Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. október 2026 12:01 Viðbragðsaðilar bera einn hinna slösuðu úr flugvél á Reykjavíkurflugvelli á laugardag. Vísir/Anton Brink Tveir ferðamenn sem fluttir voru þungt haldnir til Reykjavíkur á laugardag eftir fjögurra bíla árekstur á Austurlandi þar sem tveir aðrir létust eru ekki lengur í lífshættu. Samkvæmt upplýsingum frá Rauða krossinum var um tíu manns veitt sálgæsla vegna slyssins.
Tveir erlendir ferðamenn á sjötugsaldri létust í slysinu sem varð rétt fyrir hádegi á Laugardag á þjóðvegi eitt á Jökuldalsheiði við Háreksstaðakvísl. Um var að ræða árekstur fjögurra bíla og voru samtals átta farþegar í bílunum. Tveir aðrir voru fluttir alvarlega slasaðir með sjúkraflugi til Reykjavíkur en samkvæmt heimildum fréttastofu eru þeir ekki lengur í lífshættu. Hinir fjórir farþegarnir voru færðir til aðhlynningar á Egilsstöðum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu lauk rannsókn á vettvangi á laugardagskvöld og veitir hún ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, sjúkraflugvélar, björgunarsveitarmenn, lögregla, sjúkraliðar og Rauði krossinn tóku þátt í aðgerðum. Álfheiður Svana Kristjánsdóttir neyðarvarnarfulltrúi Rauða krossins segir viðbragðshópa hafa verið virkjaða á Austurlandi og Norðurlandi eystra. „Viðbragðshópar Rauða krossins sinna sálrænum stuðningi og við komum svolítið að þegar aðgerðum á slysstað lýkur. Við bjóðum upp á sálrænan stuðning fyrir þá sem voru vitni að slysinu og í þessu tilfelli vorum við einnig að styðja við viðbragsaðila þegar þeir komu heim af vettvangi.“ Þannig hafi fólk sett sig í samband við Rauða krossinn á sunnudag og mánudag og Rauði krossinn veitt um tíu manns sálrænan stuðning sem hafi orðið vitni að slysinu eða komið að störfum á slysstað. „Þeir sem eru vitni að svona erfiðum slysum þeir fá boð um sálrænan stuðning, ýmist er fólki boðið að koma eins og í þessu tilfelli var fólki boðið að koma á heilsugæslustöðina á Egilsstöðum en annars er fólki oft boðinn sálrænn stuðning seinna sama dag eða næstu daga á eftir og fólk getur þá haft samband við 1717 eða Rauða krossinn og óskað eftir sálrænum stuðning ef það hefur ekki fengið boð um slíkt.“
Samgönguslys Umferð Múlaþing Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira