Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Formaður Varðbergs segir Marco Rubio hafa staðfest varnarskuldbindingar Bandaríkjanna gagnvart Íslandi í heimsókn sinni til landsins, á sama tíma og mörg Evrópuríki dragi traust Bandaríkjamanna á varnarsamningum í efa. Hann telur að breytingar á NATO ættu ekki að hafa áhrif á Ísland. Innlent 7.10.2026 13:31
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Bandarísk stjórnvöld segja fátt um svör frá Rússum vegna andláts rússneskrar konu sem starfaði á rannsóknarstofu í Síberíu og sögð er hafa látist eftir slys á rannsóknarstofunni. Bandarískir miðlar hafa greint frá því að stjórnvöld í Bandaríkjunum ætli að herða leit sín að svörum frá þeim rússnesku og hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti sagst munu ræða við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um málið. Erlent 7.10.2026 13:25
Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Bandarískir hermenn sem eru á japönsku eyjunni Okinawa hafa verið settir í útgöngubann eftir að einn þeirra var sakaður um að hafa myrt og rænt konu á eyjunni. Erlent 7.10.2026 12:21
Barnaspítalabindi Billy stal senunni William „Billy“ Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, var meðal þeirra sem tóku á móti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þegar hann lenti á Íslandi í gær og fylgdu honum af landi brott síðdegis í dag. Athygli vakti að sendiherrann bar enn einu sinni óvenjulegt og litríkt bindi sem virðist vera í sérlegu uppáhaldi hjá honum og á sér fallega sögu. Tíska og hönnun 6. október 2026 15:56
Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Donald Trump Bandaríkjaforseti er til í að leyfa Írönum að „taka út“ stórborgir í Kaliforníu þar sem demókratar eru í meirihluta í stríði hans við Persaflóaríkið. Ríkisstjóri Kaliforníu segir forsetann „sturlaðan“. Erlent 6. október 2026 15:03
„Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagðist hafa fengið skýr svör á fundi sínum í morgun með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varðandi kortið sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti sem sýndi Ísland sveipað bandaríska fánanum. Hún sagði metnað Rubio liggja í að ýta undir viðveru NATO á norðurslóðum. Innlent 6. október 2026 14:26
Rubio farinn af landi brott Heimsókn Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands er lokið en hann flaug af landi brott um hádegisbil í dag. Rubio heldur ferðalagi sínu um Evrópu áfram og mun á næstu dögum funda með ráðamönnum bæði í Portúgal og Grikklandi. Innlent 6. október 2026 13:56
Rubio: Ísland í miðjunni Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna lagði áherslu á sögulega vináttu Bandaríkjanna og Íslands á blaðamannafundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í Safnahúsinu. Lega Íslands skipti miklu máli fyrir öryggi á norðurslóðum og sagði ráðherrann mörg tækifæri fyrir frekara samstarfi á sviði öryggis- og efnahagsmála. Hann vildi ekki svara spurningu um samfélagsmiðlafærslur Bandaríkjaforseta og segir enga hernaðaruppbyggingu munu eiga sér stað á Íslandi án samþykkis Íslendinga. Innlent 6. október 2026 11:35
Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Bandaríska varnarmálaráðuneytið segist ætla að taka fyrrverandi majór í hernum sem framdi mannskæða skotárás í herstöð af lífi með aftökusveit. Þetta verður í fyrsta skipti sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Erlent 6. október 2026 08:31
Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er á Íslandi og fundaði með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Fylgst var með heimsókn hans hér á Vísi. Innlent 6. október 2026 07:15
Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Donald Trump segir að hann muni láta eigin pólitíska aðgerðanefnd, svokallaða Super PAC, greiða fyrir umdeildar auglýsingar sem hafa verið birtar í bandarískum fjölmiðlum á undanförnum vikum. Auglýsingarnar, sem þykja mjög pólitískar í aðdraganda þingkosninga, hafa verið fjármagnaðar af heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna en stofnunum ætti að vera óheimilt að gera slíkar auglýsingar. Erlent 6. október 2026 00:00
Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Sveitir ríkisstjórnar Jemen hafa sótt hratt fram gegn Hútum við strendur Rauðahafs. Ríkisstjórnin segist hafa hernumið mestallt það svæði sem Hútar lögðu skyndilega undir sig í síðasta mánuði og mun ríkisstjórnin hafa náð aftur stjórn á Bab el-Mandeb-sundi við suðurenda Rauðahafs. Erlent 5. október 2026 22:28
Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Maður sem birtist eitt sinn í þáttunum American Idol, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína til bana. Caleb Flynn sviðsetti innbrot eftir að hann skaut Ashley Flynn, eiginkonu sína, og hélt því fram að innbrotsþjófur hefði myrt hana. Erlent 5. október 2026 20:57
Rubio lentur á Íslandi Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er lentur í Keflavík. Hann segist mættur hingað til að ræða sameinleg forgangsmál Íslands og Bandaríkjanna, eins og öryggi á norðurslóðum, efnahagstengsl og varnarsamstarf. Innlent 5. október 2026 17:54
Rubio spenntur að hitta Þorgerði Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna segist spenntur fyrir Íslandsheimsókn sinni. Ísland sé góður vinur Bandaríkjanna og einn af stofnmeðlimum Nato. Innlent 5. október 2026 15:13
Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Barnsfaðir Gypsy Rose Blanchard, sem er þekkt fyrir að hafa orðið móður sinni að bana, fannst látinn á heimili sínu fyrir helgi. Lífið 5. október 2026 10:31
Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bandaríkjamenn hafa flutt allar sprengjuflugvélar sínar frá herstöðinni RAF Fairford í Bretlandi en vélunum var flogið til Bandaríkjanna í gær. Bandaríkjamenn hafa flogið sprengjuflugvélum frá herstöðinni til Mið-Austurlanda undanfarna mánuði en í síðustu viku voru fimm menn handteknir grunaðir um hryðjuverk í nágrenni herstöðvarinnar. Erlent 5. október 2026 09:06
Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa stofnað nýja verkefnastjórn sem á að sjá um málefni gervigreindar í Bandaríkjunum. Þetta gerir hann nokkrum dögum eftir að hann undirritaði tilskipun þess efnis að gervigreind myndi frekar bera heitið ofurgreind. Forsvarsmenn gervigreindarfyrirtækja hafa kallað eftir því að hægt verði á þróun gervigreindarinnar af öryggisástæðum. Erlent 5. október 2026 07:17
Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Kona á fertugsaldri var í gær handtekin í Bandaríkjunum, grunuð um njósnir fyrir kínverska ríkið. Á hún að hafa sent myndir af bílum og húsum sem fjölskylda forseta Taívan notaðist við. Erlent 5. október 2026 06:33
Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Lögreglumaður í Flórída í Bandaríkjunum hefur verið sýknaður af manndrápsákæru eftir að hann skaut svartan mann til bana í dyragættinni hjá honum árið 2024. Erlent 4. október 2026 22:28
Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Þann 23. september síðastliðinn rættist langþráður draumur Jónínu Shipp. Þá hlaut hún loksins íslenskan ríkisborgararétt, 67 ára að aldri. Að baki lá áralöng barátta sem hafði meðal annars falið í sér umsókn til Alþingis, samskipti við Útlendingastofnun, fingrafaratöku og sakavottorð frá FBI. Jónína hafði jafnframt um árabil verið með dvalarleyfi sem gilti í fimm ár í senn og reynt að fá formlega staðfestingu á því sem hún hafði sjálf aldrei efast um: Að Ísland væri hennar heimaland. Lífið 4. október 2026 20:02
Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Öryggisstjóri gervgreindarfyrirtækisins OpenAI hefur sagt upp störfum og gagnrýnir fyrirtækið fyrir að hafa ekki sýnt nægilega aðgát við þróun tækninnar. Erlent 4. október 2026 16:45
Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Michael Kotlikoff, rektor Cornell-háskóla, hefur tjáð sig um hópnauðgun á konu í skólanum árið 2024. Hann segir málið vekja verulegan óhug og hefur heitið því að aðstoða við aukið gagnsæi í ljósi vaxandi reiði vegna meðferðar skólans á málinu. Erlent 4. október 2026 10:30
Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Leitarhópar hafa fundið brak úr sjúkraflugvél sem týndist á flugi milli Bermúda og Boston í gær, laugardaginn 3. október, en sex voru um borð í flugvélinni, að sögn yfirvalda. Enn er leitað að eftirlifendum á svæðinu þar sem brakið fannst en það er undan strönd Nantucket, eyju í Massachusetts-fylki í Bandaríkjunum. Erlent 4. október 2026 07:56