Samþykktu heimild til að svipta flóttamenn vernd Kjartan Kjartansson skrifar 16. febrúar 2026 15:58 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra lagði fram frumvarpið um afnám verndar sem varð að lögum í dag. Vísir/Lýður Valberg Stjórnarfrumvarp sem veitir stjórnvöldum heimild til að svipta flóttamenn vernd auk dvalar- og atvinnuleyfi brjóti þeir af sér var samþykkt mótatkvæðalaust á Alþingi í dag. Einnig verður hætt að veita dvalarleyfi þegar mál hælisleitenda dragast á langinn.
Lög um afturköllun verndar veitir íslenskum stjórnvöldum heimild til þess að afturkalla alþjóðlega vernd flóttamanna sem hafa fengið endanlegan dóm fyrir alvarleg afbrot eða ef gildar ástæður er taldar fyrir því að álita þá hættulega öryggi ríkisins. Dvalar- og atvinnuleyfi fellur niður ef flóttamaður er sviptur vernd samkvæmt lögunum. Einnig er hægt að beita heimildinni ef afbrot eru endurtekin og þau talin ógna „allsherjarreglu eða almannahagsmunum“. Ekki er skýrt sérstaklega hvaða afbrot eru talin ógna allsherjarreglu eða almannahagsmunum. Markmið laganna var sagt að samræma lög um útlendinga við löggjöf á Norðurlöndunum þar sem Ísland væri eina landið sem hefði ekki heimild til að afturkalla alþjóðlega vernd í lögum. Þá væri ákvæði laga um að dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða væri veitt þegar hælisleitandi hefði ekki fengið niðurstöðu í máli sínu innan tiltekins tíma séríslenskt. „Afbrot hafa afleiðingar,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, þegar hún gerði grein fyrir atkvæði sínu. „Verstu píratarnir“ múlbundnir Stjórnvöld víða í vestrænum ríkjum herða nú innflytjendalöggjöf sína undir þrýstingi frá fjarhægriflokkum sem vex ásmegin í skoðanakönnunum og kosningum víða. Miðflokkurinn, sem mælist nú með í kringum fimmtungsfylgi í skoðanakönnunum, hefur sérstaklega talað fyrir stórhertri innflytjendastefnu. Þingmenn hans og Sjálfstæðisflokksins vildu að gengið yrði lengra í frumvarpinu og stjórnvöldum yrði gert skylt en ekki aðeins heimilt að afturkalla vernd flóttamanna ef þeir brytu af sér. Báðir flokkar studdu engu að síður frumvarp ríkisstjórnarinnar. Breytingartillögur þessa efnis voru felldar. Diljá Mist sagði þverpólitíska sátt um frumvarpið en skaut á sálugan þingflokk Pírata í umræðum um atkvæðagreiðsluna.Vísir/Vilhelm Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fagnaði þverpólitískri sátt um frumvarpið og að tekist hefði að „múlbinda verstu píratana“ í stjórnarliðinu. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hreikti sér af aðgerðum ríkisstjórnarinnar gegn erlendum glæpamönnum í aðsendi grein á Vísi um helgina. „Ríkisstjórnin tekur hvert skrefið á fætur öðru til að stemma stigu við glæpum í landinu,“ skrifaði ráðherrann og vísaði til frumvarp síns um breytingar á lögum um Schengen-upplýsingakerfið. Schengen-samstarfið hefur verið þyrnir í augum margra þeirra sem tala fyrir hertri innflytjendastefnu. Samstarfið nær til EFTA-ríkjanna og meirihluta Evrópusambandsríkja og felst annars vegar í afnámi á landamæraeftirliti innan svæðisins til að greiða fyrir frjálsri för innan ESB og hins vegar í samvinnu lögreglu í ríkjunum.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Innflytjendamál Flóttafólk á Íslandi Flóttamenn Hælisleitendur Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Sjá meira