Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 29. september 2026 23:33 Maðurinn hefur gerst sekur um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis sjö sinnum. Vísir/Vilhelm Karlmaður var í dag dæmdur í nítján mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna. Þar að auki var ævilöng svipting hans á ökuréttindum áréttuð en áður hefur maðurinn gerst sekur um akstur sviptur ökuréttindum sex sinnum.
Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málið var höfðað með tveimur ákærum. Fyrri ákæran var gefin út í október í október 2024 á hendur manninum fyrir brot á umferðarlögum með því að aka bíl sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna í Reykjavík en í blóði hans mældist THC. Seinni ákæran var gefin út í júlí 2026 fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot en þá ók hann í Kópavogi, einnig án ökuréttinda, og mældist kókaín í blóði hans. Einnig fannst tæpt gramm af kókaíni í fórum hans við leit lögreglu. Málin voru sameinuð í þinghaldi þann 9. september síðastliðinn. Ákærði játaði brot sín skýlaust og horfði það honum til málsbóta. Verjandi krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa. Maðurinn á að baki sér sakaferil sem nær aftur til ársins 2012. Frá þeim tíma hefur ákærða ítrekað verið gerð refsing vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna og áfengis, auk aksturs sviptur ökurétti. Meðal annars var hann dæmdur í átta mánaða fangelsi í mars 2021 fyrir akstur undir áhrifum kókaíns og THC og án ökuréttinda. Þá var hann sviptur ökuréttindum ævilangt. Sjö sinnum gerst sekur um akstur undir áhrifum Við ákvörðun refsingar var það lagt til grundvallar að maðurinn hefði í sjötta skipti gerst sekur um akstur sviptur ökuréttindum en í sjöunda sinn um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var því dæmdur í nítján mánaða fangelsi og var ævilöng svipting ökuréttar hans áréttuð. Sömuleiðis var tæpa grammið af kókaíni gert upptækt. Ekki voru talin efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Fíkniefnabrot Umferðaröryggi Dómsmál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Sjá meira