Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Samúel Karl Ólason skrifar 5. október 2026 17:33 Bjarni Benediktsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Anton Brink Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífisins hafna öllum ásökunum um svik. Þau hafi staðið að fullu við gerða samninga og kalla forsvarsmennirnir eftir því að umræðan um kjaramálin byggi á staðreyndum og gagnkvæmri virðingu.
Í yfirlýsingu frá SA er vísað til umræðu síðustu daga þar sem einstakir fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar hafi „talað um að launafólk hafi verið svikið og gagnrýnt afstöðu Samtaka atvinnulífsins vegna forsendubrests kjarasamninga“. Þessum ásökunum er alfarið hafnað í yfirlýsingunni. Þar segir enn fremur að finna þurfi lausn sem auki kaupmátt og skapi skilyrði fyrir lægri vöxtum. „Sameiginlegar greiningar SA, ASÍ og stjórnvalda sýna að kaupmáttur allra samfélagshópa hefur vaxið, en vonbrigði með þróun verðbólgu og vaxta eru skiljanleg.“ Þá segir í yfirlýsingunni að ágreiningur um viðbrögð við þeirri stöðu réttlæti ekki ásakanir um svik. Það að efnahagsaðstæður hafi þróast með verri hætti en vonað var og kostnaður atvinnurekenda orðið meiri en ráð hafi verið gert fyrir við samningsgerðina hafi SA talað fyrir því að kjarasamningar haldi. „Háir vextir þrengja að fyrirtækjum ekki síður en heimilum. Við þessar aðstæður er ekki svigrúm til launahækkana umfram það sem þegar hefur verið samið um.“ Þá segir enn fremur í yfirlýsingunni að SA hafi lagt fram skýrt mat á stöðu atvinnulífsins og það sé ekki að „skila auðu þótt niðurstaðan sé önnur en viðsemjendur okkar hefðu óskað“. Forsvarsmenn margra fyrirtækja hafi svarað kalli SA og tilkynnt frystingu verðs eða lækkun á síðustu vikum. Þá segir að SA leggi áherslu á að draga úr kostnaðarþrýstingi og þá meðal annars með því að stjórnvöld haldi aftur af skatta- og gjaldskrárhækkunum. Það hjálpi til við að verja kjarasamninga en því miður stefni í umtalsverðar skattahækkanir með nýjum fjárlögum. „SA vilja áfram vinna með verkalýðshreyfingunni og stjórnvöldum að niðurstöðu sem tryggir að samningarnir haldi og stuðlar að varanlegum stöðugleika.“
Kjaramál Skattar, tollar og gjöld Atvinnurekendur Tengdar fréttir Ögurstund í kjarasamningamálum Tekin verður ákvörðun um það í dag hvort kjarasamningum VR og fagfélaganna verði sagt upp. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi skilað auðu og segir að verði ákveðið að segja kjarasamningum upp muni það hafa gríðarlega víðtæk áhrif. 5. október 2026 11:52 Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Trúnaðarráð VR og stjórn félagsins munu koma saman til funda síðdegis í dag þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref vegna forsendubrests kjarasamninga. Stjórn VR, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, fundar í kjölfarið og tekur afstöðu til þess hvort segja eigi upp kjarasamningum, komi ekki til viðunandi viðbragð frá SA. 5. október 2026 10:26 Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Fagfélögin hafa boðað trúnaðarmenn og fulltrúa í samninganefndum aðildarfélaganna til fundar á mánudag til að kalla eftir heimild þeirra til að segja upp kjarasamningum. 2. október 2026 16:29 Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Það myndi kosta ríkissjóð um tvo og hálfan milljarð króna að lækka fyrirhugaðar gjaldahækkanir úr 5,2 prósentum í 2,5 prósent, að sögn fjármálaráðherra. Hann segir svigrúm til þess í fjárlagafrumvarpinu og markmið um hallalaus fjárlög standi áfram. 2. október 2026 14:23 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Sjá meira
Ögurstund í kjarasamningamálum Tekin verður ákvörðun um það í dag hvort kjarasamningum VR og fagfélaganna verði sagt upp. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi skilað auðu og segir að verði ákveðið að segja kjarasamningum upp muni það hafa gríðarlega víðtæk áhrif. 5. október 2026 11:52
Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Trúnaðarráð VR og stjórn félagsins munu koma saman til funda síðdegis í dag þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref vegna forsendubrests kjarasamninga. Stjórn VR, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, fundar í kjölfarið og tekur afstöðu til þess hvort segja eigi upp kjarasamningum, komi ekki til viðunandi viðbragð frá SA. 5. október 2026 10:26
Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Fagfélögin hafa boðað trúnaðarmenn og fulltrúa í samninganefndum aðildarfélaganna til fundar á mánudag til að kalla eftir heimild þeirra til að segja upp kjarasamningum. 2. október 2026 16:29
Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Það myndi kosta ríkissjóð um tvo og hálfan milljarð króna að lækka fyrirhugaðar gjaldahækkanir úr 5,2 prósentum í 2,5 prósent, að sögn fjármálaráðherra. Hann segir svigrúm til þess í fjárlagafrumvarpinu og markmið um hallalaus fjárlög standi áfram. 2. október 2026 14:23