Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Árni Sæberg skrifar 30. september 2026 16:18 Flugstöð Leifs Eiríkissonar. Vísir/Vilhelm Nýjar stoppistöðvar hafa verið settar upp á tveimur stöðum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar, merkingar bættar og gönguleiðin að almenningsvögnum fyrir farþega sem eru að koma úr flugi er nú yfirbyggð. Eftir breytingar verða þrjár stoppistöðvar við flugstöðina en í dag er ein stoppistöð fyrir almenningsvagna, í talsverðri fjarlægð frá flugstöðinni.
Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðs Íslands segir að mikilvægar umbætur hafi verið gerðar á aðkomu og aðstöðu fyrir almenningsvagna sem aka til og frá Keflavíkurflugvelli til að bæta aðgengi flugfarþega og starfsfólks að flugstöðinni. Breytingarnar taki til leiðar 55, sem aki milli BSÍ og/eða Fjarðar til Keflavíkurflugvallar, og leiðar 89 sem ekur milli Reykjanesbæjar/Suðurnesjabæjar og Keflavíkurflugvallar. Nýtt fyrirkomulag taki gildi á morgun, fimmtudaginn 1. október. Verkefnið hafi verið unnið í náinni samvinnu Vegagerðarinnar, sem sjái um rekstur landsbyggðarstrætó, Isavia og Almenningssamganga höfuðborgarsvæðisins ohf. Breytingarnar séu í takt við tillögur starfshóps, sem skipaður hafi verið um almenningssamgöngur milli höfuðborgarsvæðis og Keflavíkurflugvallar. „Þetta er mikilvægur áfangi við að bæta almenningssamgöngur til Keflavíkurflugvallar. Við viljum að farþegar og starfsfólki eigi auðveldara með að velja sér ferðamáta til og frá flugvellinum. Nýjar stoppistöðvar og yfirbyggðir göngustígar gera þar gæfumuninn. Næstu skref okkar verða að skapa forsendur til auka tíðni og bæta þjónustu almenningsvagna á þessari leið,“ er haft eftir Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra. Helstu breytingar á leið 55: Ný stoppistöð fyrir brottfararfarþega (KEF Brottfarir). Ný stöð tekin í notkun brottfararmegin við flugstöðina fyrir farþega á leið í flug. Leið 55 ekur alla leið inn að flugstöðinni og hleypir út farþegum á sama stað og flugrútur. Ekki verður hægt að stíga um borð í almenningsvagna á þessari stöð. Ný stoppistöð fyrir komufarþega (KEF Komur). Ný stöð tekin í notkun komumegin á sérmerktu stæði. Byggt hefur verið yfir gönguleiðina frá flugstöðinni til að skýla farþegum sem eru að koma úr flugi fyrir veðri og vindum. Bættar merkingar. Allar merkingar inni í flugstöðinni og utan dyra á stoppistöðvum og gönguleiðum hafa verið bættar og endurgerðar. Auðveldara að flytja hjól. Hægt er að taka með reiðhjól um borð á nokkrum algengum brottfarartímum hjá leið 55 (fimm brottfarartímar af tólf). Endastöð. Á virkum dögum keyrir leið 55 ýmist alla leið til Reykjavíkur (BSÍ) eða til Hafnarfjarðar (Fjörður). Í Firði er hægt að skipta yfir í leið 1 sem ekur síðan í gegnum Garðabæ, Kópavog og inn í miðbæ Reykjavíkur. Um helgar er endastöðin Fjörður. Greiðslur. Hægt er að greiða bæði með reiðufé eða snertilausum greiðslukortum. Sérstök kjör. Hægt er að kaupa áskriftarkort í landsbyggðarstrætó (t.d. leið 55 og 89). Að öðru leyti verði farþegar ekki varir við breytingar á leið 55 og allar tímasetningar á akstursleiðinni séu óbreyttar. Ný heiti á stoppistöðvum muni birtast jafnt og þétt á merkingum og í upplýsingakerfum. Hér að neðan má sjá kort sem sýnir staðsetningar stoppistöðvanna: Stjórnarráðið Loks segir að akstursleið og tímatafla leiðar 89, sem gangi frá Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ til flugvallarins, sé óbreytt. Stoppistöðin sem leið 89 stoppar við fái nýtt nafn, Kjóavellir. Stöðin hafi áður heitið KEF-Airport áður. Stæði fyrir leið 89 verði áfram á sama stað og áður en til standi að bæta þá aðstöðu.
Strætó Keflavíkurflugvöllur Samgöngumál Suðurnesjabær Reykjanesbær Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira