Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Auglýsingatekjur RÚV hefðu farið yfir fyrirhugað 2,8 milljarða króna mark aðeins einu sinni á síðustu fjórum árum, samkvæmt samanburði Vísis á tölum ráðuneytisins. Það var árið 2022. Í skriflegu svari til Vísis segir ráðuneytið að mun meira muni um tíu prósenta lækkun á framlagi ríkisins til RÚV en um tekjuþakið. Innlent 5. október 2026 21:01
Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Sjálfstæðismenn og óháðir harma að meirihlutasamstarfi við Samfylkinguna sé lokið og segja það áhyggjuefni að bæjarstjórn Suðurnesjabæjar springi í annað sinn vegna vinnslu á vallarmálum. Innlent 5. október 2026 15:26
Segir Aþenu í andarslitrunum Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari segir samskiptin við Reykjavíkurborg og þá sérstaklega Bjarna Guðjónsson, sem nú fer fyrir Íþrótta- og útilífsráði Reykjavíkurborgar, ömurleg. Borgin hafi sagt upp samningi við Aþenu og félagið sé því í andarslitrunum. Innlent 5. október 2026 15:15
Rubio spenntur að hitta Þorgerði Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna segist spenntur fyrir Íslandsheimsókn sinni. Ísland sé góður vinur Bandaríkjanna og einn af stofnmeðlimum Nato. Innlent 5. október 2026 15:13
Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Trúnaðarbresturinn sem Samfylkingin og óháðir töldu svo alvarlegan að slíta þyrfti meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn í Suðurnesjabæ snýr samkvæmt heimildum fréttastofu að tilraun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins til að mynda nýjan meirihluta með Framsóknarflokknum og Miðflokki. Tilraunin var þó ekki gerð af oddvita flokksins heldur þeim sem situr í öðru sæti. Innlent 5. október 2026 13:47
Vill breyta umdeildum gatnamótum Til skoðunar er að breyta á ný gatnamótum sem gerðar voru umdeildar breytingar á í fyrra. Oddviti Miðflokksins gekk til liðs við meirihlutann í málinu og vonast til að framkvæmdir hefjist í vor. Innlent 5. október 2026 10:38
„Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar segir íslensk stjórnvöld vilja innleiða bókun 35 til að tryggja að íslenskir borgarar og fyrirtæki fái fullan rétt sem EES-samningurinn færir þeim. Sigríður Á. Andersen, þingkona Miðflokksins, telur að íslenska ríkið eigi að láta reyna á dómsmál fyrir EFTA-dómstólnum um innleiðingu EES-löggjafar á Íslandi áður en þingið tekur bókun 35 til umræðu. Komist dómstóllinn að því að íslenska ríkið hafi brotið á EES-samningnum sé komin upp önnur staða og þá þurfi að ræða það sérstaklega. Innlent 5. október 2026 10:26
Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Í yfirlýsingu Samfylkingarinnar í Suðurnesjabæ sem send var út í gær segir að flokkurinn hafi slitið meirihlutasamstarfi sínu við Sjálfstæðisflokkinn vegna trúnaðarbrests sem ekki hafi verið hægt að líta framhjá. Innlent 5. október 2026 08:03
Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Bæjarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í Suðurnesjabæ er sprunginn aðeins rúmlega fjórum mánuðum eftir að hann var myndaður í lok maí. Innlent 4. október 2026 19:30
Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Bókun 35 verður lögð fyrir Alþingi í vikunni í kjölfar þess að máli íslenska ríkisins var vísað til EFTA-dómstólsins. Þingmenn Viðreisnar og Miðflokksins tókust á um málið í Sprengisandi. Innlent 4. október 2026 17:02
Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Fjármálaráðherra segir það valda áhyggjum hvað virðing og traust til Alþingis Íslendinga sé lítið. Gera þurfi breytingar á þingsköpum en passa upp á minnihlutaverndina. Innlent 4. október 2026 14:49
Halda 25 prósenta bónusþaki þrátt fyrir mun rýmri reglur á Norðurlöndum Stjórnvöld hafa fallið frá fyrri áformum um að tvöfalda hámark breytilegra launa hjá verðbréfafyrirtækjum og leggja þess í stað til að 25 prósenta þak verði áfram við lýði hjá þeim félögum sem falla undir strangari kröfur. Takmörkunin verður því enn mun meiri en þekkist annars staðar á Norðurlöndum, þótt samhliða sé lagt til að regluverk íslenskra verðbréfafyrirtækja verði almennt einfaldað verulega og reglubyrði þeirra minnkuð. Innherji 4. október 2026 14:30
Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Hún mæðist í mörgu sem slík og ræðir meðal annars skilgreiningarvanda blaðamennskunnar, fjölmiðlalæsi, skilningsleysi á faginu sem teygir sig alla leið upp í dómstóla og segir frá erfiðasta atviki sem hún hefur þurft að takast á við sem formaður. Lífið 4. október 2026 10:00
Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Salma Björk Önnudóttir var í dag kjörin nýr formaður ungliðahreyfingar Miðflokksins á aukaaðalfundi sem hreyfingin hélt í Hamraborg. Jafnframt samþykkti hreyfingin ályktun sem fjallar meðal annars um skólamál, hinsegin mál, útlendingamál og íslenska tungu. Innlent 3. október 2026 20:44
Mildum höggið Við í Framsókn styðjum markmiðið um hallalaus fjárlög, en það má ekki vera sama hvað það kostar. Fjárlögin þurfa að byggjast á raunhæfum forsendum og meta þarf hvað leiðin að hallalausum ríkisrekstri þýðir fyrir fjölskyldur í landinu. Skoðun 3. október 2026 17:01
„Okkur finnst við vera undanskilin“ Sú staðreynd að Austurland leggi meira til ríkissjóðs en það fær til baka sýnir með skýrum hætti hversu mikilvægt atvinnulíf og verðmætasköpun á svæðinu er. Því þurfi ríkið að fjárfesta í þeim innviðum sem gera fólki og fyrirtækjum kleift að búa og starfa á svæðinu. Þetta segir formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Innlent 3. október 2026 15:55
„Of margar sögur af vondri meðferð“ Dómsmálaráðherra segir að verkalýðshreyfingin hafi kallað eftir því að lokað yrði á dvalarleyfi fyrir svokallaðar au pair frá löndum utan evrópska efnahagssvæðisins. „Það eru of margar sögur af vondri meðferð þannig að ég er að stíga þetta skref,“ segir hann meðal annars. Innlent 2. október 2026 21:02
Heiða í veikindaleyfi Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingar og fyrrverandi borgarstjóri, er komin í tveggja mánaða veikindaleyfi frá störfum. Innlent 2. október 2026 16:44
„Við erum óþolinmóð“ Hildur Ingvarsdóttir skólastjóri Tækniskólans segir að engum dyrum sé lokað þó að formlegar viðræður við Reykjavíkurborg séu hafnar um nýja staðsetningu skólans. Verið sé að skoða fleiri en einn möguleika í austurhluta borgarinnar og það sé lykiláhersla af beggja hálfu að vinna málið hratt. Innlent 2. október 2026 14:54
Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Það myndi kosta ríkissjóð um tvo og hálfan milljarð króna að lækka fyrirhugaðar gjaldahækkanir úr 5,2 prósentum í 2,5 prósent, að sögn fjármálaráðherra. Hann segir svigrúm til þess í fjárlagafrumvarpinu og markmið um hallalaus fjárlög standi áfram. Innlent 2. október 2026 14:23
Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Stjórn Landsvirkjunar nýtur áfram trausts fjármálaráðherra þrátt fyrir ágreining hennar við Hörð Arnarson, fráfarandi forstjóra. Ráðherrann segir þær skýringar sem hann hafi fengið á ágreiningnum vera almenns eðlis en telur fulla ástæðu til að yfirfara málið. Innlent 2. október 2026 14:11
Geri málið tortryggilegt að neita að svara Almannatengill og ráðgjafi segir framkomu formanns Flokks fólksins í umdeildu fréttamáli óvenjulega. Það geri málið tortryggilegt að neita að svara fréttamönnum auk þess sem það sé vanvirðing við fjölmiðla og þjóðina að segjast ekki hafa tíma til að ræða stórt fréttamál á sama tíma og formaðurinn veiti ítarlegt viðtal um tísku. Innlent 2. október 2026 13:00
Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra, hefur minnkað áfengisneyslu sína til muna og segir kílóin hafa fylgt með. Hún hafi alla tíð verið grönn en byrjað að bæta á sig um fimmtugt. Inga þáði boð Smartlandsins þar sem hún var gerð fín og flott, klædd í alls konar föt frá aðilum sem auglýsa í blaðinu og spurð spjörunum úr. Lífið 2. október 2026 11:58
Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Seinagangur í skipulagskerfinu og áhugaleysi landeigenda eru meðal ástæðna þess að mun hægar hefur gengið að endurheimta votlendi en stjórnvöld stefndu að. Aðeins þrettán hektarar voru endurheimtir í fyrra en stjórnvöld stefna á þrjú þúsund á ári til 2031. Innlent 2. október 2026 10:02
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Innritun í leikskóla Reykjavíkur hefur gengið vonum framar í haust og það eru frábærar fréttir. Skoðun 2. október 2026 08:02
Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Mennta- og barnamálaráðuneytið segir markmið fyrirhugaðra breytinga á námsmati við lok grunnskóla að gera framsetningu einkunna skýrari og samræmdari og þannig stuðla að auknu jafnræði nemenda, óháð því hvaða skóla þeir sækja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu en þar er einnig farið ítarlega yfir merkingu hverrar einkunnar fyrir sig. Innlent 2. október 2026 07:14
Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Borgarstjórn hefur samþykkt að hefja útboð afmarkað sorphirðu við heimili í Breiðholti í tilraunaskyni. Samkvæmt tillögu er gert ráð fyrir því að verkið verði boðið út frá 1. maí 2027 til sex ára með möguleika á framlengingu til tveggja ára og geti samtals orðið til átta ára. Innlent 1. október 2026 23:00
Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Erlendir ríkisborgarar munu almennt þurfa að dvelja á Íslandi í sex ár í stað fjögurra áður en þeir öðlast rétt á ótímabundnu dvalarleyfi ef frumvarpsdrög dómsmálaráðherra ná fram að ganga. Þá verður hætt að veita dvalarleyfi til au pair sem koma utan Evrópska efnahagssvæðisins. Einnig er lagt til að skilyrði fjölskyldusameininga verði þrengd og dvalarleyfi veitt til þolenda vinnumarkaðsbrota. Innlent 1. október 2026 22:01
Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Þóroddur Bjarnason, prófessor á félagsvísindasviði Háskóla Íslands, segir að með því að fjölga þingmönnum úr 63 í 85 til að fjöldi kjósenda að baki hverjum þingmanni yrði sambærilegur í öllum kjördæmum. Þannig sé betur hægt að jafna atkvæðavægi og tryggja jafnræði án ofríkis meirihlutans. Innlent 1. október 2026 21:00
Marco Rubio á leið til Íslands Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kemur til Íslands í næstu viku eftir að hafa þegið boð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um heimsókn. Hans má vænta hinn 5. október en að því loknu heldur Rubio til Grikklands og Portúgal. Innlent 1. október 2026 18:07