Dagný Ósk látin Sunna Sæmundsdóttir skrifar 23. september 2026 14:55 Dagný Ósk Vestmann hafði barist við krabbamein á síðustu árum. Dagný Ósk Vestmann er látin þrjátíu og átta ára að aldri eftir baráttu við krabbamein. Dagný opnaði sig um veikindin í viðtali á Vísi um helgina þar sem hún hvatti fólk til þess að staldra við og finna gleðina í litlu hlutunum í lífinu. Hún lætur eftir sig eiginmann og tvö börn.
Dagný lést í nótt á líknardeild Landspítalans eftir stutta innlögn. Hún lýsti baráttunni við krabbameinið á opinskáan hátt í viðtali sem birtist á Vísi um helgina. Hún var fyrst greind með brjóstakrabbamein árið 2017 og aftur nokkrum árum síðar þegar meinið hafði dreift sér víðar um líkamann. Í viðtalinu lýsti Dagný því meðal annars að baráttan hafi reynst þung bæði andlega og fjárhagslega. Þá sagðist hún sjálf koma að skipulagningu eigin útfarar sem fjölskyldan hélt úti söfnun fyrir. Dagný sagði í viðtalinu að þakklæti væri sér efst í huga á þeim tímapunkti. „Þeir sem hafa nú þegar lagt söfnuninni okkar lið eiga mikið þakklæti og gott karma skilið. Annars langar mig að minna fólk á að finna það fallega í litlu hlutunum. Lífið getur ekki snúist endalaust um hraða þannig að maður gleymi að njóta þess. Það er svo mikilvægt að staldra aðeins við,“ sagði Dagný Ósk. Söfnunarreikningur fjölskyldunnar er á nafni Kristins Bjarka Hjaltasonar, eiginmanns Dagnýjar. Kennitala: 160183-5439 Bankanúmer: 0702-15-835439
Krabbamein Andlát Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira