„Sorglegt að þetta sé staðan“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 28. september 2026 21:12 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra var til viðtals í Reykavík síðdegis. Vísir/Einar Dómsmálaráðherra segir hótanir í garð ráðamanna vera ömurlegt frávik frá því sem að öðru leyti einkenni íslenskt samfélag. Hún sé sjálf meðal þeirra ráðamanna sem hafi borist hótanir.
Þorbjörg Sigríður Gunnarsdóttir dómsmálaráðherra var til viðtals í Reykjavík Síðdegis fyrr í dag. Þar segir hún Þorgerði hafa sætt alvarlegum hótunum sem voru þess eðlis að ríkislögreglustjóri hafi brugðist með þeim hætti að sérsveitarmaður fylgdi Þorgerði í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst. Ríkisútvarpið fjallaði um málið um helgina. „Auðvitað er sorglegt að þetta sé staðan. Sem betur fer er þetta frávik að svona mikla gæslu þurfi til,“ segir Þorbjörg og bætir við: „Ég viðurkenni það alveg að maður verður dapur þegar maður sér þetta. Þetta er ömurlegt frávik frá því sem að öðru leyti einkennir íslenskt samfélag,“ segir Þorbjörg. Þorbjörg ræðir að auki um breytingar á útlendingalögum í viðtalinu í Reykjavík síðdegis. Viðtalið í heild sinni má hlusta á í spilaranum hér að neðan. Greint var frá því fyrr á árinu að lögreglan hefði þurft að hafa afskipti af fólki sem hefur haft í alvarlegum hótunum gagnvart ráðamönnum á Íslandi og fólki sem stígur fram í opinberri umræðu. Sjá einnig: Lögregla bankar upp á vegna hótana í garð ráðamanna „Við erum opið og frjálst samfélag þar sem fólk fer saman í sundlaugar um helgar, verslar í sömu verslunum og þannig er það að langsamlega stærstu leyti,“ segir Þorbjörg. Vonandi ekki nýr veruleiki Hún voni að þetta sé ekki nýr raunveruleiki sem íslenskt samfélag ætli að venjast. „Vonandi ætlum við ekki að venjast þessu heldur að komast upp úr þessum fótsporum.“ Sjálfri hafi henni borist hótanir en ekki í líkingu við þær sem talað er um að Þorgerði hafi borist. Hætta á að slíkar hótanir fæli fólk frá stjórnmálaþátttöku Þorbjörg svarar því játandi að hætta sé á því að slíkar hótanir hafi áhrif á lýðræðið með þeim hætti að fólk veigri sér við því að taka þátt eða starfa í stjórnmálum. „Það er auðvitað hættan ef það fer að draga úr áhuga fólks á nýliðun, að fólk upplifi starfið með þeim hætti að það vilji ekki taka þátt.“
Lögreglumál Reykjavík síðdegis Reykjavíkurmaraþon Bylgjan Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira