Endurskoða samning SÁÁ Bjarki Sigurðsson skrifar 25. september 2026 08:08 Sigurður H. Helgason er forstjóri Sjúkratrygginga. Sjúkratryggingar og SÁÁ hafa náð saman um að endurskoða samning sinn til að styrkja stjórnarhætti og skapa skýrari umgjörð um heilbrigðisþjónustu SÁÁ. Tryggja þurfi fagleg gæði og góða stjórnarhætti.
Töluvert hefur gengið á hjá SÁÁ eftir að starfslokasamningur var gerður við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, forstjóra SÁÁ. Í kjölfarið tilkynntu Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga, og Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri á Vík, að þær myndu láta af störfum. Í viðtali á Vísi fordæmdi Þóra Björk vinnubrögð stjórnar SÁÁ sem hafi haft óeðlileg afskipti af meðferðarstarfi SÁÁ og logið síðan í fjölmiðlum. Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, þvertók fyrir að hafa logið. Ekki verður tekið við nýjum sjúklingum inn á Sjúkrahúsið Vog um óákveðinn tíma vegna mönnunarvanda. Nýr framkvæmdastjóri lækninga er eini sérfræðilæknirinn að störfum og aðrir mæta ekki til vinnu. Endurskoða samninga Í tilkynningu frá Sjúkratryggingum er sagt að brugðist sé við ástandinu með því að endurskoða núgildandi samkomulag. „Markmiðið með endurskoðuninni er að styrkja ákvæði samnings aðila um stjórnarhætti sem meðal annars tryggi armslengd milli félagasamtakanna og faglegrar stjórnunar heilbrigðisþjónustu. Á sama tíma verði tryggt að hér eftir sem hingað til verði heilbrigðisþjónustan veitt í nafni SÁÁ. Jafnframt verði áfram unnið á grundvelli sömu hugmyndafræði og stefnu varðandi þjónustu, sbr. gildandi samning,“ segir í tilkynningunni. Mikilvægt skref Umræddar breytingar geti falist í því að skipa þriggja til fimm manna stjórn yfir heilbrigðisþjónustunni sem verði að meirihluta skipuð óháðum aðilum sem hafi það hlutverk að tryggja fagleg gæði og góða stjórnarhætti. Sjúkratryggingar og SÁÁ munu hafa samráð um skipunina. Framkvæmdastjórn SÁÁ mun samkvæmt þessu fyrirkomulagi gegna hlutverki eiganda heilbrigðisþjónustunnar og taka þátt í að móta almennar áherslur hennar í samráði við stjórn. „Þetta er mikilvægt skref til að endurvekja traust og skapa grundvöll fyrir því að starfsemi SÁÁ komist í betra og stöðugra horf. Það skiptir fyrst og fremst máli fyrir fólkið sem treystir á þessa mikilvægu þjónustu. Við viljum nú horfa fram á veginn og leggja okkar af mörkum til að skapa þann stöðugleika sem þarf svo starfsfólk geti einbeitt sér að því sem mestu máli skiptir – að veita góða heilbrigðisþjónustu,“ er haft eftir Sigurði H. Helgasyni, forstjóra Sjúkratrygginga. Efla traust Með breytingunum sé stuðlað að auknu trausti, bæði meðal starfsmanna og í samfélaginu almennt. „Það er gott að vera komin með sameiginlega niðurstöðu með Sjúkratryggingum. Við viljum skýra ábyrgð og verkaskiptingu. Um leið skiptir okkur miklu að þjónustan verði áfram veitt í nafni SÁÁ og byggi á þeirri hugmyndafræði sem starfið hvílir á. Með þetta að leiðarljósi viljum við efla traust á starfseminni og skapa nýjum forstjóra og starfsfólki góðar aðstæður til að sinna sjúklingum,“ er haft eftir Önnu Hildi Guðmundsdóttur, formanni SÁÁ.
SÁÁ Heilbrigðismál Fíkn Áfengi Sjúkratryggingar Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira