Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. september 2026 12:39 Brynhildur Bolladóttir er nýr formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl, hér fyrir miðju ásamt nýrri stjórn þó Gísla Martein vanti á myndina. Brynhildur Bolladóttir var kjörin formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl á aðalfundi samtakanna sem haldinn var í gær. Samtökin segir tímabært að skipulagsyfirvöld, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, séu meðvituð um mikilvægi þess að greiða veginn fyrir virkum samgöngumátum. Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður er einnig í stjórn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. Þar segir að bíllaus lífstíll eigi að vera raunhæfur og aðgengilegur kostur fyrir fleiri, enda sýni kannanir að stór hópur fólks vilji geta ferðast öðruvísi en á bíl. Margt gott hafi áunnist í þátt átt síðastliðin ár en gera megi betur. Vilja samtökin vinna með stjórnvöldum, sveitarfélögum, fyrirtækjum og almenningi að lausnum sem auki ferðafrelsi fólks. „Það er tímabært fyrir skipulagsyfirvöld, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, að vera meðvituð um mikilvægi þess að greiða veginn fyrir virkum samgöngumátum en það er besta og eina leiðin til að bæta umferð til framtíðar. Sem dæmi má nefna að á dagskrá umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar á morgun eru þrír dagskrárliðir um beygjuakreinar á Höfðabakka/Bæjarhálsi og m.a. tillaga meirihlutans um að „vinda ofan af þrengingum á gatnamótum á Höfðabakka/Bæjarhálsi“, sem lýsir mjög vel hugarfarinu - en beygjuvasar eru aðeins hugsaðir fyrir bíla og hættulegir öllum öðrum.“ Þá nefna samtökin að einnig eigi að ræða um endurskoðun deiliskipulags Suðurlandsbrautar, sem „hafi ótrúlegt en satt“ orðið að risastóru kosningamáli í sveitarstjórnarkosningum í vor. Þar eigi að halda í pláss fyrir ´bila á kostnað mannvænlegs umhverfis, þar sem fólk langi til að vera, ganga, hjóla og taka almenningssamgöngur. „Hafa ber í huga að mikil íbúðauppbygging er að rísa í nágrenni Suðurlandsbrautar og búast má við fjölda fólks sem þarf að ganga yfir götuna dag hvern á leið í skóla og íþróttastarf. Að okkar mati vantar að stjórnvöld taki tillit til þarfa fólks frekar en bíla í þessu samhengi og óskandi að sá fókus verði til umræðu í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar,“ segir nýkjörinn formaður Brynhildur Bolladóttir. Meðstjórnendur og varamenn eru þau: Albína Pálsdóttir, Anna Margrét Ásbjarnardóttir, Geir Finnsson, Gísli Marteinn Baldursson, Halldóra Þórsdóttir, Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir, Kjartan Sveinn Guðmundsson, Rán Flygenring, Sveinn Þórhallsson og Viktor Lorange.
Félagasamtök Samgöngumál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira