„Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Sunna Sæmundsdóttir skrifar 23. september 2026 17:02 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Vísir/Einar Verkfallsaðgerðir flugvirkja höfðu áhrif á um sex þúsund manns að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair. Hann biður farþega afsökunar og segist létt yfir því að verkfalli hafi verið aflýst. Grafalvarlegt ástand skapist þegar flugtengingar við landið rofni að miklu leyti.
Öllum flugferðum Icelandair var aflýst eftir að verkfall flugvirkja hófst á miðnætti. Verkfallið var hins vegar blásið af um hádegisbilið og er áætlunarflug félagsins hafið á ný. Fyrstu vélarnar fóru frá Keflavík og Reykjavík síðdegis í dag. Bogi segir tjónið sem hlaust af verkfallinu ekki liggja fyrir. Félagið hafði áður boðið farþegum sem áttu bókaðar ferðir í dag og á morgun að breyta flugmiðum sínum og Bogi býst ekki við því að það taki langan tíma að vinda ofan af ástandinu. „Reyndar vorum við að sameina tvö flug til Norður-Ameríku en annað er á áætlun eins og staðan er núna,“ segir Bogi. Ferðirnar voru sameinaðar vegna þess að farþegar komu ekki frá Evrópu í morgun sökum aðgerðanna. Færri voru á ferðinni og farþegar rúmuðust í einni vél. Hann segir aðgerðirnar hafa haft áhrif á um sex þúsund farþega. „Við biðjum þá afsökunar og á sama tíma vil ég þakka okkar starfsfólki fyrir frábæra vinnu síðasta sólarhringinn,“ segir Bogi. Það stóð til að setja lög á verkfallið. Ríkisstjórnin afgreiddi slíkt frumvarp frá sér í morgun. Hvað fannst þér um það? „Ég veit ekki hvað skal segja. Þetta er auðvitað grafalvarlegt ástand sem skapast þegar að flugtengingar næstum því rofna við landið. Við sinnum þessu hlutverki að tengja Ísland við umheiminn og áhrifin af svona verkfalli ná langt út fyrir veggi okkar fyrirtækis,“ segir Bogi. Samkvæmt yfirlýsingu Flugvirkjafélgs Íslands og Icelandair munu samningsaðilar nýta næstu fjórar vikur til viðræðna samkvæmt verkstýrðri viðræðuáætlun ríkissáttasemjara. Boga segist fara bjartsýnn inn í verkefnið, sem verði þó krefjandi. „Það eru mismunandi hugmyndir á borðinu frá sitt hvorum aðilanum en verkefnið snýst um að samræma sjónarmið og koma okkur á sömu blaðsíðu um bæði stöðu félagsins og umhverfið sem við erum að starfa í. Launahækkanir verið mjög miklar hérna á Íslandi síðustu ár og langt umfram það sem við sjáum í okkar samkeppnislöndum og hjá okkar samkeppnisfélögum. Stærsti hluti okkar tekna er að langmestu leyti að koma erlendis frá og við erum að keppa um þessar tekjur við félög sem eru í allt öðru umhverfi og það er krefjandi verkefni að koma samningum saman í slíku umhverfi. En verkefnið fer ekkert frá okkur og við þurfum að koma okkur á sömu blaðsíðu.“
Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Icelandair Kjaramál Flug Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira