Halla slær á putta handboltahetjunnar Jakob Bjarnar skrifar 22. janúar 2026 11:08 Halla Gunnarsdóttir sló á putta Viktors Gísla; veikindadaga þyrfti að taka hátíðlega og nota einungis þegar svo ber undir. Hins vegar gæti fólk tekið út orlofsdaga, skotist til Malmö og stutt sitt lið. Vísir/Anton/Vilhelm Halla Gunnarsdóttir formaður VR slær góðlátlega á putta Viktors Gísla Hallgrímssonar markmanns íslenska landsliðsins sem vildi fá alla til Malmö þar sem íslenska liðið leikur nú í undanriðli. Fyrsti leikurinn er á morgun og Viktor taldi ekki mikið mál að fólk nýtti sér veikindadagana til að skjótast út.
Ljóst er að íslenska handknattleiksliðið er hátt uppi eftir velgengni í undanriðlinum. Þeir fara nú í milliriðil með fullt hús stiga. En hetja liðsins, Viktor Gísli Hallgrímsson markmaður, snerti óvænt á viðkvæmu atriði í viðtali um stemmninguna, nefnilega veikindaréttinn. „Takk fyrir alla áhorfendurna sem komu að styðja okkur. Við vonumst til að sjá sem flesta í Malmö; flug til Köben og nokkrir veikindadagar. Ég vil sjá sem flesta,“ sagði Viktor Gísli. Hvað var markmaðurinn að segja? Í Reykjavík síðdegis hjuggu menn eftir þessum orðum enda hefur verið fjallað verulega um kólnun, veikindi og fjarveru starfsfólks, einkum þeirra í opinbera geiranum. En sumir vilja halda því fram að starfsfólk líti á veikindadaga sem hluta af sínum kjörum og þá beri að taka, hvort sem menn eru veikir eða ekki. Veikindarétturinn merkilegur réttur Þeir höfðu því samband við Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, um veikindarétt og þar stóð ekki á svörum. Hún sagði þetta ekki virka alveg svona. „Veikindarétturinn er merkilegur réttur og er ekki sjálfgefinn. Farið bara áttatíu ár aftur í tímann og þá áttirðu engan veikindarétt.“ Umsjónarmenn tóku til við að bera blak af Viktori Gísla, menn ráðast ekki á þjóðhetjur; að hann hlyti nú að hafa verið að grínast, heitur eftir leik og uppi í skýjunum. Halla jánkaði því. „Og þá er nú gott að búa í landi þar sem eru sterk stéttarfélög sem hafa tryggt fólki orlofsrétt. Og það er kjörið að nota orlofsdagana sína, rúlla til Malmö og styðja liðið sitt.“ Umræða um veikindadaga þrálát En ekki veikindaréttinn, sögðu umsjónarmennirnir og Halla hló við og sagði nei við því. „Það er náttúrlega eitt, það sprettur upp umræða um veikindarétt reglulega, af ungu fólki sem nýtir sína veikindadaga, fyrstu tvo dagana í mánuði. Að þetta sé minn réttur. Auðvitað umgangast flestir þennan rétt sinn af ábyrgð og vinnusamband byggir á trausti. Þetta hefur áhrif á vinnustaðinn þinn og vinnufélaga. Að eiga launað leyfi í veikindum er ekkert sjálfsagt,“ segir Halla. Hún segir okkur hætta til að taka þessi réttindi sem sjálfsögðum en þau séu merkileg réttindi. Nú sé farið að síga á ógæfuhliðina, kjaraskerðingar launafólks færast í aukana og menn verði að vera á verði; það eigi að þrengja að vinnufólki, lækka laun og hér á Íslandi séu menn í varnarbaráttu fyrir atvinnuleysistryggingar. „Þetta er trend,“ sagði Halla meðal annars en sjá má viðtalið við hana í heild hér ofar
Vinnumarkaður Vinnustaðamenning Handbolti EM karla í handbolta 2026 Kjaramál Kjaraviðræður 2023-25 Reykjavík síðdegis Stéttarfélög Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Sjá meira