Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Smári Jökull Jónsson skrifar 30. september 2026 12:07 Tengivirki Landsnets við Vatnshamra þar sem slysið varð á mánudag. Landsnet Lögreglan á Vesturlandi segir liggja nokkuð ljóst fyrir hvað gerðist þegar starfsmaður Landsnets slasaðist í alvarlegu vinnuslysi í tengivirki í Borgarfirði á mánudag. Samkvæmt heimildum fréttastofu er starfsmaðurinn kona á þrítugsaldri og var hún flutt á sjúkrahús erlendis í kjölfar slyssins.
Slysið varð í tengivirki Landsnets við Vatnshamra í Borgarfirði og fór rafmagn af Borgarnesi og svæðinu sem fær rafmagn frá Vatnshömrum í kjölfarið. Að sögn Ásmunar Kristins Ásmundssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Vesturlandi, varð slysið á afmörkuðu vinnusvæði og fékk starfsmaðurinn spennu í sig. Ekki hafi verið um fallslys að ræða. Ásmundur segir að vitni hafi verið að slysinu og að það liggi nokkuð ljóst fyrir hvað gerðist. Rannsókn málsins sé þó enn í gangi en búið sé að taka skýrslu af að minnsta kosti einu vitni. Þá segir Ásmundur að Vinnueftirlitið muni líka rannsaka málið og skila skýrslu þar að lútandi. Svör hafa ekki borist frá Vinnueftirlitinu við fyrirspurn fréttastofu vegna slyssins. Samkvæmt heimildum Vísis er starfsmaðurinn kona á þrítugsaldri og var hún flutt með þyrlu til Reykjavíkur. Heimildir Vísis herma að hún hafi í kjölfarið verið flutt erlendis til læknismeðferðar en frekari upplýsingar um líðan hennar liggja ekki fyrir að svo stöddu. Valgeir Örn Ragnarsson, forstöðumaður samskipta hjá Landsneti, segir í samtali við fréttastofu að ekki sé tímabært að tjá sig um málið þar sem rannsókn standi enn yfir. Félagið muni ekki veita frekari upplýsingar á þessum tímapunkti. Fram kom í tilkynningu á heimasíðu Landsnets í gær að haustfundi hefði verið frestað vegna slyssins. Alvarlegt slys varð árið 2020 í tengivirki í Breiðdal fyrir botni Önundarfjarðar í september fyrir sex árum. Í því tilfelli féll karlmaður úr töluverðri hæð og fékk í sig mikinn straum. Vatnshamrar er sameiginleg aðveitustöð Landsnets og Rarik. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Landsnets var Vatnshamralína 1 tekin í notkun árið 1977 og er alls rúmir tuttugu kílómetrar að lengd á milli Vatnshamra og Brennidals. Um er að ræða háspennulínu sem er 132 KV en Vatnshamralína 2 er 66 KV.
Vinnuslys Borgarbyggð Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira