Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 25. september 2026 19:43 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir í málinu. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið ákærður fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn barnungri stjúpsystur sinni á árunum 2014 og 2015. Maðurinn er meðal annars sakaður um að hafa nauðgað stúlkunni í fjölskylduferð og síðar á heimili sínu.
Þetta kemur fram í ákæru héraðssaksóknara, sem gefin var út 2. júlí síðastliðinn. Ákæran er í fjórum liðum og er maðurinn ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni í þremur þeirra en nauðgun í þeim fjórða. Málið var þingfest á þriðjudaginn. Faðir ákærða og móðir brotaþola voru í sambúð þegar brotin áttu sér stað. Samkvæmt ákærunni á maðurinn að hafa brotið kynferðislega gegn stúlkunni í nokkur skipti í fjölskylduferð í maí og júní árið 2014. Hann er meðal annars sakaður um að hafa áreitt stúlkuna kynferðislega þegar þau lágu saman í rúmi og í eitt skipti læst sig og stúlkuna inni á baðherbergi þar sem hann á að hafa káfað á henni og stungið fingri í leggöng hennar. Manninum er jafnframt gefið að sök að hafa haft samræði við stúlkuna án samþykkis á þáverandi heimili sínu í júlí 2014. Síðasti ákæruliðurinn varðar meint brot sumarið 2015, þegar maðurinn er sakaður um að hafa haft endaþarmsmök við stúlkuna án samþykkis og með ólögmætri nauðung á heimili sínu. Í ákærunni segir að maðurinn hafi ekki látið af háttseminni þrátt fyrir að stúlkan hafi grátið og reynt með orðum að fá hann til að hætta. Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist fyrir hönd stúlkunnar að honum verði gert að greiða henni fjórar milljónir króna í miskabætur, auk vaxta og málskostnaðar.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Sjá meira