Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Agnar Már Másson skrifar 23. september 2026 21:01 Hæstiréttur komst fyrst að þeirri niðurtöðu árið 2024 að ranglega hefði verið staðið að innleiðingu laganna. Nú komst rétturinn að því að ríkið væri skaðabótaskylt. Vísir/Vilhelm Móðir sem fékk of lágar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði vann skaðabótamál gegn ríkinu. Íslenska ríkið hafði ekki innleitt EES-lögin nógu fljótt en þeim hefur nú verið breytt. Hún fær 2,7 milljónir í skaðabætur.
Kona sem hafði starfað sem læknir í Danmörku frá 2015 til 2019 höfðaði mál gegn ríkinu þar sem hún heimtaði skaðabætur á þeim grundvelli að ríkið hefði staðið ranglega að því að leiða í lög EES-reglugerð um frjálsa för launþega og fyrirmæli Evrópuþingsins um samræmingu almannatrygginga. Málið snýr að því að þegar hún flutti heim til Íslands haustið 2019 og átti barn í mars 2020 hafi hún aðeins hlotið lágmarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, sem nema um 184 þúsund krónum á mánuði. Þar sem lögin miðuðu við tekjur á íslenskum vinnumarkaði á ákveðnu tímabili fyrir fæðingu, og hún hafði engar slíkar tekjur þar sem hún hafði verið úti í Danmörku, fékk hún minna greitt en læknir í fullu starfi á Íslandi hefði annars. Konan fór þá í mál við ríkið, fyrst árið 2022 til að fá ákvörðunina ógilda. Undir málarekstri fyrir héraðsdómi var fengið ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins, sem sagði að miða ætti greiðslur við tekjur sambærilegs launþega á Íslandi enda væri fólk annars verr sett fyrir það eitt að hafa nýtt rétt sinn til að flytja milli EES-landa. Hæstiréttur féllst árið 2024 á að íslensku lögin stæðust ekki EES-reglur, en gat samt ekki dæmt henni í vil þar sem íslensku lögin væru svo skýr að dómstóllinn gat ekki túlkað þau öðruvísi, og ríkið var því sýknað. Hæstiréttur benti þó á að hún gæti farið fram á skaðabætur á þeim grundvelli að ríkið hefði ekki innleitt EES-lögin á réttum tíma samkvæmt skuldbindingum sínum. Og það gerði hún. Skaðabótamálið höfðaði hún árið 2024 en Héraðsdómur sýknaði fyrst ríkið af kröfum hennar og taldi brotið ekki nógu alvarlegt. Aðra sögu var þó að segja þegar skaðabótamálið rataði aftur í Hæstarétt. Hæstiréttur sneri dómi héraðsdóms við. Hæstiréttur benti á að þegar dómur Evrópudómstólsins féll í Bergström-málinu í desember 2011, sem sýndi að farandlaunþegi mætti ekki verða verr settur í fæðingarorlofsgreiðslum, hafi íslenska ríkið átt að bregðast við og breyta lögum sínum, en svo var ekki gert fyrr en í júlí 2025. Með þessari vanrækslu var ríkið talið hafa brugðist alvarlega skuldbindingum sínum samkvæmt EES-samningnum, segir í dómi Hæstaréttar. Þannig var ríkinu gert að greiða móðurinni 2,7 milljónir í skaðabætur auk dráttarvaxta frá febrúar 2024. Þá þurfti ríkið einnig að greiða 1,5 milljóna málskostnað fyrir Hæstarétti.
Fæðingarorlof Hæstiréttur Bandaríkjanna EES-samningurinn Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira