Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Ástralska leikkonan Nicole Kidman birti í nótt myndir úr heimsókn sinni til Íslands. Hún sótti landið heim í síðustu viku og var í hópi þeirra sem upplifðu almyrkvann hér á landi síðastliðinn miðvikudag, 12. ágúst. Lífið 19.8.2026 07:17
„Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Óperusöngkonan Alexandra Chernyshova var fengin til þess að syngja fyrir hóp ferðamanna ofan í Vatnshelli á Snæfellsnesi. Henni til mikillar undrunar var Hollywood-stjarnan Nicole Kidman meðal hópsins. Lífið 18.8.2026 13:45
Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Afgerandi fall var í notkun á köldu vatni á meðan sólmyrkvinn gekk yfir í síðustu viku. Tölur frá Veitum sýna að fólk hélt í sér og eru þær ágætis vísbending um að þorri fólks hafi fylgst með atburðinum. Innlent 17.8.2026 19:57
Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Tónlistarhátíðin Echolalia – Sólmyrkvahátíð Bjarkar og Smekkleysu fór fram á Víðistaðatúni í Hafnarfirði í gær. Kona sem býr í nágrenni við Víðistaðatún lýsir vonbrigðum og reiði yfir tónlistarhátíðinni. Hún hafi rofið dýrmæta kyrrð sem átti að ríkja á degi sem íbúar hverfisins höfðu leyft sér að hlakka til árum saman. Innlent 13. ágúst 2026 16:32
Umferð um Flókalund 430 prósentum meiri en vanalega Umferð um Flókalund á Vestfjörðum var 430 prósentum meiri en vanalega. Á sama tíma jókst umferð aðeins um 1,5 prósent á Strandarheiði og var minni en á venjulegum degi við Gauksmýri. Töluverð umferð var á Vesturlandi og Vestfjörðum í gær vegna almyrkva síðdegis. Innlent 13. ágúst 2026 15:32
Allir í skýjunum með almyrkvann: Himnanir opnuðust á hárréttum tíma Mikil hamingja ríkir í Snæfellsbæ eftir almyrkva sólu í gær að sögn bæjarstjórans. Hann telur að allt að tuttugu þúsund ferðamenn hafi heimsótt bæjarfélagið síðustu daga. Allar hendur séu upp á dekki til að gera upplifun þeirra góða. Innlent 13. ágúst 2026 14:19
Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Ansi löng röð hefur myndast í öryggisleit á Keflavíkurflugvelli í morgun. Talið er að fjöldi ferðalanga sem kom hingað til lands til að bera almyrkva á sólu augum í gær, sé nú á leið úr landi. Innlent 13. ágúst 2026 10:33
Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Rokkarinn Óskar Logi Ágústsson fór á skeljarnar á Álftanesi og bað kærustu sinnar, söngkonunnar Valdísar Eiríksdóttur, meðan almyrkvi á sólu stóð hæst. Hún sagði já og úr varð ógleymanleg stund. Lífið 13. ágúst 2026 08:55
Bíll við bíl á Snæfellsvegi Umferðin er farin að þyngjast á Vesturlandi en fólk virðist lagt af stað heim eftir almyrkvaferðalög. Löng bílaröð hefur myndast austan við Vegamót á Snæfellsvegi og við Borgarbyggð. Innlent 12. ágúst 2026 20:48
Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Margt var um manninn bæði við Ægissíðu í Vesturbæ Reykjavíkur og á Seltjarnarnesi. Anton Brink ljósmyndari var á staðnum og myndaði mannfjöldann. Innlent 12. ágúst 2026 20:03
Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Margir spyrja sig eflaust hvað eigi að gera við gleraugun nú þegar almyrkvanum er lokið. Á að geyma þau? Henda þeim? Ef svo, hvernig á að flokka þau? Innlent 12. ágúst 2026 19:49
Bein útsending: Almyrkvi á sólu Líkt og alþjóð veit mun almyrkvi á sólu verða á vestanverðu landinu í dag. Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá þessum atburði í spilaranum hér fyrir neðan. Innlent 12. ágúst 2026 16:02
Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins, var lokaður inni í herbergi síðast þegar almyrkvi var á Íslandi fyrir rúmum sjötíu árum, en þá mun hann hafa verið fimm ára gamall. Lífið 12. ágúst 2026 15:45
Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Gestir á Eclipse tónlistarhátíðinni á Hellissandi eru öllu viðbúin en vongóð um að það sjáist til sólar á meðan sólmyrkva stendur. Þúsundir innlendra og erlendra gesta eru nú samankomnar á Hellissandi á tónlistarhátíðinni Iceland Eclipse. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður og Bjarni Einarsson tökumaður hafa rætt við gesti í dag. Innlent 12. ágúst 2026 14:49
Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki Ekki nóg með það að almyrkvi á sólu sjáist frá Íslandi heldur verður mögulega hægt að sjá fjölda stjörnuhrapa eftir miðnætti. Innlent 12. ágúst 2026 13:54
„Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, er tilbúinn í daginn sama hvernig viðrar nú seinnipartinn. Hann ætlar að njóta sjónarspilsins heima hjá sér með fjölskyldu og vinum í myrkvapartýi sem hann vonar að endi ekki sem erfidrykkja. Innlent 12. ágúst 2026 13:31
Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Ef umferð snareykst í Hvalfjarðargöng gæti þurft að loka þeim tímabundið í dag. G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir umferð ganga vel og hún hafi dreifst vel síðustu daga. Hann eigi ekki endilega von á því að Vegagerðin muni þurfa að grípa til lokana en það geti gerst. Innlent 12. ágúst 2026 13:05
Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Almyrkvinn 12. ágúst 2026 gengur yfir vestasta og þéttbýlasta svæði landsins, yfir Vestfirði, Snæfellsnes, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga. Hann nemur fyrst land á Íslandi við Straumnesvita á Hornströndum sautján mínútur í sex að kvöld til en þar stendur hann yfir í tæpa eina og hálfa mínútu. Myrkvinn stendur lengst yfir við Látrabjarg eða í tvær mínútur og þrettán sekúndur. Innlent 12. ágúst 2026 11:30
Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Fjöldi fólks á Vestfjörðum margfaldast í dag þegar ferðamenn streyma á svæðið til að fylgjast með almyrkvanum. Mest er álagið á sunnanverðum fjörðunum en Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum, segir viðbúnað ganga samkvæmt áætlun. Innlent 12. ágúst 2026 10:44
Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Lögreglan á Vestfjörðum segir að um hádegisbil megi búast við því að hámarksfjölda ökutækja verði náð á Bjargtöngum og Rauðasandi. Áfram er nóg af stæðum á Breiðavík og líkur á að svo verði fram á daginn samkvæmt tilkynningu. Innlent 12. ágúst 2026 10:43
Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Arna Margrét Arnardóttir, formaður svæðisstjórnar Landsbjargar, er í Breiðuvík þar sem búið er að koma upp vettvangsstjórn fyrir björgunarsveitir á svæðinu. Hún segir morguninn byrja vel í umferðarstýringu. Einstefna er komin á. Innlent 12. ágúst 2026 10:21
Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Ferðaþjónustufyrirtækið Icelandia flytur í dag yfir 1.200 erlenda ferðamenn í 24 rútum út á Snæfellsnes til þess að fylgjast með almyrkva á sólu, einum stærsta viðburði sinnar tegundar hér á landi um árabil. Innlent 12. ágúst 2026 08:43
Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Vegagerðin hefur tekið saman þær takmarkanir sem verða á vegum landsins vegna almyrkvans, síðdegis í dag miðvikudaginn 12. ágúst. Vegfarendur eru vegfarendur beðnir um að hafa í huga að búist er við mikilli umferð á vegum landsins, gefa sér góðan tíma til ferðalaga, skipuleggja sig vel og leggja tímanlega af stað. Innlent 12. ágúst 2026 07:32
Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt í dag, fimm til þrettán metrum á sekúndu, og hvassast við suðurströndina. Spáð er rigningu eða skúrir víða um land, en lengst af þurrt norðanlands fram eftir degi. Veður 12. ágúst 2026 07:06