„Þetta var rétt ákvörðun“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 24. september 2026 16:59 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir Guðmund hafa tekið ákvörðunin algjörlega upp á eigin spýtur. vísir/viktor freyr/anton brink „Það eru auðvitað tvær hliðar á öllum svona málum. Guðmundur Ingi tók sjálfur þá ákvörðun að segja af sér sem ráðherra. Hann tilkynnti þetta, hann sagði frá þessu sjálfur og komst að þeirri niðurstöðu með hliðsjón af heilsufari sínu. Auðvitað segir það sig sjálft að svona ákvarðanir eru ekki teknar í tómarúmi.“
Þetta segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu innt eftir viðbrögðum við því að Guðmundur Ingi Kristinsson, óháður þingmaður og fyrrverandi barna- og menntamálaráðherra, sagði sig hafa verið stunginn í bakið. Guðmundur Ingi opnaði sig um samskipti sín við þáverandi aðstoðarmann sinn áður en hann sagði af sér embætti. Hann sagði skilaboðin í raun vera hótun en í þeim kom fram að ákvörðunin væri Valkyrjanna. Í kjölfarið sagði hann sig úr Flokki fólksins. Hann hefur sakað Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, um að hafa ætlað að bola sér inn á sjúkrastofu þar sem hann lá eftir hjartaaðgerð í desember. Kristrún segir að auðvitað hafi ákvörðun Guðmundar verið til umræðu milli formanna stjórnarflokkanna og víðar. „Svona ákvarðanir eru ræddar, hann er hluti af stjórnmálaflokki og hann sat á þeim tíma sem ráðherra í skjóli þingmeirihluta. Þannig að auðvitað ræðir fólk saman en eins og ég segi, hann tók sjálfur þessa ákvörðun að segja af sér sem ráðherra.“ Spurð hvort hún hafi orðið vör við þrýsting frá Ingu á Guðmund að segja af sér segir Kristrún: „Guðmundur Ingi tók þessa ákvörðun sjálfur. Þetta var rétt ákvörðun. En svona ákvarðanir, bara svo ég ítreki það, eru ekki teknar í tómarúmi. Svona mál eru alltaf rædd innan flokka, á milli forystumanna í stjórnmálaflokkum. Það segir sig auðvitað sjálft. Þannig að þessi ákvörðun er alfarið hans en auðvitað er þetta rætt.“ Spurð hvort Inga hafi rætt mögulega afsögn Guðmundar áður en hann sagði loks af sér svarar Kristrún ekki með beinum hætti: „Við auðvitað eigum mjög góð samskipti, ég og formaður Flokks fólksins og auðvitað líka formaður Viðreisnar. Ráðherrar sitja í skjóli þingmeirihluta og það er ekki óeðlilegt að svona mál séu rædd á formannastigi. En eins og ég segi, á þessum tíma þá var það ákvörðun af hans hálfu að segja af sér og hún er auðvitað á hans ábyrgð.“ Hún segist ekki líta svo á að um óþægilegt mál fyrir ríkisstjórnina sé að ræða. „Ríkisstjórnarsamstarfið er gott og fólkið í landinu sér það á verkum okkar. Það er mjög gott traust og mjög mikil samstaða sem ríkir milli stjórnarflokkanna.“
Flokkur fólksins Alþingi Vistaskipti Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira