Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Freyja Þórisdóttir skrifar 9. júlí 2026 17:00 Skipin BAP Union frá Perú, Amerigo Vespucci frá Ítalíu og hið bandaríska Bowdoin voru meðal þeirra fjölmörgu skipa sem sigldu niður Hudson-ána. Getty Síðustu daga, og þá sér í lagi þann 4. júlí, fóru fram viðburðir víðs vegar um Bandaríkin til að fagna 250 ára afmæli sjálfstæðis þjóðarinnar. Í erlendum miðlum kemur fram að bandaríska þingið hafi úthlutað 150 milljónum bandaríkjadala til hátíðarhaldanna en upphæðin nemur um átján billjónum íslenskra króna. Meðal dagskrárliða var vegleg skipasýning en aðrir viðburðir voru meðal annars fylkissýning til heiðurs öllum landshlutum Bandaríkjanna, yfirflug orrustuþotna og opnun forsetabókasafns.
Til viðbótar við upphæðina sem þingið lagði til varði hópurinn Freedom 250, sem Donald Trump Bandaríkjaforseti stofnaði, nokkrum milljónum bandaríkjadala í afmælisveisluna. Forsetinn varði 3. júlí, aðfaranótt sjálfstæðisdagsins, á ferðalafi en í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) kemur fram að hann hafi verið viðstaddur fyrstu flugeldasýninguna í sex ár við Mount Rushmore þjóðarminnismerkið, höggmynd í Black Hills sem sýnir fjóra sögulega forseta Bandaríkjanna, í Suður-Dakóta. Skip frá öllum heimshornum Sama dag mátti líta skipaflota sem lá fyrir akkerum rétt undan landi við Sandy Hook-flóann í New Jersey en á sjálfan sjálfstæðisdaginn, laugardaginn 4. júlí, sigldu skipin svo niður Hudson-ánna og inn í New York höfn í tæka tíð fyrir seglskipasýningu. Í umfjöllun staðarmiðilsins News 12 segir að himinhá möstur, litríkir fánar og söguleg skip frá öllum heimshornum hafi prýtt flóann og fólk hafi þar safnast fyrir og skoðaði þau í gegnum sjónauka og tók myndir. Við New York höfn hafi svo milljónir fylgst með skipunum sigla í höfn. Hér að neðan má sjá brotabrot þeirra skipa sem voru til sýnis. Skipið Gorch Fock liggur við ankeri í Bremerhaven sem hluti af Sail Bremerhaven, þann 15. ágúst 2025 í Bremerhaven í Þýskalandi. Getty Skipið Juan Sebastián Elcano tilheyrir spænska sjóhernum og var sjósett árið 1928. Það er ætlað til þjálfunar sjóliðsforingjaefna í sjóliðsforingjaskólanum í Marín. Áhöfnin telur 197 manns.Getty BAE Guayas frá Ekvador siglir inn Bostonhöfn á Skrúðsiglingunni á Sail Boston þann 17. júní 2017.Getty Ítalska skonnortan Amerigo Vespucci þann 4. júlí 1986 í New York.Getty Skip bandarísku strandgæslunnar, Eagle, siglir inn í Bostonhöfn í skrúðsiglingu Sail Boston laugardaginn 17. júní árið 2017.Getty Argentínska skipið „Libertad“ siglir inn í höfnina til að leggjast að Überseebrücke við Landungsbrücken í Hamborg, þann 5. júlí 2017.Getty Hið pólska Dar Mlodziezy í skrúðsiglingu fyrir Tall Ships-kappsiglinguna 2014, Falmouth, Englandi.Getty NRP Sagres siglir í Cascais-flóa 5. janúar 2020 í Lissabon, Portúgal. Getty
Skipaflutningar Bandaríkin Tímamót Menning Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira