Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 1. október 2026 15:05 Inga segist ekkert ætla að tjá sig um málið. Vísir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra, neitaði að svara spurningum fréttamanns þegar hún var spurð út í mál Guðmundar Inga Kristinssonar. Hún sagðist þó ekki hafa komið nálægt umdeildum skilaboðum sem fyrrverandi aðstoðarkona Guðmundar Inga sendi á hann.
Frá því að Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, steig fram og skilaboð milli hans og fyrrverandi aðstoðarkonu hans voru birt hefur Inga ekki svarað fyrirspurnum fréttastofu um viðtal vegna málsins. Þá hafa aðstoðarmenn hennar ýmist ekki svarað fréttamönnum eða hafnað viðtalsbeiðnum. Inga tjáði sig um málið við Ríkisútvarpið þann 17. september, sama dag og Guðmundur steig fram. Guðmundur sagðist hafa sagt af sér vegna samskipta við Ingu. Þá varð Inga ekki við viðtalsbeiðnum fréttastofu. Engu svarað en hvatti formann til að stíga í eigin „skítapott“ Eftir að skilaboð sem aðstoðarkona Guðmundar sendi á hann voru birt hefur Inga ekki veitt neinum fjölmiðlum viðtöl og ekkert svarað fyrir málið. Inga ræddi málið hins vegar á Alþingi sama dag, þegar stjórnarandstöðuþingmenn kröfðu hana ítrekað um svör. Þá ætlaði allt um koll að keyra. „Ég held að þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott og reyna að hræra aðeins upp í honum í stað þess að koma hér fram með dylgjur og ósannindi,“ sagði Inga meðal annars við formann Sjálfstæðisflokksins. Ávarpaði MR-inga en vildi ekki ræða við fréttamann Fréttamaður hitti á Ingu í Menntaskólanum í Reykjavík í dag þar sem 180 ára afmæli skólans var fagnað. Hún neitaði að svara spurningum fréttamanns á leið sinni frá skólabyggingunni og að ráðherrabíl sínum en sagðist þó ekki hafa haft hugmynd um skilaboð sem fyrrverandi aðstoðarkona Guðmundar Inga sendi ráðherranum og innihéldu orðin „afsögn eða stríð.“ Inga Sæland ávarpaði gesti á 180 ára afmælisdegi.Vísir/EinarÁrna „Ég hef ekki hugmynd um það hugtak og hef aldrei nokkurn tímann komið nálægt því og aldrei séð þau skilaboð fyrr en ég sá þau á prenti.“ Þá sagði hún að ekki væri hægt að bóka viðtöl við hana vegna málsins.
Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar Flokkur fólksins Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Sjá meira