Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Bjarki Sigurðsson skrifar 1. október 2026 16:38 Leigubílar í miðbæ Reykjavíkur. Vísir/KTD Innviðaráðherra hefur gert veigamiklar breytingar á reglum um leigubifreiðaþjónustu. Meðal breytinga er að próftaka fer nú fram án utanaðkomandi aðstoðar, leigubifreiðastöðvar eiga að halda rafræna skrá yfir allar seldar ferðir og munu leigubifreiðar fá litaðar númeraplötur. Reglugerðarbreytingin er sögð liður í heildarendurskoðun á lagaumhverfi fyrir leigubifreiðaþjónustu samkvæmt tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Markmiðið með breytingunum er að tryggja skilvirka og örugga þjónustu fyrir neytendur og efla eftirlit með leigubifreiðaþjónustu. Breytingarnar taka allar gildi strax, fyrir utan þær er varða litaðar númeraplötur. „Hver stöð setur bílstjórum sínum nú skýrar hátternisreglur og tekur á brotum. Öllum atvikum er haldið til haga í atvikaskrá á sama tíma og eftirlitsaðilar fá rauntímaaðgang að ferðaskrám. Jafnframt verða heimildir eftirlitsaðila til sviptinga auknar svo þeir sem brjóta ítrekað eða alvarlega af sér missi leyfið. Upplýsingagjöf til farþega verður sömuleiðis bætt þar sem kröfur um sýnileika merkinga eru hertar og verðskrá þarf að vera stærri og skýrari,“ er haft eftir Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra í tilkynningunni. Eyjólfur Ármannsson er innviðaráðherra. Vísir Eyjólfur segist hvergi nærri hættur og að fleiri breytingar séu á teikniborðinu. „Enginn á að þurfa að efast um að hann sé að stíga upp í leigubíl sem sætir ströngu eftirliti bæði stöðvar og Samgöngustofu,“ segir í tilkynningunni. Hér fyrir neðan má sjá lista með öllum helstu breytingum.
Reglugerðarbreytingin er sögð liður í heildarendurskoðun á lagaumhverfi fyrir leigubifreiðaþjónustu samkvæmt tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Markmiðið með breytingunum er að tryggja skilvirka og örugga þjónustu fyrir neytendur og efla eftirlit með leigubifreiðaþjónustu. Breytingarnar taka allar gildi strax, fyrir utan þær er varða litaðar númeraplötur. „Hver stöð setur bílstjórum sínum nú skýrar hátternisreglur og tekur á brotum. Öllum atvikum er haldið til haga í atvikaskrá á sama tíma og eftirlitsaðilar fá rauntímaaðgang að ferðaskrám. Jafnframt verða heimildir eftirlitsaðila til sviptinga auknar svo þeir sem brjóta ítrekað eða alvarlega af sér missi leyfið. Upplýsingagjöf til farþega verður sömuleiðis bætt þar sem kröfur um sýnileika merkinga eru hertar og verðskrá þarf að vera stærri og skýrari,“ er haft eftir Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra í tilkynningunni. Eyjólfur Ármannsson er innviðaráðherra. Vísir Eyjólfur segist hvergi nærri hættur og að fleiri breytingar séu á teikniborðinu. „Enginn á að þurfa að efast um að hann sé að stíga upp í leigubíl sem sætir ströngu eftirliti bæði stöðvar og Samgöngustofu,“ segir í tilkynningunni. Hér fyrir neðan má sjá lista með öllum helstu breytingum. Samgöngustofu ber að framkvæma árlegt eftirlit með leyfishöfum, koma upp sérstöku áhættumatskerfi og sinna frekara eftirliti á grundvelli þess. Samgöngustofu er falið að gera árlega skýrslu um framkvæmd eftirlits. Próftaka fer fram án utanaðkomandi aðstoðar. Samgöngustofu ber að hafa árlegt eftirlit með viðurkenndum námskeiðshöldurum. Leigubifreiðastöðvar eiga að setja og birta eigin hátternisreglur. Þeim ber einnig að halda rafræna atvikaskrá um frávik í starfsemi, brot á lögum og kvartanir neytenda. Ítarlegri kröfur um framsetningu á verðskrá og sýnileika á leyfisskírteini í leigubílum. Leigubifreiðastöðvar skulu halda rafræna skrá yfir allar seldar ferðir og upplýsingar úr henni skulu vera eftirlitsaðilum aðgengilegar í rauntíma í gegnum örugga vefgátt. Leyfishafa ber að tilkynna Samgöngustofu um úrskurði eftirlitsaðila, t.d. Neytendastofu, vegna lögbrota. Slík brot geta jafnframt talist brot á góðum viðskiptaháttum og leitt til leyfissviptingar Leigubifreiðar verði auðkenndar með sérstöku skráningarmerki (lituðum númeraplötum). Sú breyting tekur gildi 1. apríl 2027 og sérstök reglugerð verður sett um nýju skráningarmerkin.
Samgöngustofu ber að framkvæma árlegt eftirlit með leyfishöfum, koma upp sérstöku áhættumatskerfi og sinna frekara eftirliti á grundvelli þess. Samgöngustofu er falið að gera árlega skýrslu um framkvæmd eftirlits. Próftaka fer fram án utanaðkomandi aðstoðar. Samgöngustofu ber að hafa árlegt eftirlit með viðurkenndum námskeiðshöldurum. Leigubifreiðastöðvar eiga að setja og birta eigin hátternisreglur. Þeim ber einnig að halda rafræna atvikaskrá um frávik í starfsemi, brot á lögum og kvartanir neytenda. Ítarlegri kröfur um framsetningu á verðskrá og sýnileika á leyfisskírteini í leigubílum. Leigubifreiðastöðvar skulu halda rafræna skrá yfir allar seldar ferðir og upplýsingar úr henni skulu vera eftirlitsaðilum aðgengilegar í rauntíma í gegnum örugga vefgátt. Leyfishafa ber að tilkynna Samgöngustofu um úrskurði eftirlitsaðila, t.d. Neytendastofu, vegna lögbrota. Slík brot geta jafnframt talist brot á góðum viðskiptaháttum og leitt til leyfissviptingar Leigubifreiðar verði auðkenndar með sérstöku skráningarmerki (lituðum númeraplötum). Sú breyting tekur gildi 1. apríl 2027 og sérstök reglugerð verður sett um nýju skráningarmerkin.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Leigubílar Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Sjá meira