Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Samúel Karl Ólason skrifar 8. október 2026 21:26 Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú. Vísir/Vilhelm Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, segist vona að ísraelskir kjósendur hafni Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, og öðrum sem eru með honum í ríkisstjórn. Þörf væri á nýrri ríkisstjórn sem hefði trú á tveggja ríkja lausninni svokölluðu.
Dorrit er fædd í Ísrael en fluttist til Bretlands á unglingsárunum. Rætt var við Dorrit í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag, af því tilefni að í gær voru þrjú ár liðin frá því að Hamas-liðar og aðrir vígamenn réðust inn í Ísrael frá Gasaströndinni. Afleiðingar þessa hafa verið gífurlega miklar á Mið-Austurlönd og heiminn allan en blóðug átök og mjög mannskæðar árásir Ísraela á Gasaströndina eru á meðal afleiðinganna. Hún flakkaði á milli ensku og íslensku í viðtalinu þar sem Dorrit sagðist ekki hafa æft sig nóg í íslensku að undanförnu. Hún þyrfti að verja meiri tíma hér á landi. Hún telur að því miður hafi árásirnar þann 7. október 2023 ekki breytt nógu miklu í Ísrael. Í viðtalinu rifjaði hún upp hvernig Hamas-liðar og fleiri vígamenn hefðu framið umfangsmikil ódæði í Ísrael þennan dag. Dorrit sagðist þó þeirrar skoðunar að yfirvöld í Ísrael bæru mikla ábyrgð á ódæðunum en það drægi ekki úr ábyrgð Hamas-liða. Dorrit sagði ríkisstjórn Ísrael vera skipaða öfgamönnum og að báðar hliðar öfgamanna í Ísrael og í Hamas noti ódæði hvor annars til að réttlæta dráp á fólki. „Þetta er alfarið óásættanlegt,“ sagði Dorrit. Dorrit benti einnig á að yfirvöld í Ísrael höfðu verið vöruð við því að Hamas-liðar ætluðu sér eitthvað. Ungar konur í herþjónustu, sem voru í varðstöðvum við landamæri Gasastrandarinnar, höfðu í nokkrar vikur reynt að hringja viðvörunarbjöllum um að eitthvað væri í gangi. Á undanförnum þremur árum hafa einnig borist fregnir af því að ríkisstjórn Ísrael hafi fengið viðvaranir frá öryggisstofnunum ríkisins og nágrannaríkjum eins og Sameinuðu furstadæmunum. Þessu hefur Benjamín Netanjahú forsætisráðherra alfarið hafnað, eins og fram kemur í grein BBC þar sem meðal annars er farið yfir það hvernig háttsettir embættismenn innan hersins og leyniþjónustusamfélags Ísrael höfðu áhyggjur af stöðunni í aðdraganda árásanna. „Þeir voru nokkrum sinnum varaðir við. Gögnin sýna það. Hvar var ríkisstjórn Ísrael? Hvar var herinn?“ spurði Dorrit. Henni sýnist að á þessum tíma hafi ísraelskir hermenn staðið vörð um ísraelska öfgamenn á hernumdum svæðum Ísraela. Hún segir að árásirnar fyrir rétt rúmum þremur árum hafi haft hræðilegar afleiðingar, ekki bara fyrir Ísraela, heldur einnig fyrir Palestínumenn. Hægt er að hlusta á viðtalið við Dorrit í spilaranum hér að neðan. Dorrit segist standa í þeirri von að Palestínumenn eignist sitt eigið ríki og góða stjórnendur. Þetta sé harðduglegt fólk sem megi ekki láta stjórnast af öfgamönnum. Það sé engin önnur lausn á átökunum en að Palestínumenn fái eigið ríki. „Ég gæti glöð búið í öðru hvoru ríkinu, svo lengi sem því væri ekki stýrt af öfgamönnum.“ Eftir nokkrar vikur ganga Ísraelar til kosninga en Dorrit segist vona að Netanjahú verði úthýst úr embætti forsætisráðherra. Ríkið þyrfti nauðsynlega nýja ríkisstjórn sem hefði trú á tveggja ríkja lausninni og gæti leitt til jafnra tækifæra fyrir Ísraela og Palestínumenn. Þá sagði hún að ein lausn, sem gæti verið óvinsæl, væri að fleiri Ísraelar giftust Palestínumönnum og öfugt.
Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Tengdar fréttir Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Umdeildur rabbíni segist vera fórnarlamb hatursglæps eftir að íslenskur maður gekk upp að honum og sagði: „Til fjandans með Ísrael“. Hann segir Íslendingum slétt sama um Palestínu og að umræddur maður sé hættulegur gyðingahatari og kvenhatari. 13. ágúst 2026 19:21 Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, segir í viðtali við Mörtu Maríu að líf sitt sé á hvolfi eftir skilnað hennar og Ólafs Ragnars Grímssonar. Upphafið að endalokum hjónabandsins rekur hún til 7. október 2023 þegar Hamas gerðu árás á Ísrael. Þá hafi orðið ljóst að hún og Ólafur gætu ekki veitt hvoru öðru þann stuðning sem hinn þurfti á að halda. Hún syrgi lífið sem þau áttu saman. 5. október 2026 10:59 Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Sjá meira
Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Umdeildur rabbíni segist vera fórnarlamb hatursglæps eftir að íslenskur maður gekk upp að honum og sagði: „Til fjandans með Ísrael“. Hann segir Íslendingum slétt sama um Palestínu og að umræddur maður sé hættulegur gyðingahatari og kvenhatari. 13. ágúst 2026 19:21
Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, segir í viðtali við Mörtu Maríu að líf sitt sé á hvolfi eftir skilnað hennar og Ólafs Ragnars Grímssonar. Upphafið að endalokum hjónabandsins rekur hún til 7. október 2023 þegar Hamas gerðu árás á Ísrael. Þá hafi orðið ljóst að hún og Ólafur gætu ekki veitt hvoru öðru þann stuðning sem hinn þurfti á að halda. Hún syrgi lífið sem þau áttu saman. 5. október 2026 10:59