Innlent

Höfuð­borgar­svæðið skalf

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Veðrið leit ekkert sérlega illa út við Höfða í Reykjavík í morgun.
Veðrið leit ekkert sérlega illa út við Höfða í Reykjavík í morgun. Vísir/Sigurjón

Jarðskjálfti fannst víða um höfuðborgarsvæðið nú um klukkan tuttugu mínútur í eitt eftir miðnætti. Hann fannst bæði í vesturbæ Reykjavíkur, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og á Álftanesi svo dæmi séu tekin.

Bjarki Friis, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir fyrstu mælingar benda til þess að skjálftinn hafi átt upptök sín austur af Kleifarvatni sunnan höfuðborgarsvæðisins og hafi verið um 3,4 að stærð. 

Um fimmtán eftirskjálftar hafi fylgt í kjölfarið.

Fréttin var uppfærð klukkan 07:00 eftir að frekari mælingar bárust. Áður sagði að skjálftinn hafi verið um 3,8 að stærð en hann reyndist hafa verið um 3,4 að stærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×