Lárus Welding á endastöð hjá MDE Eiður Þór Árnason skrifar 21. september 2026 17:34 Lárus Welding í Landsrétti vegna Aurum Holding-málsins. Vísir/Vilhelm Mál Lárusar Welding á hendur íslenska ríkinu verður ekki tekið fyrir í yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE). Dómstóllinn hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið brotið gegn Lárusi í Stím-málinu svokallaða.
Íslenska ríkið var í maí sýknað af öllum kröfum Lárusar sem vildi meina að brotið hefði verið á rétti hans til réttlátrar málsmeðferðar með skipan Hrefnu Sigríðar Briem sem sérfróðs meðdómanda í Stím-málinu svokallaða. Sjö manna dómstóllinn klofnaði í málinu og vildu fjórir af sjö dómurum MDE sýkna ríkið. Lárus vildi ekki una niðurstöðunni og óskaði eftir því að hún yrði tekin fyrir í yfirdeild réttarins. Þeirri beiðni var formlega hafnað á fundi fimm dómara yfirdeildarinnar í dag og telst fyrri niðurstaða MDE því vera endanleg. Forsaga málsins er sú að félagið Stím fékk tæplega 20 milljarða króna lán frá Glitni til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group í nóvember árið 2007. Seljandi bréfanna var Glitnir en um var að ræða rúmlega 4 prósenta hlut í hvoru tilfelli. Veðin fyrir láni Stíms voru í hlutabréfunum í Glitni og FL Group. Í málinu var Lárus ákærður auk tveggja annarra fyrir lánveitingar Glitnis til hlutabréfakaupa í Glitni og FL Group. Héldu því fram að Hrefna væri vanhæf Lárus var árið 2015 dæmdur í fimm ára skilorðsbundið fangelsi vegna Stím-málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Jóhannes Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta Glitnis, var dæmdur í tveggja ára fangelsi og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Sögu Capital, í 18 mánaða fangelsi. Mennirnir þrír kærðu málið til Hæstaréttar og kröfðust frávísunar á grundvelli þess að Sigríður Hjaltested, einn þriggja dómara málsins, hefði verið vanhæf til að dæma í því þar sem fyrrverandi eiginmaður hennar og barnsfaðir hefði starfað fyrir Glitni á sínum tíma. Hæstiréttur féllst á þau rök og ómerkti dóm héraðsdóms. Hæstiréttur féllst hins vegar ekki á að Símon Sigvaldason dómsformaður og Hrefna Sigríður Briem, sérfróður meðdómsmaður, hefðu verið vanhæf. Byggðu sakborningar þá kröfu á því að að Símon og Hrefna hefðu dæmt í málinu sem var síðar dæmt ógilt. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi aftur í málinu sléttum tveimur árum eftir fyrri dómsuppsöguna, þá skipaður þeim Símoni og Hrefnu Sigríði auk Ingimundi Einarssyni, þáverandi dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur. Sakborningar reyndu einnig að fá hann dæmdan vanhæfan. Hæstiréttur féllst ekki á það og héraðsdómur staðfesti fyrri dóm sinn. Árið 2020 staðfesti Landsréttur seinni dóm héraðsdóms hvað Lárus varðar en mildaði refsingu Jóhanns í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi og Þorvaldar Lúðvíks í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi. Hæstiréttur hafnaði áfrýjunarleyfisbeiðni þeirra sama ár. Taldi sig ekki hafa hlotið réttláta málsmeðferð Óttar Pálsson, lögmaður Lárusar, hefur gert athugasemd við að það að dómsformaður í héraðsdómi hafi valið og kvatt til sérfróðan meðdómsmann, veitt honum leiðbeiningar um dómstörfin og síðan ákvarðað honum þóknun við lok starfsins. Af hálfu Lárusar hefur því verið haldið fram að slíkt fyrirkomulag gæti ekki staðist þær kröfur sem gerðar eru um sjálfstæði dómstóla. Lárus höfðaði mál gegn íslenska ríkinu fyrir MDE vegna ætlaðs brots á ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu sem tryggir mönnum réttinn til réttlátrar málsmeðferðar, með skipan Hrefnu Sigríðar sem sérfróðs meðdómanda. Hann hafi haldið því fram að ófullnægjandi lagarammi og ógegnsætt ferli við val slíkra dómara ylli kerfisgöllum og veitti ekki vernd gegn óeðlilegum áhrifum. Niðurstaða fjögurra dómara við Mannréttindadómstól Evrópu í maí var sú að sjálfstæði Héraðsdóms Reykjavíkur hefði ekki verið teflt í tvísýnu með skipaninni og ekki hefði hallað á Lárus við meðferð málsins. Fréttin hefur verið uppfærð.
Dómsmál Mannréttindadómstóll Evrópu Hrunið Tengdar fréttir Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Lögmaður Lárusar Welding mun óska eftir því að niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu í máli hans á hendur íslenska ríkinu verði tekin fyrir í yfirdeild réttarins. Fjórir af sjö dómurum réttarins komust í morgun að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið brotið gegn rétti Lárusar í Stím-málinu svokallaða. 5. maí 2026 13:48 Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Íslenska ríkið var í morgun sýknað af öllum kröfum Lárusar Welding fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Hann vildi meina að brotið hefði verið á rétti hans til réttlátrar málsmeðferðar með skipan Hrefnu Sigríðar Briem sem sérfróðs meðdómanda í Stím-málinu svokallaða. Sjö manna dómstólinn klofnaði í málinu. 5. maí 2026 12:11 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira
Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Lögmaður Lárusar Welding mun óska eftir því að niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu í máli hans á hendur íslenska ríkinu verði tekin fyrir í yfirdeild réttarins. Fjórir af sjö dómurum réttarins komust í morgun að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið brotið gegn rétti Lárusar í Stím-málinu svokallaða. 5. maí 2026 13:48
Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Íslenska ríkið var í morgun sýknað af öllum kröfum Lárusar Welding fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Hann vildi meina að brotið hefði verið á rétti hans til réttlátrar málsmeðferðar með skipan Hrefnu Sigríðar Briem sem sérfróðs meðdómanda í Stím-málinu svokallaða. Sjö manna dómstólinn klofnaði í málinu. 5. maí 2026 12:11