Innlent
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 334 ›
Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Kallað var til aðstoðar þyrlu Landhelgisgæslunnar um klukkan fjögur síðdegis vegna slasaðs göngumanns í nágrenni við Glym fyrir botni Hvalfjarðar. Svæðið þar sem maðurinn slasaðist er með öllu ófært bílum. Innlent 16.8.2026 17:08
Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Spænskum ríkisborgurum með skráða búsetu á Íslandi fjölgaði um 155 frá 1. desember til 1. ágúst, eða um 6,3 prósent. Aðeins Úkraínumönnum fjölgaði meira á sama tíma og erlendum ríkisborgurum fækkaði lítillega í heild. Innlent 16.8.2026 17:06
Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Lagarfljótssundi sundkappans Sigurgeirs Svanbergssonar er lokið en Sigurgeir þurfti að hætta vegna meiðsla og var hann fluttur á sjúkrahús í kjölfar þess sem hann kom í land. Sundið er engu að síður Íslandsmet en enginn hefur synt samfellt jafn lengi. Innlent 16.8.2026 15:36
Það er jóker í spilinu Skoðanakannanir síðustu vikna virðast benda til þess að sífellt fleiri kjósendur séu búnir að gera upp hug sinn fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu eftir því sem hlutfall óákveðinna fer lækkandi. Þá virðist einnig sem hægt og rólega saxist á það forskot sem já-hliðin naut þegar mælingar hófust fyrst eftir að tilkynnt var um þjóðaratkvæðið. Innlent 16.8.2026 14:56
Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Greiningardeild ríkislögreglustjóra fylgist grannt með gerviaðgöngum á samfélagsmiðlum og grunsamlegum vefsíðum og athuga hvort erlendir aðilar sigli þar undir fölsku flaggi til að að ýta niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar um ESB í aðra hvora áttina. Innlent 16.8.2026 14:01
Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Páll Magnússon tekur við Sprengisandi á Bylgjunni af Kristjáni Kristjánssyni. Sá síðarnefndi stýrði sínum síðasta Sprengisandi í morgun. Innlent 16.8.2026 13:23
Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Stjörnu-Sævar segir að vikuna í aðdraganda almyrkvans síðastliðinn miðvikudag hafa verið þá allra rugluðustu sem hann hafi upplifað. Sjálfur missti hann næstum því af herlegheitunum. Innlent 16.8.2026 13:10
Brotist inn í Barnaloppuna Brotist var inn í verslun Barnaloppunnar að Köllunarklettsvegi í nótt og þurfti að seinka opnun hennar í morgun á meðan rannsóknarstarf lögreglu fór fram. Innlent 16.8.2026 12:11
Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Kristján Kristjánsson kvaddi Sprengisand eftir tæplega tíu ár við stjórn þáttarins. Í dag fór út hans síðasti þáttur. Kolbeinn Tumi leysir hann af í næstu viku. Innlent 16.8.2026 12:05
Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Átökin í Úkraínu og Rússlandi hafa aukist síðustu vikurnar og í nótt rigndi eldflaugum og drónum yfir bæði Kænugarð og Moskvu. Í hádegisfréttum verður rætt við Óskar Hallgrímsson í Kænugarði um átökin og gang mála í stríði Rússa og Úkraínumanna. Innlent 16.8.2026 11:47
Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni. Þáttur dagsins er helgaður Evrópumálum eins og svo margir þessa dagana en einvalalið gesta mætir. Innlent 16.8.2026 09:33
Mundaði stólinn og lamdi gesti Maður var handtekinn á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur í nótt fyrir að hafa lamið gesti með stól. Innlent 16.8.2026 07:44
„Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Hópur Korpúlfa, sem er félag eldri borgara í Grafarvogi, ætlar að hlaupa saman í Reykjavíkurmaraþoninu. Hópurinn safnar fyrir félaginu og félagsstarfinu sem þau skipuleggja. Formaður segir mikilvægt að halda fólki í virkni eftir að það hættir að vinna og mikil áhersla sé lögð á það hjá Korpúlfi að fólk geti fundið sér eitthvað við hæfi. Innlent 16.8.2026 07:02
Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Breyta á skipulagi við Laugarnesskóla til að tryggja umferð gangandi og hjólandi við skólann og nýtt skólaþorp. Foreldrar kölluðu eftir viðbrögðum borgaryfirvalda síðasta vetur eftir að ekið var á tvö börn á Reykjavegi, skammt frá skólanum og nýju skólaþorpi. Innlent 15.8.2026 20:00
Fjöldi ökumanna á von á kæru Lögregluþjónar á Lögreglustöð 3, sem sinnir Kópavogi og Breiðholti, áfengismældu ökumenn í dag. Þá var kallað var eftir aðstoð lögreglu miðsvæðis í Reykjavík þegar farþegi leigubifreiðar neitaði að greiða far sitt en hann má eiga von á kæru fyrir fjársvik eftir athæfi sitt. Innlent 15.8.2026 18:47
Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Eigendur kaffihússins og sætabrauðsverslunarinnar Lava Sweet við Hafnargötu í Keflavík segja fjóra menn hafa ógnað starfsmanni staðarins og valdið tjóni eftir að hafa séð að á veggnum var kort af Palestínu með vinsælu slagorði. Eigendur staðarins eru Palestínumenn. Innlent 15.8.2026 17:19
Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að Hestfjalli við Skorradalsvatn á fjórða tímanum vegna manns sem hafði dottið og slasað sig. Innlent 15.8.2026 15:55
Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Miðflokksmenn eru helmingi líklegri til að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið en Sjálfstæðismenn. Innlent 15.8.2026 15:41
Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Bæjarráð Reykjanesbæjar tekur undir bókun Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum sem leggst gegn því að embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum verði sameinað öðru lögregluembætti. Innlent 15.8.2026 14:41
Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Grindavík stillti upp liði á Hamingjumóti Víkinga í knattspyrnu sem fram fór í morgun. Er þetta í fyrsta sinn sem Grindavík mætir til leiks í yngri flokkum síðan sumarið 2024 og var gleðin allsráðandi þegar fagnað var í leikslok. Innlent 15.8.2026 14:29
Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja Lokið var við að leggja lögnina NSL-4 að landi í Vestmannaeyjum snemma í morgun. Ekkert verður hróflað við lögninnni á meðan tryggingafélag kannar umfang tjónsins sem varð á henni við lögn um síðustu helgi. Innlent 15.8.2026 14:18
„Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Umhverfis- og orkumálaráðherra segir engan vafa í sínum huga að möguleikar Íslands til að verja hagsmuni sína hvað varðar losunarheimildir í flugsamgöngum væru meiri innan ESB, jafnvel þó Ísland væri aðeins umsóknarríki. Rík hefð hafi myndast fyrir samstöðumenningu í stjórnarfyrirkomulagi ESB. Innlent 15.8.2026 14:01
Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Sjósundkappinn Sigurgeir Svanbergsson gerir aðra atlögu að því að synda Lagarfljót endilangt í kvöld eftir að hafa þurft frá að hörfa vegna ofkælingar í júní. Aðstæðurnar eru mun vænlegri í þetta sinn. Innlent 15.8.2026 12:01
Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Miðað við nýjustu kannanir bendir allt til þess að þátttakan sjálf muni skipta mestu máli í komandi þjóðaratkvæðagreiðslum að mati prófessors í stjórnmálafræði. Yngra fólk hallist meira að já-inu en sé sömuleiðis talið ólíklegra til að mæta á kjörstað. Innlent 15.8.2026 12:01
Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Í nýjum þjóðarpúlsi Gallup er lítill sem enginn munur á þeim sem ætla að segja já eða nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi viðræður um aðild að ESB þann 29. ágúst. Prófessor í stjórnmálafræði segir að eins og staðan sé núna muni kosningaþátttaka skipta öllu máli. Innlent 15.8.2026 11:48
Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Mánudagskvöldið 17. ágúst og þriðjudagskvöld 18. ágúst er stefnt að því að fræsa Hringveginn í gegnum Borgarnes frá Borgarbraut að brú yfir Borgarfjörð. Innlent 15.8.2026 10:44
Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Þriðja daginn í röð er afar löng röð í öryggisleitina á Keflavíkurflugvelli. Um tíma náði röðin út á langtímabílastæðin sem eru heldur langt frá innganginum að flugvellinum. Innlent 15.8.2026 09:58
„Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Sesselja Hreinsdóttir missti son sinn, Þorlák Inga, fyrir um fimm árum. Þorlákur Ingi var 21 árs þegar hann lést í sjálfsvígi jólin 2020. Sesselja segir missinn hafa markað líf sitt og hún hafi lært mikið á þessum fimm árum. Það mikilvægasta sé að enginn takist á við slíkan missi og slíka sorg einn. Hver og einn þurfi samt sem áður að finna sín eigin bjargráð og sinn takt í sorginni. Innlent 15.8.2026 09:02
Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um mann vopnaðan rafbyssu í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Viðkomandi fannst ekki. Innlent 15.8.2026 07:20
Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Sjósundkappinn Sigurgeir Svanbergsson gerir aðra atlögu að því að synda Lagarfljót endilangt aðfaranótt sunnudagsins sextánda ágúst á miðnætti. Innlent 14.8.2026 23:46