Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Árni Sæberg skrifar 6. október 2026 15:55 Eyjólfur Ármannsson er innviðaráðherra. Vísir/Vilhelm Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að gert sé ráð fyrir kaupum á varamótorum í ferjuna Herjólf í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Rekstrarfélag Herjólfs óskaði í gær eftir 65 milljónum króna til að geta keypt tvo varamótora í ferjuna.
Líkt og Vísir fjallaði um í dag sendi Herjólfur ohf. inn umsögn til fjárlaganefndar Alþingis í gær, þar sem kemur fram að hætta yrði við kaup á tveimur varamótorum fyrir ferjuna ef ríkið tryggði ekki fjármögnun þeirra. Samkvæmt félaginu hafa mótorarnir þegar verið pantaðir og þrjátíu prósent kaupverðsins greidd en það segist ekki eiga fyrir eftirstöðvunum. Eyjólfur innviðaráðherra birti í dag færslu á Facebook í tilefni af frétt Vísis um málið. Hann vilji upplýsa um stöðu málsins. „Til að taka af allan vafa er gert ráð fyrir þessum útgöldum í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027. Þar var fjármagni sérstaklega forgangsraðað til að mæta kaupum á varamótorum fyrir ferjuna.“ Síðastliðið sumar hafi hann sagt að tryggja þyrfti sérsmíðaða varamótora svo að staðan sem kom upp í vor endurtaki sig ekki. Við það verði staðið. „Varamótorar eru ódýr trygging. Kostnaður vegna aðkomu Baldurs í vor hljóp á hundruðum milljóna króna. Varamótorarnir kosta brot af þeirri fjárhæð og stytta siglingarof vegna sambærilegrar bilunar úr mánuðum í nokkra daga. Þetta varðar ekki aðeins Vestmannaeyjar. Þegar Baldur var fenginn til Eyja í vor röskuðust ferjusamgöngur um Breiðafjörð á sama tíma. Með varamótora til taks dregur úr líkum á að grípa þurfi til Baldurs á ný og þannig eru ferjusamgöngur bæði til Vestmannaeyja og um Breiðafjörð betur tryggðar. Öruggar ferjusamgöngur eru mikilvæg grunnþjónusta og þannig verður á málinu haldið.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Herjólfur Samgöngumál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira