Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Árni Sæberg skrifar 30. september 2026 15:03 Banaslysið varð á Suðurlandsvegi við Vík í Mýrdal í sumar. Vísir/Egill Erlendur karlmaður hefur verið dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir manndráp af gáleysi, með því að verða valdur að banaslysi á Suðurlandsvegi við Vík í júní. Aðstandendur hins látna krefja manninn um tæplega fimmtíu milljónir króna í skaða- og miskabætur.
Í dómi þess efnis, sem kveðinn var upp í gær, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir að hafa laugardaginn 20. júní síðastliðinn ekið austur Suðurlandsveg, við vegamót að Kerlingardalsvegi í Mýrdalshreppi, tekið þar vinstri beygju þegar hann hugðist aka inn á Kerlingardalsveg, án nægjanlegrar aðgæslu og varúðar og eigi fær um að stjórna bifreiðinni örugglega vegna svefnleysis, í veg fyrir bifhjól, sem ekið hafi verið úr gagnstæðri aksturstefnu, með þeim afleiðingum að bifhjólið skall framan á bifreiðinni og ökumaður bifhjólsins kastaðist af bifhjólinu, út fyrir veginn norðaustan við vegamótin. Allt hafi það verið með þeim afleiðingum að ökumaður bifhjólsins lést nær samstundis á vettvangi af völdum alvarlegs brots í gegnum brjósthrygg og í sama mund slits á ósæðinni með kjölfarandi stórblæðingu inn í miðmætið og brjóstholið. Þess hafi verið krafist að maðurinn yrði dæmdur til refsingar, greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar. Þá hafi þrír aðstandendur hins látna krafið manninn um alls 47 milljónir króna í skaða- og miskabætur. Maðurinn hafi játað brot sín skýlaust og gengist við bótaábyrgð vegna þeirra. Hann hafi þó mótmælt kröfum aðstandendanna sem of háum og því hafi sá hluti málsins verið klofinn frá sakamálinu og verið vísað til meðferðar í sérstöku einkamáli. Refsing mannsins hafi verið hæfilega ákveðin sex mánaða fangelsisvist, skilorðsbundin til tveggja ára, og sex mánaða svipting ökuréttar. Þá greiði hann allan sakarkostnað, alls 3,5 milljónir króna.
Samgönguslys Dómsmál Mýrdalshreppur Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira