Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. júlí 2026 20:00 Magnús Ragnarsson aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi segir fjóra hafa verið í teymi lögreglunnar að kljást við vasaþjófnað. Vísir/Lýður Valberg Í hverri viku berast tugir tilkynninga um vasaþjófnað við ferðamannastaði og verulegar fjárhæðir eru oft undir að sögn lögreglu. Sex voru handteknir á Suðurlandi í gær og ferðaþjónustuaðilar við Seljalandsfoss segja þjófnað daglegan atburð við fossinn.
Í dag var margmenni við Seljalandsfoss í dag og staðir eins og göngubrú við fossinn eru vinsælir meðal vasaþjófa. Enda ferðamenn ekki varir um sig fyrir framan fossinn og ekki heldur á öðrum fjölförnum ferðamannastöðum að sögn lögreglu sem greip þrjá glóðvolga vasaþjófa við fossinn í gær, í sérstakri aðgerð óeinkennisklæddra lögreglumanna en lögregla hefur reglulega staðið vaktina með þeim hætti við nokkra ferðamannastaði í sumar. Magnús Ragnarsson varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi segir vasaþjófana þaulskipulagða. „Þetta er ákveðinn tími dags, þetta er háannnatíminn þar sem mest er af fólki, þá eru þeir að senda hópa, það eru að fara hópar saman á þessa staði og eru í svona tvo þrjá tíma á hverjum stað og við erum að reyna að stýra inn á það að vera með menn þar innan um ferðamennina að sjá þá og spotta þá út.“ Um sé að ræða erlenda ríkisborgara sem gagngert séu staddir hér á landi til að stunda vasaþjófnað. Verulegar upphæðir séu teknar af stolnum kortum og lögregla fái tugi tilkynninga í hverri viku um vasaþjófnað á ferðamannastöðum líkt og frá Seljalandsfossi. Þetta rímar við upplifun ferðaþjónustuaðila á svæðinu. „Það hefur verið mjög mikið, mjög mikið af fólki kemur hingað og segir að það hafi týnt veskinu sínu eða hvað sem er.“ Kemur þetta reglulega upp? „Já, nokkrum sinnum á dag. Tvisvar, þrisvar á dag.“ Rútubílstjóri segist oft hafa orðið vitni að ferðamönnum lenda í vasaþjófnaði. „Það var í einni rútunni þar sem þrjár manneskjur týndu veskjunum sínum inni í búðinni á Geysi.“ Lögregla biðlar til leiðsögumanna og annarra innan ferðaþjónustunnar um að benda ferðamönnum á að fara varlega. Ferðamenn við Seljalandsfoss höfðu ekkert heyrt af málinu en eitt par hafði sjálft lent í vasaþjófnaði í miðbæ Reykjavíkur. Vissir þú að það hafa verið nokkur tilfelli af vasaþjófnaði hér við þennan foss? Nei, ég vissi það ekki. En við lentum í atviki í Reykjavík þar sem við urðum fyrir vasaþjófnaði. Í alvöru? Já, fyrir utan vinsælt bakarí sem ég ætla ekki að nafngreina. Hvað gerðist? Vinur okkar týndi veskinu sínu. Hann skildi það eftir á afgreiðsluborðinu og einhver tók það og reyndi strax að nota það til að kaupa vörur fyrir 3000 dollara.
Lögreglumál Ferðaþjónusta Þingvellir Bláskógabyggð Rangárþing eystra Geysir Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Sjá meira