Innlent

Rubio lentur á Ís­landi

Samúel Karl Ólason skrifar
Marco Rubio heilsar Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur eftir lendingu.
Marco Rubio heilsar Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur eftir lendingu.

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er lentur í Keflavík. Hann segist mættur hingað til að ræða sameinleg forgangsmál Íslands og Bandaríkjanna, eins og öryggi á norðurslóðum, efnahagstengsl og varnarsamstarf.

Hingað er ráðherrann kominn til að funda með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, og heldur hann síðan til Grikklands og Frakklands á morgun.

Áður en hann steig upp í Boeing C-32A flugvél flughers Bandaríkjanna sem notuð er til að flytja ráðherra og embættismenn var Rubio spurður út í ferðina og sagðist hann spenntur fyrir henni.

Í tilkynningu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu hefur komið fram að Rubio muni ræða „efnahagsmál og öryggissamstarf“ á Íslandi.

Þorgerður og Rubio munu funda á morgun og mun hann einnig hitta Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra.

Hér að neðan má sjá myndband af því þegar utanríkisráðherrann kom til Reykjavíkur undir kvöld.

Á Facebooksíðu utanríkisráðuneytisins segir að tvíhliða samskipti Íslands og Bandaríkjanna verði til umræðu á fundunum. Einnig verði rætt við Rubio um samstarf í varnarmálum, öryggi á norðurslóðum og viðskipti milli ríkjanna. Þá muni alþjóðamál einnig bera á góma.

Sjá einnig: Kemur ekki til greina að Ís­land segi sig frá stríðs­glæpa­dómstól

Ráðherrann birti tíst eftir lendinguna þar sem hann segist mættur á klakann til að ræða sameiginleg forgangsmál Íslands og Bandaríkjanna. Hann nefnir öryggi á norðurslóðum, sterkari efnahags- og orkumálatengsl og nánara varnarsamstarf.

Þegar blaðamaður sagði fyrr i dag „Nú ert þú á leið til Íslands, augljóslega í dag...“ greip Rubio frammí fyrir honum og sagði: „Er það!?! Enginn sagði mér það!“

Þessi hluti svars Rubio var klipptur úr myndbandi AP fréttaveitunnar sem birt var fyrr í dag. Þá sagðist hann aldrei hafa komið hingað til lands áður.

Billy Long sendiherra, Þorgerður Katrín og Rubio.
Þríeykið gengur frá flugvélinni.

Lögreglan er með mikinn viðbúnað niður í miðbæ, þar sem Rubio og föruneyti hans gista í nótt.

Frá miðbænum í kvöld.

Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræddi komu Rubios til Íslands í Reykjavík síðdegis í dag.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts

Íslendingar voru ekki einir um það að lítast ekki á blikuna þegar þeir sáu landsvæði sitt sveipað bandarískum fánalitum á korti sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti á samfélagsmiðlum í byrjun mánaðar. Frakklandsforseti og Kanadamenn senda Bandaríkjaforseta væna pillu vegna kortsins.

Sniðganga bandamenn á NATO-fundum

Ríkisstjórn Donalds Trump er að sniðganga nokkra mikilvæga bandamenn Bandaríkjanna og evrópsk hergagnafyrirtæki fyrir fund sem halda á í mánuðinum. Fundurinn á að snúast um framtíð Atlantshafsbandalagsins en mörgum af þeim aðildarríkjum sem verja hvað mestu til varnarmála hefur ekki verið boðið á hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×