Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. ágúst 2026 10:37 Siggi stormur fór yfir verslunarmannahelgarveðrið. Vísir/Vilhelm Siggi stormur veðurfræðingur segist ekki vera að hugsa út í tekjur útihátíða þegar hann spáir fyrir um veðrið fyrir stærstu ferðahelgar ársins. Veðurspá hans fyrir verslunarhelgina féll í grýttan jarðveg hjá skipuleggjendum útihátíða á Norðurlandi en Siggi segir spána sína hafa staðist í öllum meginatriðum. „
Auðvitað þegar maður leggur upp í það að búa til veðurspá þá getur maður ómögulega verið að hugsa um einhverja peninga norður í landi eða einhverjar hátíðir hér og þar. Maður fer ekki að sveigja veðurspár til þess að þóknast eða reyna að gera þær eitthvað betri fyrir þann sem er að reka einhverja hátíð,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur sem er landsmönnum kunnur sem Siggi Stormur. Siggi spáði fyrir um veðrið um verslunarmannahelgina þar sem hann sagði ljóst að sólin myndi leika við landsmenn á sunnan- og vestanverðu landinu á meðan væri rigning í kortunum annars staðar. Spáin lagðist illa í skipuleggjendur útihátíða á Norðurlandi sem sögðu ótímabærar veðurspár hafa mikil áhrif á tekjur hátíðanna. Siggi var til tals um spána í Bítinu á Bylgjunni þar sem hann sagðist fara eftir vísindunum. „Það verð ég að gera, annars er ég ótrúverðugur og það gæti komið manni í koll ef maður fer að hnika til spám, það kemur ekki til greina eins og í þessi tilviki sem þarna er um að ræða þá verð ég nú að segja að mánudagsspáin hljóðaði upp á að hann færi í norðanátt, það yrði úrkoma og svalt fyrir norðan.“ Hann segist aldrei hafa nefnt Akureyri til að mynda heldur talað um Norðausturland í heild sinni. Þegar gerðar eru slíkar langtímaveðurspár sé litið til stórra svæða og dregnar eins konar meginlínur um hvernig veðrið verði líklegast. „Spáin stóðst í öllum meginatriðum,“ segir Siggi. „Þannig að fólk geti svona áttað sig á því hvert það gæti farið. En á hinn bóginn held ég að allir Íslendingar viti það, eða þeir sem eitthvað spá í spilin, að þeir náttúrulega fylgja síðan spánum eftir því sem nær dregur.“ Hann líti til að mynda til veðurspáa bandarísku veðurstofnunarinnar og Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar. „Það lá fyrir í þessum stóru kerfum að þarna yrði úrkomusvæði yfir. Ef þið hafið fylgst með veðurfréttum á Rúv þá var þetta nokkuð myndarlegt úrkomusvæði sem átti að ganga inn í Norðausturlandið. Það var hins vegar ekki alveg eins nákvæmt þar, eins og ég orðaði það, ég talaði þó um Norðausturland en það náði þarna inn á meginhluta Norðausturlands,“ segir hann. „Við getum farið í svona eltingarleiki en þegar fólk er að reyna að byrja móta sér skoðanir á því hvert það ætlar þá vill það fá veðurspá.“
Veður Bylgjan Bítið Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Fleiri fréttir Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Sjá meira