Geri málið tortryggilegt að neita að svara Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 2. október 2026 13:00 Þórhildur Þorkelsdóttir er almannatengill og ráðgjafi. Hún segir vinnubrögð Ingu Sæland ekki góða taktík. vísir Almannatengill og ráðgjafi segir framkomu formanns Flokks fólksins í umdeildu fréttamáli óvenjulega. Það geri málið tortryggilegt að neita að svara fréttamönnum auk þess sem það sé vanvirðing við fjölmiðla og þjóðina að segjast ekki hafa tíma til að ræða stórt fréttamál á sama tíma og formaðurinn veiti ítarlegt viðtal um tísku.
Frá því að Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, steig fram og skilaboð milli hans og fyrrverandi aðstoðarkonu hans voru birt og innihéldu valkostinn „afsögn eða stríð“ hefur Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, ekki svarað fyrirspurnum fréttastofu um viðtal vegna málsins og ekki veitt neinum fjölmiðlum viðtöl um málið eftir skilaboðin voru birt. Þá hafa aðstoðarmenn hennar ýmist ekki svarað fréttamönnum eða hafnað viðtalsbeiðnum. Fréttastofa reyndi að ræða við Ingu í gær en hún neitaði að svara spurningum fréttamanns á leið sinni frá skólabyggingu Menntaskólans í Reykjavík að bíl sínum en sagðist þó ekki hafa haft hugmynd um skilaboðin umdeildu. Þórhildur Þorkelsdóttir, almannatengill og ráðgjafi, segir þessi vinnubrögð formannsins óvenjuleg. „Með því að gefa ekki kost á viðtali gerirðu málið mjög tortryggilegt og ef þú svarar eins og við sáum í viðtalinu í gær, eða ef viðtal skyldi kalla, þá er enn verra að svara með skætingi. Jafnvel þó að staðan sé þannig að þú hafir ekkert að fela eins og hún vill meina og ríkisstjórnin vill meina, þá auðvitað er eins og þú hafir eitthvað að fela þegar þetta eru viðbrögðin.“ Misræmi í upplýsingum Hún segir málið þannig umfangs að Inga, sem er kjörinn fulltrúi, verði að svara fyrir það enda sé mörgum spurningum ósvarað. „Það er ákveðið misræmi í þessum upplýsingum sem fjölmiðlar hafa fengið og þeim skilaboðum sem hafa litið dagsins ljós og því sem ráðamenn eru að segja að hafi gerst. Og fjölmiðlar munu að sjálfsögðu halda áfram að leita svara þangað til að það er komin einhver mynd á málið sem að gefur skýra mynd af því sem gerðist. Þannig að í þessu tilviki held ég að það gangi alls ekki að ætla að bíða þetta af sér eða kæfa það niður með neinum hætti. Það er ekki góð taktík.“ Vanvirðing við þjóðina Inga sagðist í gær ekki hafa neinn tíma til að ræða málið við fjölmiðla. Í dag birtist ítarlegt sjónvarpsviðtal við hana á mbl.is þar sem hún ræðir fatastíl sinn og útlit. Þórhildur segir óheppilegt að slíkt viðtal birtist í kjölfar þess að hún beri fyrir sig tímaskorti. „Já, í ljósi þess að staðan er svona þá er þetta mjög óheppileg tímasetning og í raun og veru í ljósi þess að hún er að segja að hún hafi hreinlega ekki tíma til að svara þessu máli þá er þetta ákveðin, myndi ég segja, vanvirðing við bæði fjölmiðla sem eru að leita svara og hafa ekki fengið svör. Aðstoðarmenn og ráðherrar hafa hreinlega ekki gefið kost á viðtali en þetta er ákveðin vanvirðing bæði við fjölmiðla og almenning í landinu.“ Rétt er að taka fram að viðtal Morgunblaðsins við Ingu um fatastíl og útlit var tekið fyrir tveimur til þremur vikum en birt í dag.
Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar Flokkur fólksins Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira