Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. september 2026 16:37 Ráðherra hefur lagt til breytingar á lögum um Ríkisútvarpið. Vísir/Vilhelm Allar tekjur sem Ríkisútvarpið hefur af auglýsingasölu umfram 2,8 milljarða verða dregnar frá útvarpsgjaldi fjölmiðilsins verði af nýju frumvarpi ráðherra. Hann leggur til breytingar á lögum um ríkismiðilinn en ætlar ríkinu sömuleiðis að taka á sig fjögurra milljarða skuld.
Birt voru drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið í samráðsgátt fyrr í dag. Lögin eru byggð á tillögum úr fjölmiðlapakka sem Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, lagði kynnti í desember 2025. Sá pakki var til þess að bæta stöðu einkarekinna fjölmiðla. Útvarpsgjaldið sem rennur til Ríkisútvarpsins verður lækkað um fjárhæð sem nemur tíu prósentum af auglýsingatekjum Rúv á hverju ári. Litið verður til meðaltekna sem Rúv hefur fengið af auglýsingatekjum síðustu fjögur ár til að reikna út hlutfallið. Sömuleiðis verður sett þak á hversu miklar tekjur fjölmiðillinn megi hafa af sölu auglýsinga og verður allt umfram þá fjárhæð dregið af tekjum sem hann hefur af útvarpsgjaldinu. Þakið er 2,8 milljarðar króna. „Hámarksfjárhæð tekur mið af meðaltali auglýsingatekna Ríkisútvarpsins 2022-2025 og ráðgert er að hún verði endurreiknuð við undirbúning fjárlaga hverju sinni að teknu tilliti til verðlagsbreytinga samkvæmt vísitölu neysluverðs,“ segir í samráðsgátt. Áformað er að hækkun fjárframlaga til einkarekinna fjölmiðla taki mið af tekjum ríkissjóðs af útvarpsgjaldi sem rennur ekki til Ríkisútvarpsins. Taka á sig fjögurra milljarða skuld „Komið verður til móts við tekjutap RÚV með því að færa skuldir vegna eldri lífeyrisskuldbindinga RÚV frá félaginu, eins og gert hefur verið hjá nær öllum opinberum aðilum og fyrirtækjum sem sinna opinberum rekstri,“ segir í samráðsgátt. Fjármálaráðherra bætti heimild við í nýju fjárlagafrumvarpi um að taka yfir skuldabréf Rúv. Höfuðstóll lánsins er um fjórir milljarðar króna og áætluð árleg greiðslubyrði er um 285 milljónir króna að meðtöldum verðbótum. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd, gagnrýndi þessa heimild í viðtali á Vísi. „Það er augljóst að ef farið verður í þessar breytingar þá munu breytingarnar ganga út á það að Ríkisútvarpið, sem er eini fjölmiðillinn sem er vel haldinn af fjármunum, verði jafnsett en skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á,“ sagði Guðlaugur meðal annars. Fá að fækka útvarpsstöðvum Verði frumvarpið að lögum eins og það er núna hefur Rúv einnig heimild til þess að fækka útvarpsstöðvum. Núna er Rúv með þrjár stöðvar, Rás 1, Rás 2 og Rondó en sú síðastnefnda er einungis aðgengileg á netinu. „Ekki er talið nauðsynlegt eða æskilegt að fjöldi rása Ríkisútvarpsins sé sérstaklega tilgreindur í lögum,“ segir í samráðsgátt. Þegar Logi kynnti fjölmiðlapakkann í desember var þessi heimild einnig nefnd og Stefán Eiríksson útvarpsstjóri spurður hvort Rúv hygðist nýta sér það. Hann sagði það ekki í farvatninu að leggja niður Rás 2. „Rás 2 er gríðarlega mikilvægur vettvangur. Öflug útvarpsstöð, yfir fjörutíu ára gömul, sem sinnir mikilvægu menningarhlutverki hér á landi og mun gera það um ókomna tíð, geri ég ráð fyrir,“ sagði Stefán.
Ríkisútvarpið Fjölmiðlar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira