Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Kjartan Kjartansson skrifar 11. ágúst 2026 08:38 Rigning gæti varpað skugga á almyrkvagleði fólks á suðvesturhorninu. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir rigningu á höfuðborgarsvæðinu á meðan að almyrkvi verður á sólu síðdegis á morgun. Veðurfræðingur segir eitthvað rof kunna að verða í skýjum á Vestfjörðum og norðanlands.
Veðurstofan spáir skýjuðu veðri með rigningu á vestanverðu landinu á sólmyrkvatímanum, sérstaklega suðvestantil. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, segir í færslu á Facebook allar líkur á að seinna skilakerfi lægðar suðvestur af landinu verði yfir Suður- og Suðvesturlandi síðdegis á morgun. Blika geri þannig ráð fyrir 0,1-0,2 millímetra úrkomu í Reykjavík á milli klukkan fimm og sex síðdegis á morgun, einmitt á þeim tíma sem alskugginn fer yfir borgina. Ekki á að vera eins þungbúið norðvestantil. Veðurstofan telur frekar litlar líkur á að göt myndist í skýjum til þess að sjá sólina myrkvast. Einar segir tunglmyndaspá gefa til kynna eitthvað rof í skýjum við Breiðafjörð, einkum á Vestfjörðum og norðanlands. Það sé nokkuð algengt við veðuraðstæður sem þessar. Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að jafnvel þótt sólin sæist ekki fyrir skýjum fyndi fólk fyrir honum. „Þú munt alltaf finna fyrir því að hitastigið lækkar, þú munt alltaf finna fyrir myrkvanum og heyra í honum,“ sagði hann.
Veður Almyrkvi 12. ágúst 2026 Sólin Tunglið Reykjavík Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira