Marco Rubio á leið til Íslands Agnar Már Másson skrifar 1. október 2026 18:07 Þorgerður Katrín og Marco Rubio þegar þau hittust í tengslum við fund Atlantshafsbandalagsins í Antalya í Tyrklandi í fyrra. Stjórnarráðið Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kemur til Íslands í næstu viku eftir að hafa þegið boð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um heimsókn. Hans má vænta hinn 5. október en að því loknu heldur Rubio til Grikklands og Portúgal.
Frá þessu er greint í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu en þar er haft eftir Þorgerði að það sé mikið ánægjuefni að Rubio hafi þegið heimboðið „sem ég ítrekaði við hann í New York á dögunum“ en þau hittust á hliðarlínum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sem haldið var í síðustu viku. Í tilkynningu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu segir að Rubio sé á leið til Íslands, síðan Grikklands og svo Frakklands. Í bandarísku tilkynningunni segir að Rubio muni ræða „efnahagsmál og öryggissamstarf“ á Íslandi en á Grikklandi hyggist hann fara fyrir sendinefnd um varna- og orkumál og í Portúgal muni hann einnig ræða varna-, efnahags- og samstarf á sviði tækni. Heimsóknin til landanna þriggja standi yfir frá fimmtudeginum 5. október til 8. október. „Samstarf Íslands og Bandaríkjanna stendur á traustum grunni og heimsókn hans hingað er til marks um það,“ er haft eftir Þorgerði í tilkynningu utanríkisráðuneytisins. Þá segir að það hafi verið sérstakt áherslumál hennar í embætti utanríkisráðherra að styrkja tengsl Íslands við nánustu vina- og bandalagsríki beggja vegna Atlantshafsins. „Við eigum í virku samtali við Bandaríkin um sameiginleg hagsmunamál þar sem samstarf í varnarmálum, öryggi á norðurslóðum og viðskipti milli ríkjanna vega hvað þyngst. Það er tilhlökkunarefni að taka á móti utanríkisráðherra Bandaríkjanna sem mun styrkja okkar góða samband enn frekar,“ er haft eftir henni að lokum. Rubio er einn helsti samherji Donalds Trump Bandaríkjaforseta og hafa bæði hann og J.D. Vance varaforseti verið orðaðir við forsetaframboð í forsetakosningunum í Bandaríkjunum árið 2028. Á seinna kjörtímabili Trump hefur reynt á samstarf innan Atlantshafsbandalagsins, meðal annars vegna tollastríðs Trump og hótana hans vegna Grænlands, en hinu síðarnefnda virðist hafa verið fundinn farsæll endi eftir að Grænland, Danmörk og Bandaríkin undirrituðu nýtt varnarsamkomulag í síðustu viku. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum úr tilkynningu bandaríska utanríkisráðuneytisins auki frekari bakgrunnsupplýsinga.
Bandaríkin Donald Trump Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Heimsókn Marco Rubio til Íslands Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira