sem meirihlutasamstarf Samfylkingar við Sjálfstæðisflokk sprakk í loft upp um helgina.

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hlutinn sprakk aftur vegna vallarmála

Sjálfstæðismenn og óháðir harma að meirihlutasamstarfi við Samfylkinguna sé lokið og segja það áhyggjuefni að bæjarstjórn Suðurnesjabæjar springi í annað sinn vegna vinnslu á vallarmálum.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert heitt vatn á Suður­nesjum í dag

HS Veitur og HS Orka ráðast í viðamiklar framkvæmdir í dag og verður lokað fyrir heitt vatn á Suðurnesjum vegna þeirra. Búið er að skrúfa fyrir vatnið á hluta svæðisins.

Innlent
Fréttamynd

Aukinn við­búnaður vegna al­myrkva á Reykja­nesi

Lögreglan á Suðurnesjum, björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Brunavarnir Suðurnesja og Slökkvilið Grindavíkur verða með aukinn viðbúnað vegna almyrkvans á sólu miðvikudaginn 12. ágúst. Á Reykjanesi og verður almyrkvinn allt frá tveimur mínútum til 1.45.

Innlent
Fréttamynd

Margrét Kristín skipuð lög­reglu­stjóri á Suður­nesjum

Margrét Kristín Pálsdóttir hefur verið skipuð í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum af Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur. Greint var frá því í morgun að Margrét Kristín hefði verið á lista umsækjenda um starf lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Keili form­lega slitið

Félaginu Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs ehf. hefur formlega verið slitið en námsbrautir skólans hafa flestar verið færðar undir hatta annarra námsstofnana. Háskólabrú Keilis heldur áfram undir Háskóla Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Árangur á vakt Fram­sóknar í Suður­nesja­bæ

Það gerist ekkert af sjálfu sér. Þessi einföldu sannindi þekkjum við öll sem búum í litlu samfélagi. Hér skiptir framlag hvers og eins máli – fyrir okkur sjálf, fyrir umhverfið og fyrir samfélagið í heild.

Skoðun
Fréttamynd

Ekki síður í vand­ræðum með bók­lega kennslu

„Þetta er bara verk- og starfsnámsaðstaða. Það vantar líka að gera úrbætur varðandi bóklega kennslu,“ segir Kristján Ásmundsson, fráfarandi skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, spurður út í yfirlýsingu sem menntamálaráðuneytið birti í kjölfar afsagnar hans, þar sem greint er frá uppbyggingaráformum fyrir verknámsaðstöðu við skólann.

Innlent
Fréttamynd

Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauks­stöðum of­beldi

Jón Steinar Konráðsson, sem rak fósturheimilið Gauksstaði með eiginkonu sinni Lindu Angelique Elizondo, neitar öllum ásökunum um að hafa beitt börnin sem dvöldu þar ofbeldi. Starfsemin var rannsökuð fyrir fimm árum af lögreglu en málið fellt niður. Hann telur málið vera til umræðu vegna uppbyggingar hans á Gauksstöðum.

Innlent
Fréttamynd

Ein­stefna komumegin við Kefla­víkur­flug­völl

Hluti af vegi sem liggur á milli flugstöðvarbyggingar Keflavíkurflugvallar og langtímabílastæða norðan við hana verður einstefna með framkvæmdum sem hófust í dag. Breytingarnar eru sagðar eiga að auka öryggi vegfarenda og bæta umferðarflæði.

Innlent