Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Samúel Karl Ólason skrifar 5. október 2026 22:28 Hermenn ríkisstjórnar Jemen á ferðinni í suðvesturhluta landsins. Þar er hart barist á nokkrum stöðum. AP/Abdulnasser Alseddik Sveitir ríkisstjórnar Jemen hafa sótt hratt fram gegn Hútum við strendur Rauðahafs. Ríkisstjórnin segist hafa hernumið mestallt það svæði sem Hútar lögðu skyndilega undir sig í síðasta mánuði og mun ríkisstjórnin hafa náð aftur stjórn á Bab el-Mandeb-sundi við suðurenda Rauðahafs.
Með stuðningi Sáda úr lofti eru sveitir ríkisstjórnarinnar sagðar hafa sótt hratt fram að borginni Mocha og eru meðlimir Húta sagðir hafa hörfað aftur upp í fjöllin til norðurs. Reuters hefur eftir varnarmálaráðuneyti Jemen að Mocha sé aftur í höndum ríkisstjórnarinnar. Leiðtogar Húta segjast hafa gert árásir á olíuvinnsluinnviði í Sádi-Arabíu, flugvelli og herstöðvar og notast hefði verið við bæði dróna og skotflaugar. Sókn sveita ríkisstjórnarinnar hófst í morgun og virðist hún hafa gengið vel. Fregnir höfðu í síðustu viku borist af því að gagnsókn væri í vændum. Sádar segjast hafa notað hundrað herþotur í dag til að styðja gagnsóknina og að árásir hafi verið gerðar á hundruð skotmarka. Sjá einnig: Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Talsmaður herafla ríkisstjórnar Jemen deildi meðfylgjandi myndbandi af loftárásum í dag. Vert er að vara lesendur við því að myndefnið getur vakið óhug. من استهدافات قواتنا المسلحة لعناصر مليشيا الحوثي الإرهابية وعتادها العسكري ضمن عملية "فجر اليمن". https://t.co/CPbuQfB4WE— الناطق الرسمي للقوات المسلحة اليمنية (@spokespersonyem) October 5, 2026 Það að ríkisstjórnin virðist hafa náð aftur stjórn á Bab el-Mandeb-sundi mun líklega gera Hútum erfiðara að loka á siglingar um Rauðahaf en þeir munu þó áfram geta gert árásir á skip á sunnanverðu hafsvæðinu með bæði drónum og eldflaugum. Hútar segja ekki rétt að þeir hafi tapað landsvæði í Jemen. Þá hafa fregnir borist af því að á öðrum stað á víglínunni hafi meðlimir Húta sótt fram og að þeir séu nærri því að umkringja borgina Taiz. Hermenn í borginni eru næstum því alveg umkringdir en heimildarmenn Reuters segja að ekki sé búið að skera á allar birgðaleiðir inn í borgina. Langvarandi átök Hútar stjórna stórum hluta Jemen, þar á meðal höfuðborginni Sana, en þeir eru studdir af klerkastjórninni í Íran. Sádar hafa stutt alþjóðlega viðurkennd stjórnvöld í Jemen gegn Hútum um árabil. Sádar hófu að aðstoða ríkisstjórn Jemen árið 2015. Þá leiddu Sádar bandalag arabaríkja sem kom ríkisstjórninni til aðstoðar eftir að Hútar ráku sveitir ríkisstjórnarinnar frá Sanaa. Skæð borgarastyrjöld stóð yfir um langt skeið í Jemen en fjögurra ára vopnahlé liðaðist í sundur í sumar og hafa átökin aukist töluvert síðan þá. Hútar hófu í sumar árásir á olíuvinnsluinnviði og olíuflutningaskip Sádi-Arabíu, með því markmiði að koma í veg fyrir flutninga Sáda á olíu um Rauðahaf. Þá gerðu Hútar umfangsmikla sókn í vesturhluta Jemen fyrr í þessum mánuði og lögðu undir sig stóran hluta strandlengju landsins við Rauðahaf. Þeir landvinningar gerðu þeim mun auðveldara að takmarka siglingar um Rauðahaf, sem var orðin helsta útflutningsleið Sáda fyrir olíuafurðir vegna takmarkana á siglingum um Hormússund. Sádar hafa lagt mikla áherslu á að snúa þessari þróun við. Tyrkir og Pakistanar senda hermenn Í dag var haldinn sérstakur neyðarfundur Mecca-bandalagsins svokallaða. Það er varnarbandalag Sádi-Arabíu, Tyrklands og Pakistan en þar var komist að þeirri niðurstöðu að Tyrkir og Pakistanar myndu koma Sádum til aðstoðar. Ríkin ætla að senda hermenn til Sádi-Arabíu en hversu margir þeir eiga að vera og hvað þeir eiga að gera liggur ekki fyrir að svo stöddu. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur hafnað beiðni Sáda um að taka þátt í árásunum. New York Times sagði þó frá því í dag að rúmlega tvö hundruð bandarískir hermenn og greinendur eru í Sádi-Arabíu þar sem þeir aðstoða meðal annars við að velja skotmörk fyrir loftárásir Sáda. Þá eru Bandaríkjamenn einnig með eldsneytisflugvélar á svæðinu, sem Sádar geta notað til að fylla á herþotur sínar á lofti.
Jemen Sádi-Arabía Hernaður Skipaflutningar Bensín og olía Pakistan Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Sjá meira