Skipaflutningar
1 2 3 4 5 6 … 11 ›
Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Sveitir ríkisstjórnar Jemen hafa sótt hratt fram gegn Hútum við strendur Rauðahafs. Ríkisstjórnin segist hafa hernumið mestallt það svæði sem Hútar lögðu skyndilega undir sig í síðasta mánuði og mun ríkisstjórnin hafa náð aftur stjórn á Bab el-Mandeb-sundi við suðurenda Rauðahafs. Erlent 5.10.2026 22:28
„Farið að rofa til“ í rekstri Eimskips og sjá fram á mun meiri framlegð Verðmat á Eimskip hefur verið hækkað eftir að rekstur félagsins reyndist talsvert sterkari en væntingar stóðu til á öðrum ársfjórðungi og hagræðingaraðgerðir eru farnar að skila sýnilegum árangri. Greinendur telja að framlegð flutningafélagsins geti batnað mun hraðar en áður var spáð, þótt aðstæður á alþjóðlegum gámaflutningamarkaði séu áfram krefjandi. Innherjamolar 5.10.2026 15:41
Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Óþekktur málmhlutur sem fannst í sjónum nærri Helsinki í Finnlandi virðist samkvæmt frummati vera „mjög gamall vélrænn hluti úr skipsflaki“. Lögreglan á svæðinu lokaði fyrir skipaumferð á svæðinu og var finnski herinn kallaður til aðstoðar eftir að tilkynning barst um að trektlaga hlutur hefði fundist í sjónum suður af eyjunni Kustaanmiekka. Erlent 4.10.2026 10:47
Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Lögreglan í Finnlandi hefur lokað fyrir skipaumferð á svæði í nágrenni við Helsinki eftir að óþekktur málmhlutur fannst í sjónum. Mikill viðbúnaður er á svæðinu og lögreglan óskar eftir aðstoð finnska hersins. Erlent 3.10.2026 21:33
Arnarfell dregið til Færeyja Bilun kom upp í Arnarfelli, gámaflutningaskipi Samskipa, er það silgdi á milli Hjaltlandseyja og Færeyja í gær. Skipið var á leið til Rotterdam í Hollandi. Skipið verður dregið í land til Runavíkur í Færeyjum. Engan sakaði að sögn Samskipa, sem segja að orsök bilunarinnar sé þekkt. Innlent 20.9.2026 11:03
Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Búið er að vara lengi við því að takmarkanir á flutningum olíuafurða um Hormússund muni á endanum leiða til olíukrísu. Yfirmenn bandarískra olíufélaga segja að sú krísa sé nú að raungerast. Olíubirgðir víða um heim séu að verða tómar og vandræði Sáda við að flytja út olíu um aðrar leiðir en sundið hafa aukið á vandann. Viðskipti erlent 15.9.2026 14:57
Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Að minnsta kosti tuttugu manns eru sagðir hafa farist þegar eldur kviknaði í flutningaskipi sem liggur í höfn í Quindao í Kína í dag. Forseti Kína segir leitar- og björgunarstörf hafin en fimm er enn saknað. Erlent 10.9.2026 10:43
Réðust á fleiri olíuflutningaskip Bandaríkjamenn gerðu í dag árásir á fimm olíuflutningaskip Írana til viðbótar, eftir að Íranir skutu eldflaugum í átt að bandarísku herskipi. Íranir svöruðu með umfangsmiklum eldflaugaárásum. Erlent 8.9.2026 21:43
Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Hútar skutu í nótt tugum dróna og eldflauga að fjórum borgum í Sádi-Arabíu. Að minnsta kosti 73 eru særðir eftir árásirnar og ollu þær meðal annars skemmdum á olíuvinnsluinnviðum. Ráðamenn í Sádi-Arabíu heita umfangsmiklum viðbrögðum en átök hafa harðnað í Jemen að undanförnu. Erlent 8.9.2026 20:50
Klerkastjórnin missir tökin Ráðamenn í Íran vöruðu í dag við því að þeir gætu gert árásir á bandarísk skotmörk í Mið-Austurlöndum og á olíuvinnsluinnviði í nágrannaríkjum sínum. Klerkastjórnin virðist þó vera að missa tökin á Hormússundi og þar af leiðandi missa vogarafl í mögulegum viðræðum við Bandaríkjamenn. Erlent 7.9.2026 20:01
Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Sveitarstjórn Langanesbyggðar hefur ákveðið kanna hug íbúa til áforma um gerð vindmyllugarða í sveitarfélaginu og iðnaðarsvæðis við Finnafjörð í tengslum við gerð stórskipahafnar. Málið þykir heitt meðal íbúa en oddvitinn segir niðurstöðurnar verða hafðar til hliðsjónar við framhald málsins. Innlent 25.8.2026 23:23
Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Norskur dómstóll dæmdi í dag skipstjóra flutningaskips sem sigldi næstum á íbúðarhús þegar það strandaði í Þrándheimsfirði í fyrra í skilorðsbundið fangelsi. Stýrimaður skipsins sofnaði í brúnni. Erlent 21.8.2026 11:38
Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Útlit er fyrir að sómalskir sjóræningjar séu aftur byrjaðir að láta til sín taka á Adenflóa og Rauðahafi, eftir að hafa látið lítið fyrir sér fara um árabil. Fyrr í vikunni réðust sjóræningjar um borð í tyrkneskt skip sem var meðal annars að flytja vopn og sigldu því til Sómalíu. Erlent 20.8.2026 16:14
Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Að minnsta kosti einn er sagður látinn og nokkrir slasaðir eftir sprengingu í Rotterdam-höfn í Hollandi í morgun. Sprengingin varð í olíuhreinsistöð og eldsneytisgeymslu. Erlent 13.8.2026 13:03
Verkfallsaðgerðir í maí kostuðu Eimskip um 90 milljónir króna Verkfall sjómanna hjá Eimskip í lok maí hafði nokkur áhrif á afkomu félagsins á öðrum ársfjórðungi en tekjutap og aukinn kostnaður vegna aðgerðanna nam um 600 þúsund evrum, jafnvirði tæplega 90 milljónir króna. Innherjamolar 14.7.2026 12:51
Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Síðustu daga, og þá sér í lagi þann 4. júlí, fóru fram viðburðir víðs vegar um Bandaríkin til að fagna 250 ára afmæli sjálfstæðis þjóðarinnar. Í erlendum miðlum kemur fram að bandaríska þingið hafi úthlutað 150 milljónum bandaríkjadala til hátíðarhaldanna en upphæðin nemur um átján billjónum íslenskra króna. Meðal dagskrárliða var vegleg skipasýning en aðrir viðburðir voru meðal annars fylkissýning til heiðurs öllum landshlutum Bandaríkjanna, yfirflug orrustuþotna og opnun forsetabókasafns. Lífið 9.7.2026 17:00
Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Þrjú ráðuneyti vinna nú að því að leggja af kolefnisgjöld á strandsiglingar í samræmi við tillögu starfshóps innviðaráðherra. Þrátt fyrir að ráðherrann hafi talað um að fella niður ETS-gjöld á strandsiglingar er aðeins til skoðunar að greina áhrif kerfisins á strandflutninga. Viðskipti innlent 30.6.2026 07:02
Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Enn eykst spenna í Mið-Austurlöndum en Íslamska byltingarvarðliðið í Íran (IRGC) hefur staðfest dróna- og loftskeytaárásir á Barein og Kúveit. Árásirnar hafi beinst að flugstöð Bandaríkjanna í Kúveit og flota Bandaríkjanna í Barein en hersveitir Bandaríkjahers héldu árásum sínum áfram og skutu á írönsk skotmörk í gær, laugardaginn 27. júní. Erlent 28.6.2026 12:12
Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Hersveitir Bandaríkjahers hafa haldið áfram árásum sínum á skotmörk í Íran í kvöld. Erlent 27.6.2026 22:34
Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Heimsmarkaðsverð á olíu hefur ekki verið lægra frá því áður en Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran í febrúar. Olíuflutningar um Hormússund hafa aukist umtalsvert frá því að Íranir og Bandaríkjamenn gerðu samkomulag sín á milli í síðustu viku. Viðskipti erlent 25.6.2026 11:00
Námufélagið Greenland Mines tryggir sér forkaupsrétt í Helguvík Námufyrirtækið Greenland Mines hefur náð samkomulagi við Reykjanes Investment sem veitir bandaríska félaginu forkaupsrétt á um 60 þúsund fermetra lóð sem áður hýsti kísilverið í Helguvík ásamt fyrirliggjandi iðnaðarhúsnæði og innviðum. Samkvæmt áformum Greenland Mines gæti svæðið orðið að miðstöð fyrir vinnslu og flutninga á sjaldgæfum málmum tengt verkefnum félagsins á Grænlandi. Innherjamolar 20.6.2026 13:01
Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið Gjaldtaka af skipum sem sigla um Hormússund hefst eftir að tveggja mánaða viðræðum Írana og Bandaríkjamanna lýkur, að sögn íranskra stjórnvalda. Samkomulag sem skrifað var undir í vikunni kveður á um að sundið verði opnað og án gjaldheimtu. Erlent 19.6.2026 06:32
Breski herinn stöðvaði skip úr skuggaflota Rússa Breski herinn stöðvaði skip úr skuggaflota Rússa á Ermarsundi snemma í morgun, að sögn Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands en aðgerðin stóð yfir í um sex klukkustundir. Hann segir þetta vera í fyrsta sinn sem breski herinn fer um borð í rússneskt olíuskip á Ermasundi. Erlent 14.6.2026 08:52
Skipagöngin samþykkt eftir pólitísk hrossakaup Skipagöngin við Stað í Noregi verða að veruleika eftir áratuga undirbúning og pólitískar deilur. Þetta varð ljóst eftir að minnihlutastjórn Verkamannaflokksins var niðurlægð með hrossakaupum í norska Stórþinginu við afgreiðslu fjáraukalaga í nýliðinni viku. Fréttir 14.6.2026 08:32
Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag frá dómi seinna skaðabótamáli Alcoa Fjarðaáls á hendur Eimskip og Samskipa vegna samráðs fyrirtækjanna á árunum 2008 til 2013. Viðskipti innlent 5.6.2026 12:35
Óttast fordæmið sem ákvörðun ráðherra setur um Baldur Sveitarstjóri Stykkishólms segir tilfærslu á ferjunni Baldri til Vestmannaeyja óheppilega, fyrirvarann of stuttan og tilfærslan ekki í samræmi við samkomulag við ríkið. Sveitarfélögin á svæðinu mótmæla ákvörðun innviðaráðherra um að færa ferjuna og sérstaklega því fordæmi sem ákvörðunin kann að skapa. Innlent 5.6.2026 12:01
Af hverju Íran óttast að samningur geti orðið upptaktur að nýjum átökum síðar Í Teheran eru þær tilslakanir sem Bandaríkin virðast tilbúin að veita taldar of góðar til að vera sannar. Umræðan 31.5.2026 15:10
Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Eimskip og Sjómannafélag Íslands (SÍ) hafa undirritað samkomulag um að aflýsa verkfalli háseta og bátsmanna á þremur skipum félagsins. Á mánudag, þann 25. maí, hófu hásetar og bátsmenn í Sjómannafélagi Íslands ótímabundið verkfall á stærstu skipum félagsins: Brúarfossi, Dettifossi og Selfossi. Innlent 29.5.2026 20:11
Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Hásetar og bátsmenn í Sjómannafélagi Íslands hófu á mánudag ótímabundið verkfall á þremur skipum Eimskips sem stendur enn. Eimskip segir það miður að ekki hafi náðst samningar og ekki liggi fyrir umfang tjóns af aðgerðum. Unnið hafi verið að því að lágmarka áhrif verkfallsins á viðskiptavini. Innlent 27.5.2026 11:54
Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Ótímabundnu verkfalli hafnaverkamanna í Sundahöfn hefur verið aflýst. Það er eftir að Samtök atvinnulífsins og Sjómannafélag Íslands gerðu samkomulag sem felur í sér að gera á hæfnigreiningu á hafnarstörfum. Viðskipti innlent 21.5.2026 21:00