„Of margar sögur af vondri meðferð“ Árni Sæberg skrifar 2. október 2026 21:02 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er dómsmálaráðherra. Einar/Vísir Dómsmálaráðherra segir að verkalýðshreyfingin hafi kallað eftir því að lokað yrði á dvalarleyfi fyrir svokallaðar au pair frá löndum utan evrópska efnahagssvæðisins. „Það eru of margar sögur af vondri meðferð þannig að ég er að stíga þetta skref,“ segir hann meðal annars.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra birti í gær drög að að frumvarpi til breytinga á útlendingalögum í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpið er sagt fela í sér heildarendurskoðun á þeim hluta útlendingalaga sem snýr að dvalarleyfum og er því meðal annars ætlað að færa umgjörð dvalarleyfa nær því sem tíðkast á öðrum Norðurlöndum. Þorbjörg Sigríður ræddi málið við fréttastofu að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. „Þetta er heildarendurskoðun á öllu okkar regluverki um dvalarleyfi. Við erum að herða tökin. Leiðarstefið er kröfur, kröfur til fólks sem hingað kemur til landsins og kröfur til okkar Íslendinga um móttöku fólks. Við erum að skoða fjölskyldusameiningar. Við erum að skoða hversu langan tíma það tekur fyrir fólk að fá varanlegt dvalarleyfi og sitthvað annað. Ástæðan er einfaldlega leiðarstefið í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar, að ná að smíða eitthvert klassískt regluverk sem getur staðist tímans tönn og hætta að vera frávik frá öðrum Norðurlöndum. Við erum að samræma regluverkið en stutta svarið er einfaldlega að við erum að herða tökin.“ Stelpur í viðkvæmri stöðu Þið nefnið au pair í þessu samhengi, hvers vegna? „Það hefur verið ákall um þetta innan úr verkalýðshreyfingunni. Það eru of margar sögur af vondri meðferð þannig að ég er að stíga þetta skref. Auðvitað verður áfram hægt að fá au pair til landsins en við erum að loka fyrir það utan EES-kerfisins, einfaldlega vegna þess að ákveðin þjóðerni, ég nefni Filippseyjar, það eru stelpur að koma í mjög viðkvæmri stöðu, með ekkert bakland. Við eigum of mörg dæmi þess að illa hafi farið og við erum að fylgja fordæmi Norðmanna að þessu leyti, sem hafa gert slíkt hið sama. Auk verkalýðshreyfingarinnar hafi lögregla einnig viðrað áhyggjur af því að illa sé farið með ungar konur sem hingað koma sem au pair. Til skýringar er svokallað au pair ungmenni á aldrinum 18 til 25 ára, oftast kona, sem dvelur hjá vistfjölskyldu og sinnir léttum heimilisverkum og annast börn gegn fæði, húsnæði og vasapening. Herða reglur til að vernda fólk Þorbjörg Sigríður segir með því að hætta útgáfu dvalarleyfa til au pair frá löndum utan EES sé verið að vernda fólk. „Ég held að það segi sig sjálft og þetta var líka niðurstaða Norðmanna. Það er auðvitað þetta viðkvæma samband í þessum au pair-sambúðum, að þú bókstaflega býrð hjá vinnuveitanda þínum. Ég ætla auðvitað alls ekki að tala þannig eins og þetta hafi bara verið vondar sögur en eins og ég segi, þær eru of margar. Mér finnst ástæða til að gera þetta þannig. Þetta er svona dæmi þess að stundum herðum við reglur til þess að vernda fólk en ekki bara til að útiloka“
Innflytjendamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Au-pair Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira