Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Freyja Þórisdóttir skrifar 4. október 2026 07:35 Lögreglan sinnir margs konar aðstoðarbeiðnum sem og almennu eftirliti. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörgu að snúast í gærkvöldi og í nótt en á varðsvæði stöðvar tvö, sem nær yfir Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, barst lögreglunni tilkynning um hugsanlegan ölvunarakstur. Ökumaðurinn hafði ekið bifreið sinni yfir kant og upp á gras. Þegar laganna verði bar að garði hafði bifreiðinni svo verið ekið á ljósastaur en ökumaðurinn var handtekinn grunaður um að aka undir áhrifum áfengis sem og ávana- og fíkniefna.
Er þetta meðal þeirra 68 mála sem voru skráð í kerfi lögreglunnar frá klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00. Það gistu í það minnsta þrír í fangageymslu lögreglunnar fram á morgun. Í miðbæ Reykjavíkur voru tveir dyraverðir handteknir eftir að þeir veittust að manneskju með höggum og spörkum og voru þeir látnir lausir að lokinni skýrslutöku. Lögreglan á Stöð eitt sinnti einnig tveimur útköllum þar sem óskað var eftir aðstoð við að vísa óvelkomnum aðila á dyr, annars vegar út af matsölustað og hins vegar út úr verslun. Nokkrar tilkynningar bárust lögreglunni um að einstaklingur, sem var talinn vera ofurölvi, væri að trufla umferð með því að reyna að fara fyrir bíla og var sá með hótanir við gangandi vegfaranda. Einstaklingurinn var vistaður í fangaklefa vegna gruns um brot á lögreglusamþykkt. Þá barst lögreglunni á stöð þrjú, sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti, tilkynning þar sem tilkynnandi kvað einstakling vera að sitja fyrir sér þar sem einstaklingurinn taldi sig eiga eitthvað sökótt við tilkynnanda. Einstaklingnum var gert að láta af háttsemi sinni og var honum vísað brott af vettvangi. Á varðsvæði stöðvar fjögur, sem nær yfir norðanverða höfuðborgina auk Mosfellsbæjar, var tilkynnt um einstakling sem sæti í ökumannssæti bifreiðar og lægi fram á stýrið. Lögreglumenn athuguðu með ástand aðilans sem reyndist hafa fundið til mikillar þreytu og því lagt sig.
Lögreglumál Reykjavík Garðabær Hafnarfjörður Mosfellsbær Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Sjá meira