„Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 28. september 2026 12:23 Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra ræddi náttúrupassann í Bítinu. Vísir/lýður Atvinnuvegaráðherra telur sig mega gera greinarmun á þeim sem eru búsettir á Íslandi og erlendum ferðamönnum þegar kemur að gjaldtöku á ferðamannastöðum, þrátt fyrir inntak EES-samningsins, enda sé ekki verið að mismuna fólki eftir þjóðerni.
Frumvarp atvinnuvegaráðherra um náttúru- og innviðagjald er nú í samráðsgátt en samkvæmt því verða erlendir ferðamenn rukkaðir um auðlindagjald sem nemur 4.500 krónum fyrir aðgang að Gullfossi, Geysi og þjóðgarðinum á Þingvöllum. Ekki verður innheimt gjald af þeim sem búsettir eru á Íslandi. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir að Ferðamálastofu verði falið að halda utan um verkefnið sem fer fram í gegnum greiðslugátt. „Skattgreiðendur hér á landi geta farið þangað inn og hún er auðvitað á mörgum tungumálum vegna ferðamannanna fyrst og fremst. Þeir geta slegið inn kennitölu eða persónuupplýsingar og fengið til baka staðfestingu á því hvort þeir eigi að greiða þetta eða ekki en þeir fá þennan QR-kóða sem þeir taka í símann sinn eða geta prentað út, allt eftir því hvað fólki þykir henta.“ Hún óttast ekki að tekjur af ferðamönnum dragist saman við þessa aðgerð og að ferðamenn hætti við að sækja ferðamannastaðina enda sé um hóflega greiðslu að ræða. Þetta sé þróunin alls staðar í heiminum. „Og það er bara þróunin í þá átt alls staðar að ferðamenn taki með greiðslum ríkari þátt í því að viðhalda þessum stöðum, vernda innviði og passa upp á uppbyggingu. Við vitum það líka í könnunum sem við höfum látið gera að greiðsluvilji ferðamanna er talsverður vegna þess að þeir eru mjög meðvitaðir um þetta líka.“ Aðspurð hvort það megi mismuna fólki eftir búsetu á þennan hátt með tilliti til EES samningsins segist Hanna Katrín telja svo vera. „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti heldur greiða þeir sem greiða skatt hér á landi meðal annars með sínum skatttekjum í innviðauppbyggingu á Íslandi. Mjög aukin þörf er á þessari innviðauppbyggingu vegna ferðamanna á þessum fjölsóttu ferðamannastöðum og það er eðlilegt að þeir taki þátt í því.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Geysir Gullfoss Þingvellir Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira