Tómas kominn aftur til starfa Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 26. september 2026 18:52 Tómas Guðbjartsson skurðlæknir. Vísir/Egill Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir er kominn aftur til starfa á Landspítalanum eftir rúmlega tveggja ára veikindaleyfi.
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans staðfestir þetta í samtali við fréttastofu en Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Greint var frá því í janúar 2024 að Tómas væri farinn í leyfi frá Landspítalanum. Samkvæmt umfjöllun Ríkisútvarpsins kom hann aftur til starfa fyrr í þessum mánuði. Ríkið bótaskylt Íslenska ríkið var dæmt bótaskylt í maí á þessu ári vegna þess sem héraðsdómur mat saknæma háttssemi Tómasar í tengslum í ígræðslu plastbarka í Erítreumanninn Andemariam Bayene. Merhawit Tesfaslase, ekkja Andemariams Teklesenbet Beyene, höfðaði mál gegn íslenska ríkinu fyrir héraðsdómi vegna tjóns og miska eftir andlát Andemariams. Hann fékk ígræddan plastbarka í Svíþjóð í aðgerð Paolo Macchiarini. Aðgerðin dró hann til dauða þrjátíu mánuðum síðar. Seinna átti eftir að koma í ljós að Macchiarini hafði ekki fengið leyfi siðanefndar fyrir aðgerðinni og hann dæmdur til fangelsisvistar vegna aðgerðarinnar og tveggja annarra. Meðferðarlæknir Andemariams var Tómas Guðbjartsson skurðlæknir. Hann tók einnig þátt í aðgerðinni örlagaríku í Svíþjóð. Dómnum áfrýjað Í dómnum segir að Tómas hafi sýnt stórfellt gáleysi sem leiddi til tjóns og andláts Andemariams, hann hafi brotið lög og reglur um sjúkraskrár, farið gegn læknalögum og fram hjá yfirmönnum sínum í aðdraganda aðgerðarinnar. Þá segir að Tómas hafi nýtt sér dauðvona mann í viðkvæmri stöðu í auglýsingaskyni og sem tæki til að efla akademískan frama og eigin hagsmuni. Í kjölfar dómsins sagði Tómas fréttaflutning af málinu hafa verið óvæginn. Dómari héraðsdóms hefði snúið alvarlega út úr málavöxtum í rökstuðningi sínum og að atvikalýsing þar sé í engu samræmi við það sem raunverulega gerðist í málinu. Íslenska ríkið hefur ákveðið að áfrýja dómi héraðsdóms.
Plastbarkamálið Landspítalinn Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira