Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Lovísa Arnardóttir skrifar 5. október 2026 15:46 Gerðar hafa verið úrbætur á verklagi eftir atvikið. Vísir/Vilhelm Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur líklegt að flugumferðarstjóri á Reykjavíkurflugvelli hafi misst yfirsýn yfir flugvélar og þyrlur sem voru á leið til og frá vellinum þann 2. ágúst 2024 sem varð til þess að tvöföld árekstarhætta skapaðist með stuttu millibili.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa segir í lokaskýrslu sinni um alvarlegt flugatvik á Reykjavíkurflugvelli þann 2. ágúst 2024 að það hafi skapast tvöföld árekstrarhætta með stuttu millibili þegar mikið álag var á vellinum. Í skýrslu rannsóknarnefndar kemur fram að líklegt sé að flugumferðarstjórinn hafi misst yfirsýn yfir hvar öll loftförin voru staðsett sem voru á leið til eða frá vellinum og þar með flugumferðarstjórnina, vegna álags sem skapaðist eftir að sjúkraflugvél óskaði eftir forgangi að flugbraut 13. Óvenjuleg vinnuálag Nefndin telur jafnframt að sex mánaða starfsreynsla flugumferðarstjórans og skyndilegt og óvenjulega mikið vinnuálag í turnstöðu flugturnsins hafi leitt til þess að hann hélt ekki stjórn á aðstæðum. Í skýrslunni kemur einnig fram að ýmsar breytingar hafi verið innleiddar við flugumferðarstjórn eftir atvikið og hefur nefndin auk þess beint því til Isavia Innanlandsflugvalla ehf. og Avians ehf. að meta og/eða endurskoða verkferli um sjónflugsleiðir þyrla og sjá til þess að þeim sé fylgt. Þá beindi nefndin því einnig til Isavia Innanlandsflugvalla ehf. og Avians ehf., í tengslum við uppfærslu flugumferðarstjórnar á Reykjavíkurflugvelli yfir í fjarflugumferðarstjórn (remote tower), að uppfæra kögunarbúnað í flugturninum á Reykjavíkurflugvelli, svo unnt sé að nota hann fyrir flugumferð í nærumhverfi Reykjavíkurflugvallar. Atvikið átti sér stað klukkan 13.20 þann 2. ágúst en þá tilkynnti flugmaður flugvélar að hann hefði flogið fram hjá þyrlu í 800 fetum eftir að hún tók á loft. Atvikið var tilkynnt til rannsóknarnefndar og við skoðun kom í ljós, samkvæmt skýrslu, að árekstrarhætta hafði skapast árekstrarhætta á milli annarrar flugvélar og þyrlu tíu sekúndum síðar. Seinni flugvélin hafði verið í umferðarhring og á leið til lendingar og þyrlan að koma inn frá Fossvogsdal og til lendingar líka. Flugturn Reykjavíkurflugvallar. Vísir/Vilhelm Fullmannaður turn og einn í hvíld Í skýrslu er farið yfir atburðarásina en þar kemur fram að klukkan 13:13 hafi ein flugvél beðið við flugbraut 01, ein þyrla óskað eftir því að koma til lendingar, áætlunarflug verið að hefja flugtak á annarri braut, ein flugvél verið í umferðarhring og önnur í biðflugi. Stuttu síðar hafi svo sjúkraflug beðið um forgang. Í greiningu rannsóknarnefndar segir að vinnuálag í turnstöðu í flugturninum um það leyti sem atvikið hófst hafi verið mjög mikið. Sameiginlegt tíðni- og símaálag í turnstöðu hafi mælst 97 prósent á sjö mínútna tímabili fyrir atvikið. Turninn hafi verið fullmannaður þremur flugumferðarstjórum og einn þeirra hafi verið staðsettur í hvíld en í turnrými. Flugumferðarstjóri í turnstöðu hafi verið á vakt frá klukkan 10:00 til 20:00 og hafði því verið á vakt í þrjár klukkustundir og 20 mínútur þegar atvikið varð. Þá var hann búinn að vera í stöðu í 20‐30 mínútur, en að öllu jöfnu er skipt um stöðu á um 40 mínútna fresti samkvæmt skýrslunni. Hann sagði rannsóknarnefndinni að hann hefði þennan dag vaknað klukkan níu eftir sæmilegan nætursvefn. Þar kemur jafnframt fram að þegar flugáhöfn sjúkraflugs hafi óskað svo eftir forgangi að flugbraut 13 hafi það sett vinnu hans í uppnám en þegar hafi verið mikið að gera. Gleymdi að veita heimild og ruglaði kallmerkjum og flugbrautum Hann hafi í kjölfarið þurft að endurskipuleggja uppröðun aðfluga, flugtaka og lendinga á flugvellinum, þar sem honum bar að veita sjúkraflugvélinni forgang eftir að áhöfn hennar hafði óskað þess. Við þetta jókst álagið á flugumferðarstjóranum og eftirfarandi gerðist í kjölfarið: Klukkan 13:17 gleymdi flugumferðarstjórinn að veita flugmanni TF‐KFH lendingarheimild á flugbraut 01. TF‐KFH fór í fráhvarfsflug eftir að hafa verið komin niður í um 20 feta hæð yfir flugbraut 01. Klukkan 13:17 og klukkan 13:19 ruglaði flugumferðarstjórinn saman kallmerkjum þyrla OM‐XWB og OM‐TMH Klukkan 13:19 ruglaði flugumferðarstjórinn saman flugbrautum 13 og 31 Samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndarinnar gefur þetta til kynna að flugumferðarstjórinn hafi átt í erfiðleikum með að ná skipulagi á flugumferðina að nýju eftir beiðni sjúkraflugsins um forgang. Atvikin voru tilkynnt og eins og kemur fram að ofan kom fram við nánari skoðun að tvöföld árekstrarhætta skapaðist þennan dag.
Reykjavíkurflugvöllur Flug Samgöngumál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Sjá meira