Dapurlegt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálfsögðum rétti Tómas Arnar Þorláksson skrifar 24. september 2026 12:39 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Gunnar Þór Pétursson, prófessor við Háskólann í Reykjavík. vísir/Ívar/hr/vilhelm Móðir lagði íslenska ríkið í skaðabótamáli á þeim grundvelli að EES-reglur hafi ekki verið innleiddar með réttum hætti. Sérfræðingur í Evrópurétti segir að fleiri gætu leitað réttar síns enda skýrt fordæmi nú fyrirliggjandi. Utanríkisráðherra segir dapurlegt að konan hafi neyðst til að berjast í sjö ár fyrir sjálfsögðum rétti sínum. Ekki hefði verið um vandamál að ræða ef bókun 35 hefði verið innleidd með réttum hætti.
Í stuttu máli varðar dómur Hæstaréttar að kona sem hafði starfað sem læknir í Danmörku frá 2015 til 2019 hafi fengið of lágar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði. Konan eignaðist barnið á Íslandi árið 2020 og fékk aðeins lágmarksgreiðslur úr sjóðnum þar sem ekki var hægt að miða við laun hennar sem læknir í öðru landi. Það var ekki mögulegt þar sem reglugerð Evrópuþingsins um samræmingu almannatrygginga var ekki innleidd með réttum hætti sem íslensk lög og stangaðist á við önnur lög um fæðingar- og foreldraorlof. Mikilvægur og fordæmisgefandi dómur Gunnar Þór Pétursson, lagaprófessor og sérfræðingur í Evrópurétti og EES-samningnum við Háskólann í Reykjavík, bendir á að Hæstiréttur hafi komist að þeirri niðurstöðu í dómi árið 2024 sem varðaði mál sömu konu að bókun 35 hafi ekki verið innleidd með réttum hætti. „Þetta er merkilegur dómur og lokin á langri sögu í gegnum fjögur dómstig. Í fyrra málinu leitaði þessi kona eftir því að fá staðfest að hún ætti rétt á fæðingarorlofi. Þá komst Hæstiréttur að því að hún ætti þann rétt en að hann hafi ekki verið réttilega innleiddur hér á landi. Þá fór Hæstiréttur í löngu máli yfir bókun 35 og tengsl landsréttar og EES-réttar mjög ítarlega. Þar sem bókunin væri ekki innleidd með fullnægjandi hætti var ekki hægt að veita þennan rétt sem hún átti svo sannarlega. Þetta var sögulegur dómur sem segir til um mikilvægi og fordæmisgildi þessa máls.“ Konan hafi því ekki fengið sjálfsagðan rétt sinn viðurkenndan samkvæmt EES-samningnum. „Þessi dómur er þá skaðabótamál sem byggir á fyrri dómnum. Þetta er þá lokin á sennilega rúmlega sex ára ef ekki sjö ára gamalli sögu. Það hefur tekið hana þennan tíma að ná fram rétti sínum. Þetta er mjög langur og torsóttur vegur, vil ég segja, til að fá rétt fæðingarorlof.“ Réttur móðurinnar samkvæmt íslenskum lögum um frjálsa för á innri markaði Evrópu hafi verið skertur. Gunnar segir báða dómana gefa skýrt og mikilvægt fordæmi. Fleiri gætu leitað réttar síns. „Ég vil allavega meina að ef að við hefðum réttilega eða með fullnægjandi hætti haft bókun 35 í íslenskum rétti þá hefði þetta ekki þurft að fara alla þessa vegferð.“ „Ég vona að menn hafi hugrekki til þess“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir mikilvægt að koma bókun 35 í gegnum þingið. „Þegar upp er staðið er bókun 35 réttlætismál fyrir íslenskan almenning og íslensk fyrirtæki og við erum búin að sjá það að í sex eða sjö ár hefur þessi kona barist fyrir rétti sínum og á sama tíma hefur Alþingi Íslendinga ekki náð að klára þetta mál. Að klára þetta mál er einfaldlega að standa með EES-samningnum og að standa með réttindum Íslendinga,“ segir hún og ítrekar að hún vilji klára bókun 35 sem allra fyrst. Það sé dapurlegt að vita til þess að móðirin hafi þurft að berjast fyrir sínum rétti. Að mati Þorgerðar þarf Alþingi að koma í veg fyrir að íslenska ríkið gerist skaðabótaskylt. „Ég vona innilega að við látum ekki pólitíska hentistefnu og einhverja svona klækjapólitík ráða, heldur að menn beri einfaldlega ábyrgð og klári málið. Ég vona að menn hafi hugrekki til þess.“
Bókun 35 Evrópusambandið EES-samningurinn Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira