Fréttir

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Rúm­lega hundrað flug­ferðum af­lýst og langar bið­raðir

Alls hefur 135 flugferðum verið aflýst í Noregi í morgun vegna verkfalls flugumferðarstjóra. Óslóarflugvelli var lokað í um fimm klukkustundir í morgun en hefur verið opnaður að nýju. Ætlast er til þess að lokunin muni hafa veruleg áhrif á flugumferð það sem eftir er af degi og eru sagðar langar biðraðir á vellinum.

Erlent
Fréttamynd

Sakamálið sem skekur Banda­ríkin

Réttarhöld yfir bandarískri konu, sem játað hefur að hafa myrt börnin sín þrjú, hafa vakið gríðarlega athygli um allan heim. Mikill fjöldi fylgist með réttarhöldum í beinni útsendingu á degi hverjum og hefur málið hrundið af stað umræðu um fæðingarþunglyndi og fæðingarsturlun.

Innlent
Fréttamynd

Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“

Þrátt fyrir að veðrið sé að mati margra ekki með besta móti má ætla að fjöldi fólks leggi leið sína niður í miðbæ Reykjavíkur í kvöld á Menningarnótt. Dagurinn hefur gengið eins og í sögu og er útlit fyrir að allt skipulag, götulokanir þar á meðal, hafi farið fram líkt og best væri á kosið. Áratuga reynsla spili inn í velheppnaða viðburði sem þessa.

Innlent
Fréttamynd

Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir

Brotist var inn í Efstaleitisapótek í nótt en nágrannar vöknuðu við hávaða þegar jeppling var bakkað á rúðu í apótekinu með tilheyrandi látum. Engu var stolið nema lyfjum en talið er að tveir hafi verið að verki. Bíll þjófanna fannst skammt frá apótekinu en enn hefur ekki tekist að hafa uppi á þeim.

Innlent
Fréttamynd

Handa­lög­mál milli öryggisvarðar og þjófs

Lögreglu á stöð þrjú var í dag gert viðvart um þjófnað í verslun í hverfi 200 í Kópavogi en til handalögmála kom milli öryggisvarðar í versluninni og meints þjófs. Málið var afgreitt af lögreglu en ekki liggur fyrir hvort alvarlegir áverkar hafi hlotist af slagsmálunum. 

Innlent
Fréttamynd

Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli

Faðir sjö ára drengs var áminntur af lögreglu við Fuji-fjall í Japan eftir að hann skildi sjö ára son sinn eftir í tvö þúsund metra hæð á meðan hann hélt sjálfur göngu áfram upp fjallið. Drengurinn beið eftir föður sínum í átta klukkutíma. 

Erlent
Fréttamynd

Límmiðar lifðu ekki af nóttina

„Ég er bara algjörlega miður mín út af þessu. Að þetta fái ekki að vera í friði. Þetta eru líklega einhver skemmd epli,“ segir Frosti Sigurgeirsson, bóndi á Heiðarseli á Hróarstungu í Fljótsdalshéraði, sem setti upp límmiða á heyrúllur í gær, merkta „Já til að sjá“. Miðarnir voru horfnir í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Tveir hinna látnu lög­reglu­menn

Sjö létust í bílslysi nærri Middlesbrough í Bretlandi í nótt þegar lögreglubíll og Volkswagen Passat-bifreið skullu saman. Tveir hinna látnu voru lögreglumenn.

Erlent
Fréttamynd

Segir aug­ljóst að lögum hafi ekki verið fram­fylgt við kyrrsetninguna

Paul Watson krefst endurupptöku á beiðni Hvals hf. um kyrrsetningu skipsins Bandero á grundvelli laga um kyrrsetningu en augljóst sé að þeim hafi ekki verið framfylgt. Félagið sem á Bandero hafi ekki verið gert vart við kyrrsetningarbeiðni Hvals hf. og því ekki gefist tækifæri til að mótmæla kröfu Hvals áður en kyrrsetningu lauk.

Innlent
Fréttamynd

Segja Morgun­blaðið leggja þeim orð í munn

Þrír prófessorar við lagadeild Háskólans í Reykjavík segja frétt Morgunblaðsins um að þeir telji engar undanþágur í boði við aðild vera ranga. Einn prófessoranna segir blaðið leggja sér orð í munn. 

Innlent
Fréttamynd

Skipunar­tíminn lengdur án aug­lýsingar

Ólöf Ásta Farestveit verður áfram forstjóri Barna- og fjölskyldustofu (BOFS) næstu fimm árin. Skipunartími hefði átt að renna út 1. janúar næstkomandi en verður framlengdur um fimm ár frá þeim tíma. 

Innlent
Fréttamynd

Bændur ó­ró­legir vegna skorts á dýra­læknum

Grafalvarleg staða er á Suðausturlandi þar sem enginn dýralæknir er starfandi á stórum hluta svæðisins og fá bændur því enga heilbrigðisþjónustu fyrir veik og slösuð dýr. Þetta segir formaður Dýralæknafélags Íslands sem segir bændur órólega og stjórnvöld engu svara.

Innlent
Fréttamynd

Aftur í skólastjórastólinn

Valdimar Víðisson, fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar og oddviti Framsóknarflokksins, hefur tekið við sem skólastjóri Húsaskóla í Grafarvogi í Reykjavík. Fyrir bæjarstjóratíð hans var hann skólastjóri Öldutúnsskóla í um sextán ár.

Innlent
Fréttamynd

Stinning­skaldi og súld suð­vestan­lands

Í dag má búast við suðvestanátt á bilinu átta til fimmtán metrar á sekúndu og súld um landið sunnan- og vestanvert. Draga á úr vætu í kvöld. Hiti verður á bilinu tíu til nítján stig, hlýjast austanlands.

Veður
Fréttamynd

TikTok gert að greiða Banda­ríkjunum sögu­lega upp­hæð

Samfélagsmiðillinn TikTok hefur samþykkt að greiða Bandaríkjunum fjögur hundruð milljónir Bandaríkjadala, eða um 49 milljarða íslenskra króna, til að ljúka málsókn en miðillinn var sakaður um að brjóta á friðhelgi barna með upplýsingaöflun. Sáttin er ein sú stærsta sem hefur verið gerð vegna slíks máls.

Erlent