Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 30. september 2026 15:13 María Heimisdóttir landlæknir segir vísbendingar um að í auknum mæli sé verið að nota önnur lyf en hefðbundin svefnlyf við svefnvanda. Hildur Þórarinsdóttir lyf- og öldrunarlæknir segir slík lyf líka hafa aukaverkanir líkt og hefbundin svefnlyf. Vísir Notkun ofnæmis, geðrofs og taugalyfja hefur stóraukist hér á landi á innan við áratug. Vísbendingar eru um að aukningin tengist því að lyfin séu líka notuð við svefnvanda. Landlæknir segir þróunina kalla á nánari skoðun. Þó skylt sé að skýra af hverju lyfjum sé ávísað sé það ekki alltaf gert.
Þrátt fyrir að notkun hefðbundinna svefnlyfja á borð við Imovane og Stilnoct hafi dregist saman á síðustu árum fá enn tugþúsundir Íslendinga slík lyf afgreidd og í alþjóðlegum samanburði er neyslan enn mikil hér á landi. Geðrofs- og taugalyf jafnvel notuð við svefnvanda Hluti meðferðar við svefnvanda hefur færst yfir í aðra lyfjaflokka. Þar á meðal eru slævandi ofnæmislyf eins og Phenergan og Atarax, Pregabalín, sem er notað við taugaverkjum og flogaveiki og Quetiapinum sem er geðrofslyf. Notendur Quetiapinum, Pregabalíns og Atarax eru nú um og yfir tvöfalt fleiri en fyrir áratug. Notendum Phenergan hefur á sama tíma fjölgað um helming. Mikil aukning hefur orðið á neyslu ofnæmis-, tauga- og geðrofslyfja hér á landi. Hluti skýringar er að þau eru notuð við svefnvanda. (Heimild: Landlæknir) María Heimisdóttir landlæknir segir þó erfitt að gera sér grein fyrir því hversu stór hluti þessara lyfja er notaður við svefnvanda þar sem það komi ekki alltaf skýrt fram á lyfseðlum. „Það getur verið að í einhverjum tilvikum séu læknar að ráðleggja fólki að taka þessi lyf við svefnvanda frekar en hefðbundin svefnlyf eða hin svokölluðu Z-lyf og önnur svefn- og slævandi lyf,“ segir María. Læknum skylt að gefa upp ástæðu lyfjagjafar María segir erfitt að fullyrða um umfangið þar sem ábending fyrir lyfjagjöfinni komi ekki alltaf fram á lyfseðlum. „Þó að læknum sé skylt að gefa upp hvers vegna lyfi er ávísað þá kemur það ekki alltaf fram á lyfseðlum,“ segir María. Aðspurð hvort gera ætti skýrari kröfu um að læknar skrái ástæðu lyfjagjafar svarar María: „Almennt held ég að það væri til bóta.“ „Ekki hættulaus lyf“ Í nýjum Kompásþætti á Vísi, þar sem fjallað er um svefnlyfjanotkun Íslendinga og afleiðingar hennar, segir Hildur Þórarinsdóttir lyf- og öldrunarlæknir að slævandi ofnæmislyf geti haft alvarlegar aukaverkanir rétt eins og hefðbundin svefnlyf. „Þessi lyf hafa líka alvarlegar aukaverkanir, sérstaklega eftir því sem fólk verður eldra,“ segir Hildur. María segir mikilvægt að sama varúð gildi um lyf sem notuð eru við svefnvanda, óháð því í hvaða lyfjaflokki þau eru. „Svefnvandi er almennt ekki eitthvað sem á að meðhöndla mánuð eftir mánuð og jafnvel ár eftir ár,“ segir hún. Lyfjameðferð taki ekki á rót svefnvandans heldur fyrst og fremst einkennunum. „Okkur finnst mikilvægt að þessi lyf sem eru notuð við svefnvanda séu eingöngu notuð í skamman tíma.“ Hún áréttar jafnframt að lyfin séu ekki hættulaus og að fólk eigi ekki að hætta notkun þeirra skyndilega án samráðs við heilbrigðisstarfsfólk. Álag í kerfinu gæti haft áhrif Aðspurð hvers vegna Íslendingar noti svo mikið af lyfjum við svefnvanda kveðst María erfitt að nefna eina skýringu. Hún bendir áað Íslendingar noti almennt meira af lyfjum en margar samanburðarþjóðir og veltir því upp hvort álag geti haft áhrif. „Eitt sem ég velti fyrir mér er hvort álag og mönnun í heilbrigðiskerfinu geri það að einhverju leyti að verkum að það sé hreinlega ekki svigrúm til þess að leita annarra lausna,“ segir María en tekur fram að hún geti ekki fullyrt að svo sé. Að lokum segir hún mikilvægt að ræða við lækna og heilbrigðisstéttir um að spara þurfi ávísun svefnlyfja og benda frekar á aðrar leiðir til að hjálpa fólki sem glímir við svefnleysi.
Lyf Embætti landlæknis Landspítalinn Eldri borgarar Heilsa Heilbrigðismál Kompás Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira