Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu Birgir Olgeirsson skrifar 6. október 2026 14:29 Diljá Mist skoraði á ráðherra barnamála og heilbrigðismála. Vísir/Vilhelm Fólki sem hefur búið á Íslandi í þrjú ár eða lengur yrði gert að greiða sjálft fyrir túlkun erlendra tungumála hjá stjórnvöldum og í heilbrigðisþjónustu, samkvæmt nýju frumvarpi tíu þingmanna Sjálfstæðisflokksins.
Diljá Mist Einarsdóttir er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins sem lagt var fram á Alþingi í gær, 5. október. Hún segir: „Ég hef tekið þessi mál upp á Alþingi með reglubundnum hætti. Það ætti ekki að vera almennur fortakslaus réttur útlendinga að fá túlk á kostnað skattgreiðenda í öllum samskiptum við hið opinbera, en við sjáum að kostnaður við túlkaþjónustu hefur vaxið mjög mikið undanfarin ár á ýmsum sviðum. Við leggjum því til meginreglu um innheimtu kostnaðar þegar túlkaþjónusta er veitt einstaklingum sem búið hafa á Íslandi í þrjú ár eða lengur. Það er sanngjörn krafa og að danskri fyrirmynd," segir Diljá Mist um frumvarpið. Greiðsluskylda næði líka til sjúklinga Samkvæmt gildandi lögum um réttindi sjúklinga á að tryggja sjúklingi sem ekki talar íslensku túlkun á upplýsingum um heilsufar og meðferð. Tillaga Diljár Mist um gjaldtöku eftir þriggja ára búsetu nær einnig til sjúklinga sem þurfa túlkun erlendra tungumála.Vísir/Lýður Frumvarpið myndi bæta greiðsluskyldu við það ákvæði fyrir þá sem hafa búið hér í þrjú ár eða lengur. Ráðherra fengi heimild til að setja reglur um innheimtuna. Kostnaður 1,6 milljarðar á fimm árum Í svari Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Snorra Mássonar, sem birt var á Alþingi 4. september 2025, kemur fram að heildarkostnaður heilbrigðisráðuneytisins og stofnana þess vegna túlkaþjónustu hafi verið um 1,6 milljarðar króna samtals á árunum 2020 til 2024. Í svarinu er tekið fram að ráðuneytið hafi ekki upplýsingar frá einkarekinni þjónustu. Undanþágur vegna laga og alþjóðlegra skuldbindinga Almenna reglan um innheimtu ætti samkvæmt frumvarpinu ekki við þegar annað leiðir af lögum eða alþjóðlegum skuldbindingum Íslands. Í greinargerðinni segir sérstaklega að ekki yrði hreyft við reglum um túlkaþjónustu í sakamálum. Breytingarnar taka til erlendra tungumála. Í gildandi lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls er ríki og sveitarfélögum skylt að tryggja öllum sem þess þurfa þjónustu á íslensku táknmáli. Verði frumvarpið samþykkt óbreytt er lagt til að lögin taki gildi 1. janúar 2027. Sambærileg tillaga í borgarstjórn Sambærileg tillaga Miðflokksins um tímamörk gjaldfrjálsrar túlkaþjónustu var rædd í borgarstjórn Reykjavíkur 29. september og vísað til borgarráðs. Þar var lagt til að ríkið endurskoðaði reglurnar án þess að ákveðinn árafjöldi væri tilgreindur. Frumvarp Sjálfstæðismanna kveður hins vegar á um gjaldtöku eftir þriggja ára búsetu.
Alþingi Innflytjendamál Rekstur hins opinbera Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Fleiri fréttir Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Sjá meira