Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Bjarki Sigurðsson skrifa 7. október 2026 08:08 Halla Gunnarsdóttir formaður VR mætir til fundar í Borgartúni í morgun. Vísir/Anton Brink Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir að samkomulag Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar við Samtök atvinnulífsins, hafi ekki áhrif á viðræður VR. Hún vonast eftir lausnamiðuðu samtali þar sem fulltrúar SA hafi ítrekað látið sig hverfa þegar einhver lending næst.
Í gærkvöldi undirrituðu áðurnefnd stéttarfélög samkomulag við Samtök atvinnulífsins um að framlengja kjarasamninga út næsta ár. Þau fengu kynningu á aðgerðapakka stjórnvalda og sé hann mjög álitlegur. Halla sótti einnig fund stjórnvalda og telur hún forsætisráðherra vera að gera sitt besta til að leysa hnúta. „Kjarasamningar á almennum markaði voru í grunninn gerðir í þrennu lagi í síðustu atrennu og þarna er bara einn hópurinn sem gerði kjarasamninga búinn að ná einhverri lendingu sem þau telja ásættanlega,“ segir Halla í samtali við fréttastofu. „Þau eru auðvitað að einhverju leyti með aðra hópa sem þau eru að semja fyrir og bara þeirra mat á stöðunni er annað en okkar. Það er alveg eðlilegt að stéttarfélög í svona öflugri verkalýðshreyfingu séu ekki öll með nákvæmlega sama matið.“ VR sé hins vegar á öðrum stað. Þau telja mikilvægt að koma til móts við þá hópa sem hafa orðið fyrir launalækkunum undir gildandi kjarasamningum. Á mánudagskvöld fékk VR heimild frá sínum trúnaðarmönnum og samninganefndum til að segja upp kjarasamningum. Í gærmorgun fundaði VR með fulltrúum SA og lagði þar fram tillögur að lausnum. Vonir stóðu til að funda aftur eftir hádegi en ekkert sást þá til fulltrúa SA. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, sagði í samtali við Vísi að hann væri að bíða eftir viðbrögðum stjórnvalda. Halla segir gærdaginn hafa farið í súginn en það væri helsta skylda allra að reyna að ná samkomulagi. Ákvörðun að hleypa öllu í bál og brand Halla segir að ef ekki verði settar einhverjar varnir inn fyrir launafólk geti það orðið fyrir enn frekari launalækkunum. Næsti fundur VR og SA hefst klukkan 9:15. „Nú þarf maður að koma sér niður í húsnæði ríkissáttasemjara. Þar eigum við von á að Samtök atvinnulífsins komi í hús og ég vona svo sannarlega að þau komi af heilum hug inn í þetta samtal vegna þess að við erum búin frá því í lok ágúst að leggja fyrir þau tillögur eftir tillögur að lausnum án þess að þau hafi í rauninni verið tilbúin til þess að ljúka samtali við okkur,“ segir hún. Þegar einhver lending náist séu fulltrúar SA yfirleitt stungnir af. Það sé ákvörðun um að hleypa öllu í bál og brand á vinnumarkaði. „Í hvert einasta skipti sem ég hef talið að samtalið sé að nálgast einhvern merkingarbæran stað þá hafa þau látið sig hverfa og nú höfum við ekki nema rétt rúman sólarhring til stefnu.“ Forsenduákvæði kjarasamninganna brast við verðbólgumælinguna í ágúst og hefur VR því þar til á morgun til að segja upp kjarasamningunum. Fyrr í vikunni taldi Halla að meiri líkur en minni væru á að samningum yrði sagt upp en segir hún núna að það sveiflist til og frá. „Þegar að ekki er samtal í gangi og ekki koma fram einhver viðbrögð við því sem við höfum fram að færa dögum og jafnvel vikum saman þá auðvitað missir maður svolítið trúna. Við höfum stuttan tíma til stefnu.“
Kjaramál Stéttarfélög Vinnumarkaður Verðlag Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira