Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Freyja Þórisdóttir skrifar 29. september 2026 20:51 Brynhildur Bolladóttir er nýskipaður formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl. Rauði krossinn/Reykjavíkurborg Nýr formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl segir samtökin alls ekki vilja þrengja að gegn einkabílnum heldur sé tilgangur samtakanna að gera það auðveldara að velja að vera bíllaus. Sumir gætu sleppt því að kaupa fleiri bíla á heimilið og skoðað það frekar að kaupa gott hjól í staðinn.
Samtökin hafa legið í dvala síðastliðin ár en nú hefur ný stjórn verið skipuð og var nýr formaður þeirra, Brynhildur Bolladóttir, einn gesta í nýjasta þætti Reykjavík síðdegis. Þar var hún meðal annars spurð út í það hvað bíllaus lífsstíll á Íslandi árið 2026 þýðir. „Hann þýðir gríðarlegt frelsi fyrst og fremst,“ sagði Brynhildur en hún bætti því við að á aðalfundi sem haldinn var í gær hefði komið fram að margir meðlimir samtakanna væru ekki alveg bíllausir. „Við erum mörg sko, bíllétt, langar okkur að segja, kannski ekki endilega bíllaus. Það er svolítið mikilvægt, þetta er ekki allt eða ekkert. Ég held að það sé svona mikilvægur punktur í allri þessari umræðu,“ sagði hún og ítrekaði „það má eiga bíl þó að maður tilheyri þessum samtökum eða þessu félagi.“ Það sé ekki skylda að vera algjörlega bíllaus en markmiðið og tilgangur samtakanna sé auðvitað að það sé hægt að vera bíllaus hérlendis. „Í öllu skutli og slabbi og slyddu og í öllu veseninu að það sé einmitt svona raunverulegt frelsi þar sem maður getur valið að sleppa því að eiga bíl og við erum þarna mjög mörg sem stundum þennan lífsstíl.“ En er það raunhæft? „Já, það er ótrúlegt hvað veðrið er oft vont þegar maður lítur út um gluggann og svo um leið og maður er kominn út í það þá er það ekki alveg jafn vont,“ sagði Brynhildur en hún sjálf sé á rafmagnshjóli og skipti yfir á nagladekk þegar þess þarf yfir vetrarmánuðina. Ekki alltaf æðislega gaman Stundum séu þó dagar þar sem Brynhildi finnist minna frábært að hjóla í og úr vinnu. „Þegar það er mikill snjór og klaki þá finnst mér það ekkert alltaf ótrúlega gaman. En ég er svo miklu hressari þegar ég mæti í vinnuna og gleðin og frelsið við það að sleppa því að vera á bíl er algjörlega bara ótrúlegt.“ Brynhildur á sjálf tvö börn, annað í leikskóla en hitt í þriðja bekk á yngsta stigi í grunnskóla og hún segist ekki þurfa að skutla þeim. „Ég hjóla með stráknum mínum í leikskólann eða við löbbum og stelpan mín fer og hjólar eða labbar sjálf í skólann,“ útskýrir hún. Þá segist hún skilja það vel að margir sjái sér ekki fært að selja eina bíl heimilisins og vera algjörlega bíllausir en það væri hægt að skoða kaup á hjóli í stað þess að bæta við bíl númer tvö til dæmis. „Það sem kemur manni ótrúlega á óvart þegar maður til dæmis byrjar að hjóla er hvað vegalengdir eru stuttar. Þetta er allt bara rosalega stutt,“ bætir hún við. Vilja ekki þrengja að einkabílum Aðspurð hvort samtökin vildu sjá bættari almenningssamgöngur á kostnað einkabílsins sagði Brynhildur að svo væri ekki. „Nei, við viljum alls ekki þrengja að einkabílnum. Við viljum að fólk geti tekið almenningssamgöngur, farið hjólandi eða gangandi og umhverfið sem þú notar sé mannvænt,“ sagði hún. Fólk sem búi í úthverfum efist oft um að bíllaus lífsstíll sé möguleiki fyrir sig en gæti þó skoðað tækifærin sem felist í því að skilja bílinn eftir og velja hjólið frekar. „Það er enginn að biðja neinn um að selja bílinn sinn en kannski einmitt þetta fólk sem er jafnvel fast í umferð núna getur hugsað: „Er eitthvað sem ég gæti breytt í mínu lífi, er einn dagur í viku sem ég gæti sleppt því að fara á bíl í vinnuna?“ Af því ég er líka í vinnu og ég á líka börn og ég æfi líka og ég er á hjóli og það gengur fyrir mig og kannski mjög mikilvægt að það sé ekki dyggð,“ sagði Brynhildur. Hún sé ekki svona dugleg að vera á hjóli heldur velji hún það vegna þess hversu mikla frelsistilfinningu hún upplifi þegar hún velji að hjóla á milli staða. „Ég er algjörlega frjáls og ég kem alltaf glaðari hvert sem ég er að fara. Ég pirra mig aldrei á umferð. Ég þekki ekki umferð, ég veit ekki hvað umferð er. Ég bara veifa henni þegar ég þýt fram úr henni.“
Samgöngumál Umferð Hjólreiðar Bílar Reykjavík síðdegis Bylgjan Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira