Möguleg tengsl við heilabilun Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 29. september 2026 14:00 Hildur Þórarinsdóttir lyf- og öldrunarlæknir segir mikilvægt að fylgjast með rannsóknum sem sýna möguleg tengsl vinsælla svefnlyfja og heilabilunar. Anna Birna Almarsdóttir prófessor í félags- og lyfjafræði tekur undir það. Vísir Sífellt fleiri rannsóknir benda til mögulegra tengsla milli langtímanotkunar vinsælla svefnlyfja og heilabilunar. Sérfræðingar leggja þó áherslu á að frekari rannsókna sé þörf. Hins vegar er þegar vel þekkt að meðal mögulegra aukaverkana algengra svefnlyfja eru minnisleysi og minnistruflanir.
Í samanburði OECD fyrir árið 2024 var magn svefn- og slævandi lyfja á hvern íbúa á Íslandi það næstmesta meðal 34 ríkja sem gögn lágu fyrir um. Þótt notkunin hafi dregist saman hér á landi undanfarin ár er Ísland enn meðal þeirra þjóða þar sem neyslan er hvað mest. Notkunin eykst jafnframt verulega með hækkandi aldri og konur nota tæplega tvöfalt meira af svefnlyfjum en karlar og hafa gert um árabil. „Elsti hópurinn er alltaf sá sem notar langmest. Jafnvel þriðjungur áttræðra og eldri er á þessum lyfjum og um fimmtungur fólks á aldrinum 60 til 79 ára. Í raun ætti notkunin að minnka með hækkandi aldri, því áhættan og aukaverkanirnar aukast eftir því sem fólk eldist,“ segir Anna Birna Almarsdóttir, prófessor í félags- og klínískri lyfjafræði við Kaupmannahafnarháskóla. Hún leiddi átakið Sofðu vel í fyrra sem hafði það að markmiði að fræða fólk um svefnlyf og áhrif þeirra. Ísland notar næstmest af svefnlyfjum af þjóðum OECD.Vísir/Hjalti Möguleg tengsl við heilabilun Sífellt fleiri erlendar rannsóknir benda jafnframt til mögulegra tengsla milli langtímanotkunar ákveðinna svefnlyfja og heilabilunar. Hildur Þórarinsdóttir lyf-og öldrunarlæknir segir brýnt að fylgjast vel með þróuninni. „Það virðast vera tengsl á milli þess að þróa með sér heilabilunarsjúkdóm og notkunar svefnlyfja. Stórar rannsóknir eru að sýna fram á að það eru aðeins auknar líkur á að slíkt gerist ef þú ert að nota þessi lyf í lengri tíma. Þá Benzólyfin, Z-lyfin og gömlu ofnæmislyfin sem stundum eru notuð eins og Phenergan og Atarax,“ segir Hildur. Hildur segir nauðsynlegt að rannsaka þessi tengsl betur. Anna Birna tekur undir það. „Það er sífellt að koma meiri vitneskja um að þetta getur haft áhrif á heilann og minnið. Þetta er mjög alvarleg aukaverkun en hún er ekki alveg eins negld niður eins og hinar ennþá í rannsóknum,“ segir Anna Birna. Þær Hildur og Anna Birna eru viðmælendur í nýum Kompásþætti á Vísi um svefnlyfjanotkun og áhrif þeirra
Kompás Svefn Heilsa Heilbrigðismál Embætti landlæknis Lyf Eldri borgarar Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira